Vikan


Vikan - 07.04.1977, Blaðsíða 16

Vikan - 07.04.1977, Blaðsíða 16
komme og hjælpe mig, Peter. Og auðvitaö fannst honum þetta mikil upphefð aö komast beint úr plássi káetugutta f pláss annars þjóns á 1. plássi, alveg fyrir utan það að kaupiö hækkaði þá skyndilega um rúman helming, eða upp f 75 krónur á mánuði. — Og þetta var nú fyrsta skrefið mitt. Ég var bara kominn inní mitt lífsstarf, þótt ég vissi það ekki fyrr en síðar, sagði Pjetur viö mig fyrir skemmstu, er hann fræddi mig lauslega um æviskeiö sitt, þar sem við sátum uppi í turnherberginu á Borginni og drukkum kaffisopa saman, þar sem systurnar Saga og Hekla höfðu forðum haft sitt herbergi í íbúð föður síns, Jóhannesar kraftakappa og hótel- eiganda Jósepssonar, sem byggði Borgina og rak hana, þar til Pjetur Daníelsson „sjómaður frá Stokks- eyri" kom til skjalanna og stofnaöi hlutafélag til að kaupa hana og reka áfram með sama glæsi- bragnum. — En það hlýtur að hafa verið langur vegur frá Gullfossi gamla til Borgarinnar, sagði ég, þar sem ég sat með galopinn munninn af forvitni og hlustaði á Pjetur rifja upp gamlar minningar. — Það tók í það minnsta langan tíma að fara það, þótt ekki sé langt að fara, mælti Pjetur og brosti Ijúfmannlega. — Mér féll þjónsstarfið ágæt- lega, og þetta varð til þess að ég hélt vinnu minni áfram þar um borð, fyrst á Gullfossi og síðar á Brúarfossi. Það var svo ekki fyrr en '29, að það vantaöi tilvonandi þjóna á Hótel Borg, sem þá var í smíöum. Læröir þjónar íslenskir voru þá ekki til í landi, og var okkur þjónunum á millilandaskip- unum þá boðin þar staða. Og það varð til þess, að ég fór í land í Kaupmannahöfn ásamt tveim þjónum öörum, sem höfðu verið á skipunum, Guðmundi heitnum Bjarnasyni og Kára heitnum Ás- björnssyni. Þar fékk ég pláss á Grand Hotel, sem nú heitir Regina Hotel, á horninu við Revlands- gade og Vesterbrogade, Guð- mundur fór á Palads Hotel, en Kári varð á Hotel d'Angleterre. Þau tvö þóttu þá fínni hótel, en ég var að því leyti heppnari, að ég fékk að vinna meira sjálfstætt, og varð því meira úr þjálfuninni hjá Borgin er elst hótela I borginni, enda má það sjó þrátt fyrir endur- nýjun og málun vfða. Lampinn, sem hangir I anddyrinu hefur hangið þar frá byrjun, eins og sést á þessum myndum, önnur tekin 1930 en hin nú fyrir nokkrum dögum. mér, en þeirra starf fólst aðallega í því að bera að þjónunum. — Hvernig gekk með máliö, Pjetur? — Dönskukunnáttan var nú ekki ýkja sterk, en samt haföi maður nokkra þjálfun. Yfirþjónn- inn á Gullfossi var danskur og búrmaðurinn einnig, þannig að ég var farinn aö skilja dönskuna og gat gert mig skiljanlegan á máíinu. Þaö var dálítiö erfitt til að Þyrja meö, en kom fljótlega. — Hvað varstu lengi þarna, Pjetur? — Ég var þarna í níu mánuöi og kom upp aftur á Þorláksmessu 1929. Þá fór ég fyrst heim á Stokkseyri til að heimsækja for- eldra mina, og það- urðu síöustu jólin, sem ég átti með þeim þar eystra. Þá var hóteliö hér ekki ennþá tilbúið, en ég hóf hér störf 10. jan. 1930 ásamt hinum. Þá byrjuðum við á því að taka upp borðbúnaö og tæki, sem höfðu verið pöntuð, og hjálpuðum til við að pakka upp öllum húsgögnum, borðum og stólum, skófum máln- ingu af gluggum og flísum o.s.frv. til að flýta fyrir opnum, því komið var fram yfir áætlaöan opnunar- tíma. Upphaflega hafði átt að opna með Nýársklúbbnum á gamlárskvöld, en það tafðist, því ekki var þá komiö allt til rekstursins. Hótelið var svo opnað þann 18. janúar á 1000 ára afmæli alþingis 1930. Þá var Jóhannes uppá sitt besta, eða rúmlega þrítugur, og hafði verið í ferðalög- um um allan heim, eins og getið er í æviminningum hans. — Jóhannes hafði drifiö hótelið upp, mest fyrir áeggjan Jónasar frá Hriflu, en áformaö var auðvitað að halda 1000 ára afmælið hátíðlegt og boðið hingað mörgum gestum, og þótti þá ekki hæfa annað en að geta boðiö þeim upp á fullkomið hótel, eins og Borgin jú var. Hún var og er enn í flokki með betri hótelum erlendis. Má þar m.a. nefna það, að baðherbergi eru á flestum herbergjum, sem þá þótti hálf- gerður flottræfilsskapur, þótt nú þyki slíkt sjálfsagt og raunar nauðsynlegt. Enda sögðu dönsku blööin þá, að þetta hótel væri „flottasta" hótelið í Norðurlönd- um. Já, það var reist af mikilli ftamsýni og af bjartsýni, sem hefur ræst. Það er nú næstum 50 ára í dag og hefur, held ég, staðið af sér öll moldviðri með sóma. Hér hafa allar stærri veislur ætíð veriö haldnar og boðið hingað inn hinum tignustu gestum, enda er staðurinn mjög miðsvæðis til allra hluta, en ekki þó í mikilli umferð. Ríkisstjórnir hafa allar haft þennan stað sem sitt fyrsta val allt frá byrjun. — Hvaða þjónar hófu störf hér í upphafi? — Við vorum átta talsins, sem byrjuðum, en ég var sá einasti þeirra, sem eftir var eftir um tvö ár. — Hvað kom til? — Þar voru ýmsar ástæður, sem ég vil ekki tilfæra. Bæði var, að menn voru misjafnir, og ekki þoldu allir daglegan umgang með vín. Jóhannes var einnig mjög strangur húsbóndi og lét gjarnan til sín taka, ef eitthvaö bar út af. En góður húsbóndi var hann samt og reyndist mörgum vel. — Jæja, Pjetur, hvað varstu lengi hérna á Borginni sem þjónn? — Ég vann hér í 12 og hálft ár. Jónas Lárusson hætti líka á Gullfossi um ‘svipað leyti og var hérna sem „inspeotör" ( nokkurn tima, því aö Jóhannes haföi enga reynslu á þessu sviði fyrst ( stað. Eftir þessi 12 1/2 ár stofnaði ég hlutafélag ásamt nokkrum mönn- um og keypti hótel Skjaldbreið hérna rétt hjá í Kirkjustræti 8, og varð auðvitað að hætta hér, þegar Móttökusal gesta hefur heldur ekki verið breytt t neinu. Jafnve/ húsgögnin eru þau sömu og í dag, og er raðað eins og 1930.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.