Vikan - 07.04.1977, Blaðsíða 12
Fciíðulegar hliðstaz
markra forscta
Líklega hafa Abraham Lincoln og
John F. Kennedy verið einna
frægustu forsetar Bandaríkjanna.
Flestir þekkja sögu þeirra, og ekki
hefur svo lítíð verið rætt og ritað
um þá báða. Þegar litið er á einstök
atriði á æviferli þeirra, kemur í Ijós,
að þar er að finna nokkrar
hliðstæður.
Þessar hliðstæður eru með ólíkind-
um og þykja mjög merkilegar
tilviljanir. En lífið er víst ekki annað
en sífelld endurtekning, og því
skyldi enginn undrast slíkt. Ein-
hverjir vilja kannski halda því fram,
að hér hafi verið um eins konar end-
urfæðingu að ræða, og auðvitað
getur hver haft sína skoðun á því
máli. Hér koma svo lesendur góðir
nokkur atriði, sem vert er að veita
athygli, og ef til vill má, ef vel er að
gáð, finna fleiri slík, ef sögur mikil-
mennanna tveggja eru rannsakaðar
af nákvæmni.
Mary Lincoln [1818- '82), kona Abrahams Lincoln.
John F. Kennedy og Jacque/ine Bouvier giftu sig 1953. Þau
þóttu óvenju glæsileg brúðhjón.
• 12 VIKAN 14. TBL.