Vikan


Vikan - 09.06.1977, Blaðsíða 42

Vikan - 09.06.1977, Blaðsíða 42
 mm1 l(0)UoU Hárlagningarvökvinn í^, j fyrir blástur: iiiíbrin Inform í litlu, fjólubláu og grænu glösunum.fær hárið til að sitja alveg eins og þú vilt hafa það,- eðlilega og með lyftingu. Inform - fyrir dömur og herra. HALLDÓR JONSSON HF. Dugguvogi 8 m # W£LLA Guillam skyldi vera á vakt þessa nótt. Hann var kurteis og hugul- samur náungi og fólki leið yfirleitt vel í návist hans. „Sérdeildin hringdi kl. 12. Eigin- kona Fennans fór í leikhúsið og fann ekki mann sinn fyrr en kortér í ellefu, er hún kom heim. Síðan hringdi hún í lögregluna.” „Hann bjó einhvers staðar í Surrey.” „Já, í Walliston, rétt hjá Kingston. Það er skammt fyrir utan miðborgina. Þegar lögreglan kom á staðinn fann hún bréf á gólfinu við hliðina á líkinu, sem var stílað til utanrikisráðherrans. Lögregluvarð- stjórinn hringdi í lögreglustjórann, sem hringdi í vakthafandi liðsfor- ingja í innanríkisráðuneytinu. Það- an var svo hringt í utanríkis- ráðuneytið og loks fengu þeir leyfi til þess að opna bréfið. Þá fyrst byrjaði ballið.” „Haltu áfram.” „Starfsmannastjórinn í utan- ríkisráðuneytinu hringdi til okkar. Hann vildi fá uppgefið símanúmerið heima hjá Ráðgjafanum, sagði.að þetta yrði í síðasta skipti, sem öryggisþjónustan kássaðist upp á hans starfsfólk og að Fennan hafi verið dyggur og hœfur liðsforingi, bla...bla...bla.” „Já, hann var það raunar líka.” „Síðan sagði hann, að allt þetta mál sýndi ljóslega, hversu langt öryggisþjónustan vœri farin að fara út fyrir sitt starfssvið, talaði um Gestapóaðferðir bla...bla... „Ég lét hann fá símanúmer Ráðgjafans, en notaði siðan hinn símann til þess að hringja sjálfur á meðan hann lét móðann mása. Fyrir einskœra heppni var ég með utanríkisráðuneytið á annarri lin- unni og Maston á hinni og ég sagði honum fréttimar. Þá var klukkan tuttugu minútur gengin í eitt. Maston var kominn hingað klukkan eitt og honum var heldur betur mikið niðri fyrir. Hann verður að gefa ráðherranum skýrslu í fyrra- málið.” Þeir þögðu smástund á meðan Guillam setti kaffiduft i tvo bolla, en hellti síðan sjóðandi vatni út í. „Hvers konar maður var hann?” spurði hann. „Hver? Fennan? Þangað til i kvöld hefði ég getað sagt þér það. Nú botna ég ekkert i honum. Eftir útlitinu að dæma var hann greini- lega gyðingur. Hann var kominn af sanntrúuðu fólki, en sagði skilið við trúna í Oxford og gerðist þá marxisti. Hann var bæði glöggur og menntaður maður, enginn asi á honum og hann kunni að hlusta. Sá sem skrifaði nafnlausa bréfið hafði rétt fyrir sér; hann var í kommún- istaflokknum.” „Hversu gamall var hann?” „Fjörutíu og fjögra, en leit út fyrir að vera eldri.” Smiley hélt áfram að tala, en renndi um leið augunum í kringum sig þama í herberginu. „Andlitið bar vott um tilfinninganæmi, hárið sléttgreitt, vangasvipurinn eins og á tvítugum manni, en þurr húðin minnti dálítið á kalk. Hann fór töluvert mikið einfömm.” Þeir risu á fætur er Maston kom inn. „Ah, Smiley. Komdu inn.” Hann opnaði dyrnar og rétti fram vinstri höndina til þess að visa Smiley inn á undan sér. Það var ekki einn einasti hlutur í herbergi Mastons, sem tilheyrði hinu opinbera. Hann hafði einhvem tíma keypt vatnslita- myndir frá því á 19. öld og sumar þeirra héngu á veggjunum. Af- gangurinn var hálfgert msl, en það hæfði Maston svo sem ágætlega. Hann var í fötum, sem vom einum of ljós til þess að þau gætu talist virðuleg. Bandið á einglyrni hans lá þvert yfir ljósgula skyrtuna og hann var með ljóst ullarbindi. Þjóðverjum myndi líklega geðjast að útliti hans, hugsaði Smiley. Glæsilegur, það var