Vikan - 07.04.1977, Blaðsíða 9
"...........
★
Stór bláhvalur þarf þrjú tonn
af fæöur á hverjum degi.
★
Japanir trúa því að hætta sé
yfirvofandi,ef blöðin af Kiri—trjám
falla snemma. Þess vegna var það,
að í síðasta stríði dreifði bandaríski
herinn yfir Japan þúsundum
bréfa, sem voru eftirlíkingar
blaöanna.
★
Ungur bókhaldari, Ahmed
Corkeraö nafni, var að fara í gegn-
um tollinn í Manley á Jamaica,
þegar stærðar rotta tók undir sig
mikið stökk, hljóp til hans og
sökkti tönnunum í skósóla hans.
Þegar rottan hafði verið fjar-
lægð, fundu tollverðir, að sólarnir
á báðum skóm hans voru gerðir úr
cannabis (fíkniefni).
★
Fyrst þegar menn fóru að stunda
sjóböð, var notast við „dýfinga-
menn," sem tóku að sér að halda
ríkum mönnum í bárunni, en bleyta
þá samt vel í sjónum.
%
Kennslubækur í matseld seljast
þrisvar sinnum betur í Bandarikj-
unum en klámbækur.
★
Gíröffum er mjög hætt við
hálsbólgu og öðrum hálskvillum
þvi þeir geta ekki hóstað.
★
Mörgæsir geta náð svo miklum
hraða neðansjávar að þær geta
stokkið um það bil tvo metra upp
úr sjónum.
★
Árið 1824 tókst tveimur svika-
hröppum, sem hétu Lozier og De
Voe að sannfæra Now-Yorkbúa
um það, að suðuroddi Manhattan
væri að brotna af, því hann væri
svo þungur. Þeir buðust síðan til
að saga hann af og snúa honum
við, svo þetta lagaðist.
★
Þegar pláss við borðið i
Buckingham höll í London eru
ákveðin, eru þau mæld út með
reglustiku.
★
150 milljón hjólhesta eru sagðir
til í heiminum. (Núna eru þeir
150.000.001, því ég keypti einn I
fyrra.)
★
HIRÐSKÁLD
RÍÖBRÆÐRA
Þegar Ríó liggur á, er hringt norður á Raufarhöfn. Þar
situr skáldið Jónas Friðrik á skrifstofu Jökuls hf, en
oftast er hann fljótur að taka flugvél suður, ef
Ríóbræður kalla, því honum er það fullljóst, að Ríó
getur ekki án hans verið, ef á ,,að gera það gott.” Hann
var i einni slíkri ferð, þegar Vikan hafði hendur í hári
hans og truflaði hann milli kvæða. Viðtalið birtist í
næsta blaði.
I NÆSTU VIKU
KARATE Á ÍSLANDI
Orðið karate merkir tómar hendur, og íþróttin, sem á
rót sína að rekja til Japans, hefur náð talsverðri
útbreiðslu hérlendis á síðustu árum. Þeir, sem lítið
þekkja til íþróttarinnar, telja hana oft ekki annað en
slagsmál, fantabrögð, sem eigi að nota til að klekkja á
náunganum. Karatemenn vita, að slíkt er fjarri lagi, og
þeir segja íþrótt sína ekki síður miðast við andlega en
líkamlega þjálfun. Vikan leit inn á æfingu hjá
Karatefélagi Reykjavíkur, og segir frá þvi í næsta
blaði.
SMÁSAGA EFTIR
ATRHUR OMRE
Dýrmætur hringur hverfur, og ungur piltur er
grunaður. Hann hefur lengi verið fyrirmynd ungra
manna í bænum, hann hefur stutt móður sina og
systur, skarað fram úr í andlegu og likamlegu atgjörvi,
og nú er hann að læra til læknis. En hann er
bláfátækur, og hann á framtíð sína undir því, að hann
geti útvegað fé til menntunar sinnar. Hefur hann fallið í
freistni og stolið dýrgripnum? Frá þessu segir í ágætri
smásögu Arthurs Omre í næsta blaði.
LAMPASKERMAR
Það er dýrt að kaupa skerma í búð og auk þess oft erfitt
að finna einmitt rétta skerminn, sem hæfir því, sem við
eigum fyrir. Okkur datt því i hug, að þið hefðuð ekkert
á móti því að spara ykkur sporin og nokkur þúsund
krónur með því að gera sjálf þann skerm, sem ykkur
vantar. Það er að sögn bæði skemmtilegt og auðvelt að
gera lampaskerma, og handtökunum er lýst í næsta
blaði.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Anna Kristine Magnúsdóttir, Guðmundur Karlsson, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur
Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla
og dreifing í Siðumúla 12. Slmar 35320—35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 350. Áskriftarverð kr. 3.900
fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 7.370 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram.
Gjalddagar: Nóvember, febrúar, maí, ágúst.
14. TBL. VIKAN 9