Vikan - 09.06.1977, Blaðsíða 43
„Já, þannig höfum við það oft,
en venjulega látum við þess ekki
getið í skýrslunni.” Maston kinkaði
kolli. Þetta voru hlutir, sem hann
skildi, hugsaði Smiley. Guð minn
góður, hvað hann var fyrirlitlegur.
Það var að sumu leyti athyglisvert
að sjá Maston svona vandræða-
legan.
,,Og ég skil það þá svo, að
sjálfsmorðið og auðvitað bréfið
komi algjörlega flatt upp á þig. Þú
hefur enga skýringu á reiðum
honum.
,,Það væri undarlegt, ef svo
væri.”
,,Þú hefur ekki nokkra hugmynd
um, hver kom upp um hann?”
,,Nei.”
,,Eins og þú veist, þá var hann
kvæntur.”
,,Já.”
,,Mér var að detta í hug... það er
hugsanlegt, að konan hans geti fyllt
út í eitthvað af eyðunum. Ég er í
vafa um það, en kannski ætti
einhver úr stjómardeildinni að
spjalla við hana og, að svo miklu
leyti sem tilhlýðilegt þykir, að
spyija hana um allt þetta.”
,,Núna?" Smiley leit á hann
svipbrigðalaust.
Maston stóð við skrifborð sitt og
fitlaði ýmist við bókahnif, síga-
rettubox eða kveikjtu-a. Hann
reynir að sýna alla þá stillingu, sem
hann hefur til að bera, hugsaði
Smiley og dáðist að hvítum höndum
hans.
Maston leit upp og i andliti hans
brá fyrir samúð.
„Smiley, ég veit hvemig þér er
innanbrjósts, en þrótt fyrir þennan
sorglega atburð verðum við að
reyna að kafa til botns í þessu.
Innanríkisráðherrann mun krefjast
nákvæmra upplýsinga um þetta
mál og það er í mínum verkahring
að afla þeirra. Sérstaklega allt er
varðar hugarástand Fennans strax
eftir viðtalið við... við okkur.
Kannski að hann hafi rætt við konu
sína um það. Hann hefði ekki átt að
gera það, en við verðum að vera
raunsæjr.”
„Viltu þá að ég fari og heimsæki
hana?”
, .Einhver verður að gera það. Hér
er einnig spurning um málsrann-
sóknina. Innanríkisróðherrann
verður vitaskuld að ákveða sjálfur
allt varðandi hana, en eins og er
höfum við ekki fullnægjandi upp-
lýsingar. Timinn er naumur og þú
þekkir þetta mál. Okkur gefst ekki
tími til þess að'setja annan mann
inn í það. Ef einhver á að taka þetta
að sér, þá verður það að vera þú.”
„Hvenær viltu að ég fari?”
„Frú Fennan er greinilega ó-
venjuleg kona. Erlend. Gyðingur að
mér skilst og varð illa úti í stríðinu,
sem gerir málið enn viðkvæmara.
Þetta er viljasterk kona og lót
mannsins hennar virðist hafa fengið
tiltölulega lítið á hana. En það er
sjálfsagt bara á yfirborðinu. Hún er
skynsöm og ó auðvelt með að tjá
sig. Mér skilst á Sparrow, að hún
hafi verið mjög samvinnuþýð og
muni að öllum likindum vera
reiðubúin að ræða við þig strax.
Surreylögreglan getur sagt henni
frá komu þinni og þú ættir þó að
geta hitt hana strax í fyrramálið.
Ég mun svo hafa sambandi við þig
þar seinna um daginn.”
Smiley bjóst til að fara.
„Og...Smiley....” Hann fann að
Maston lagði höndina á arm hans
og hann snéri sér við og leit ó hann.
Maston setti upp brosið, sem var
venjulega ætlað hinum eldri konum
í þjónustunni. „Smiley, þú getur
reitt þig á mig. Ég skal veita þér
allan minn stuðning.”
Guð minn góður, hugsaði Smiley,
þú vinnur svei mér allan sólar-
hringinn. 24 tíma skrípaleikur, það
eru þinar ær og kýr. „Við lokuðum
aldrei.” Hann gekk út á götuna.
3. KAFLI
ELSAFENNAN
Merridale Lane er ein af þessum
götum í Surrey, þar sem íbúamir
heyja endalaust stríð gegn óvirðu-
leika stórborgarinnar. Tré vaxa í
sérhverjum forgarði og byrgja
sýnina að húsunum. sem að baki
standa. Búramennskan er enn
frekar undirstrikuð með viðarugl-
um, er tróna sem einhvers konar
vemdarenglar yfir nöfnum húsanna
og svo molnuðu dvergamir, er
standa við litlar gullfiskatjarnir.
íbúamir við Merridale Lane mála
ekki dvergana sina, líta raunar á
slíkt sem löst stórborgarinnar. Af
sömu ástæðu bera þeir gljókvoðu ó
uglumar. Síðan biða þeir þess, að
veðrunin geri eignir þeirra fomfó-
legar og að lokum hýsa uppistöður
bilskúranna bæði bjöllur og viðar-
orma.
Framhald í næsta blaði.
LADA 1200
Verð ca kr.
1145 þús.
m. ryðvörn
LADA 1200
STATION
Verð ca kr.
1233 þús.
m. ryðvörn
LADA 1500 S
TOPAS
Verð ca kr.
1357 þús.
m. ryðvörn.
Hagstætt
varahlutaverð
Góð
viðgerðaþjónusta
Hátt endursöluverð
Hagstæðir greiðsluskilmálar
^Bi
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hi.
iaðnrlanásbranl 11 • Reykjavík • Simi 38600
23. TBL. VIKAN 43