Vikan - 26.05.1977, Síða 50
Hrísgrjón á ýmsa ve
Eins og sjá má á meðfylgjandi
uppskriftum má bera fram hrís-
grjón á marga vegu, með mis-
munandi réttum. Það getur verið
mjög skemmtilegt að bera fram
hrísgrjón með réttum, sem ekki
eru mikið kryddaðir, og nota þá
hrísgrjónin til að fá sterka bragðið.
Eldhús
Vikunnar
UMSJÖN:
DRÖFN
FARESTVEIT
FRÖNSK HRÍSGRJÓNA- OG
OSTARÖND
3 dl mjólk
30 gr smjör eða smjörlíki
1 1/2 dl fljótsoðin hrísgrjón
2 egg
150 gr rifinn ostur
Sjóðið saman mjólk og smjör,
setjið hrísgrjónin samanvið og
látið sjóða í 5 mínútur. Kælið
dálítið, áður en eggjarauðurnar
og osturinn eru sett samanvið.
Stífþeytið eggjahvíturnar og
blandið saman við. Hellið mass-
anum í vel smurt hveitistráð
eldfast form (hringform). Bakið
við 225° í ca. 40 mín. Berið fram
heitt sem aðalrétt eða ábæti. Eða
þá sem kvöldrétt með salati.
Hrísgrjónabakstur með fiskibollum
2 dl aflöng hrísgrjón
1 dós fiskibollur.
Sósa: 3 msk. smjör, 3 msk. hveiti,
4 dl vökvi, (kraftur úr dósinni
ásamt mjólk eða rjóma), 3-4 msk.
rauður kavíar, 2-3 msk. chilisósa
og gjarnan grænt krydd, s.s.
graslaukur eða fíntstrimluð púrra,
ca. 1 dl rifinn ostur.
Sjóðið hrísgrjónin og blandið
saman við mörðum fiskibollunum.
Búið til þykka sósu, sem krydduð
er með kavíar, chilisósu og
grænu. Setjið í smurt eldfast form
og bakið við 250° i 20-30 mín.,
eftir því hvernig form er notaö.
Osturinn settur ofan á.
50VIKAN 21. TBL.