Vikan


Vikan - 09.06.1977, Qupperneq 15

Vikan - 09.06.1977, Qupperneq 15
skipuleggja og teikna fyrir fólk, þó aðallega gömul hús. Um þessar mundir er mér boðið til kaups gamla Hótel Berg, sem var í mikilli niðurníðslu, og seldi ég þá Helga- fellið og hófst handa við endur- bætur á hótelinu, og var það opnað fjórum mánuðum síðar. Þar sem ég hafði aldrei unnið við hótelrekstur, leigði ég tveimur aðilum hótelið, en reksturinn gekk mjög brösuglega, og áttu þeir I hinum mestu erfiðleikum meö að greiða leiguna, sumpart vegna þess að ég fékk ekki lán til að klára efri hæð hússins, en þar voru herbergin. Að vísu fékk ég svo lán úr ferðamálasjóði, en það kom bara of seint. Var ég nú svo gott sem kominn á hausinn. — Nú, þarna sem ég stend á haus, birtist móðir mín allt í einu með ferðatöskurnar sínar og segist hvergi eiga heima. Sjaldan eða aldrei hefir mér brugðið eins, en hún var fljót að leiðrétta misskilninginn. Jú, hún hafði selt íbúðina sína í Reykjavík daginn áður og bauðst nú til að kaupa af mér hótelið eða ganga inn ( samninginn, sem gerður haföi verið við fyrrverandi eiganda. Er ekki að fjölyrða um það, hún varð' hóteleigandi, en ég missti konuna, sem nú var orðin þreytt á þessu eilífa láni mínu í óláni, fór til Danmerkur með dótturina, en ég hélt stráknum. Voru nú aörir leigjendur fengnir, en fyrrverandi hóteleigandi fór í fiskvinnu, en hélt þó áfram sinni fyrri iðju, það er að segja, var alltaf að teikna. „Það má segja, að Hveragerði sé nafli suður/andsins," segir Sigurður. Hér sjéum við hús þeirra hjóna að Laufskógum 4 i Hveragerði. Sigurður og Ragnhildur keyptu sér gamalt hús / Hveragerði og fóru um það s/fkum höndum, að nú er a/lt sem orðið nýtt.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.