orðið yfir hann, alveg eins og vinnukonur ímynda sér, að heldri menn eigi að vera. „Ég hitti Sparrow. Hér er greinilega um sjálfsmorð að ræða. Það er búið að fjarlægja líkið og lögreglustjórinn segir, að það verði ekkert gert í málinu, utan þetta venjubundna. Eftir einn eða tvo daga fer fram málsrannsókn. Það hefur verið samþykkt og ég get ekki undirstrikað það nógu rækilega Smiley, að blöðin mega ekkert fó að vita um samband okkar við Fennan.” „Ég skil.” (Þú ert hættulegur, Maston, veikur fyrir og hræddur. Þú ætlar öðmm en sjálfum þér snömna. Ég sé hvemig þú horfir á mig rétt eins og þú sért að geta þér til um, hvemig ég muni líta út í gálganum.) „Þú mátt ekki halda, að ég sé að gagnrýna þig, Smiley. Þegar öllu er á botninn hvolft, þá samþykkti Stjórinn þetta viðtal, svo að þú hefur ekkert að óttast.” „Nema Fennan.” „Rétt er það. Því miður láðist Stjóranum að gefa út beiðni varðandi þetta viðtal. Hins vegar vænti ég þess að hann hafi samþykkt það munnlega?” „Já, og ég er viss um, að hann mun staðfesta það.” Maston leit aftur á Smiley, hvasst og úthugsað og eitthvað fór að angra Smiley í hólsinum. Hann vissi að hann var ósamvinnuþýður og að Maston kysi að nálgast hann og ná betri tökum á honum. „Þú veist, að skrifstofa Fennans hefur haft samband við mig?” „Já.” „Það mun fara fram málsrann- sókn og kannski verður ekki hægt að halda blöðunum fyrir utan þetta. Ég verð að fara á fund innanríkis- ráðherra strax í fyrramálið.” (Já, reyndu bara að hræða mig... ég er að fara ó eftirlaun... er ekki gjaldgengur á vinnumarkaðnum... en ég ætla ekki að láta flækja mig í þinn lygavef, Maston.) „Ég verð að vita allar staðreyndir í málinu, Smiley. Ég verð að gera skyldu mína. Ef það er eitthvað, sem þér finnst þú eigir að segja mér varðandi þetta viðtal, eitthvað sem þú hefur ekki minnst ó, segðu mér það þá núna og leyfðu mér að dæma um mikilvægi þess.” „Ég hef engu við þetta að bæta. Það sem ekki er í skýrslu minni, hef ég þegar sagt þér. Ef til vill þætti mér fengur að þeirri staðreynd, að samtal okkar fór fram undir fremur óformlegum kringumstæðum. Lík- urnar fyrir sekt Fennans voru afskaplega litlar. Hann var að visu meðlimur í kommúnistaflokknum á fjórða áratugnum og einhverjar flugufregnir voru um, að hann aðhylltist enn sömu stefnu. En hálf ríkisstjórnin var í kommúnista- flokknum á þessum árum.” Maston hleypti brúnum. ,, Þegar ég kom á skrifstofu hans í utanríkisráðuneytinu, reyndist vera heldur þröngt á þingi þar, fólk stöðugt að koma og fara, og ég stakk þess vegna upp á því, að við fengjum okkur göngu í skemmti- garðinum.” „Og hvað svo?” „Nú, við gerðum það. Úti var sólskin, heldur kalt, en að öðru leyti notalegt veður. Við fórum að skoða endurnar. Maston lét í ljósi óþolinmæði. „Við vorum um það bil hálfa klukkustund í garðinum og hann hafði orðið mest allan tímann. Hann var skynugur maður og rak ekki svo auðveldlega í vörðurnar. En hann var eins og gefur að skilja einnig dólítið taugaóstyrkur. Fólk eins og hann hefur gaman af þvi að tala um sjólft sig. Ég held, að hann hafi að einhverju leyti verið feginn að fá tækifæri til þess að leysa frá skjóðunni. Hann sagði mér alla sólarsöguna og hann var alls óhræddur við að nefna ýmis nöfn. Siðan fórum við ó „expresso” kaffihús nálægt Millbank.” „Fóruð hvert?” „Á „expresso” kaffihús. Þeir selja sérstaka tegund af kaffi fyrir einn shilling á bolla. Við fengum okkur sinn hvom.” „Ég skil. Það var undir þessum.. óformlegu kringumstæðum, sem þú sagðir honum að við myndum ekki mæla með neinum aðgerðum í mólinu.” 42VIKAN 23. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.