Vikan - 27.10.1977, Page 10
POSTIRIM
BRÉF TIL KVK. EÐA KK. SEM
VITA ALLT
Kæri Póstur minn!
Oft er ég búin að hafa gaman af
þér og blaðinu öllu. Það er eins og
ég geti bara aldrei hætt að kaupa
þig Vika góð, þó ég hafi alltaf
ætlað að hætta því (til að spara),
en þú ert alltaf jafn spennandi.
Gerðu það nú fyrir mig að birta
mjög góða sögu, hún heitir
„Konan með hnífinn" eftir Harri-
etta Arnow. Þetta er fín saga, ég
man svolítið eftir henni, ég las
hana fyrir mörgum árum, að ég
held í gamalli Viku, en langar að
lesa hana aftur. Svo mætti bæði
Pósturinn og Vikan þykkna, ekki
undir belti, en með fleiri smá-
sögum. T.d. mættu þessar popp-
síður og auglýsingar mjög gjarnan
hverfa og eins eitthvað af þessum
myndadellusögum. Mérleiðist líka
þessar eilífu strákaspurningar í
Póstinum frá öllum þessum fá-
fróðu, heimsku stelpum, sem
halda ætíð að verði heimsendir
næsta dag. Er ekki lífið nógu langt
til að læra á því, ég held þeim liggi
ekki á að skríða upp í rúm til þeirra
(það er víst engin hætta á að þær
skríði, hm). En þetta unga fólk
svokallaða nú til dags er víst búið
að spila alveg út 18-19 ára gamalt,
hvernig verður þetta fólk um
fertugt — öldungar? Það á að
meta meira líkama sinn og heilsu,
sem er það besta sem hver á, ekki
satt? Ég var að hugsa um
strákana, sem ég sá í sjónvarpinu
um V.m. daginn, alveg eins og 20
ára gamla, mikið var ég hrifin af
þeim. Þetta voru gamlir versl-
unarmenn Pálmi og Stebbi, þú
manst? Þeir eru svo unglegir og
sætir, finnst þér ekki? Ég ætla nú
ekkert að fara að skamma þig eins
og flestir gera, fólk er alltaf að
finna að hjá öðrum, en sjálfum sér
gleymir það alveg. Lífið er víst ekki
spennandi nema fundið sé að því.
Jæja Póstvika mín, ég vona nú,
að þetta krafs fari nú ekki í
þessa landsþekktu ruslakörfu.
Væri ekki tilvalið að fara að fá sér
eitthvað tæknilegra til að losna við
stórgölluð bréf? Þú mátt mjög
gjarna leiðrétta þessar línur, ég
bara læri á því. Ein spurning enn,
hvað lestu úr skriftinni. Mig langar
að spyrja þig, áður en ég kveð þig,
hvernig standi á því, að í hverri
vísu, sem er búin til, eru alltaf
notuð sömu nöfnin (oftast). Það
er alltaf sungið um Maríu (Maju),
Stínu, Gunnu, Jóa eða Sigga,
eins og mörg önnur falleg nöfn
eru til. Ertu ekki sammála mér?
Það mætti nú breyta til. Það
mætti bæta 4-6 síðum i blaðið.
Lifðu ætíð heil Vika mín.
Bæ, Bæ,
Ein að velta ýmsu fyrir sér.
P.s. Hvað lestu úr minni yndislegu
skrift?
Mikið er ég feginn að heyra, að
þú getir ekki hætt að kaupa
Vikuna! Blessuð haltu því áfram!
Því miður kannast enginn hér við
þessa sögu, svo senni/ega hef-
urðu ekki /esið hana í Vikunni, og
þvi getum við ekki birt hana fyrir
þig, þó við fegin vildum. — Það
væri nú sennitega svotítið erfitt
fyrir Póstinn að þykkna undir be/ti,
af eðlilegum orsökum (sem Póst-
urinn einn veit), og enn erfiðara
fyrir Vikuna. En eins og þú sérð
nú, er Pósturinn farinn að þreiða
fremur ve/ úr sér, svo a//t stendur
tit þóta. Mér finnst ekki, að
poppþátturinn mætti hverfa, og
þaðan af síður ,,myndade//u-
sögurnar" ____ og auglýsingarnar
verða að vera ti/ staðar í þ/aðinu,
svo verð Vikunnar fari ekki upp úr
ö//u va/di - þér finnst hún nú
nógu dýr samt/ Það eru eflaust
fleirum en þér, sem leiðast þessar
strákaspurningar, en eitthvert
verða blessaðar stúlkurnar að
leita. Persónulega finnst mér Hfið
ekkert alltof langt - en það er rétt
hjá þér, að það lengist ekki við að
,,skriða upp írúm"! Jú, jú, svo er
ég alveg sammála þér, að það á að
varðveita likama sinn og hei/su
eftir bestu getu. Ég man nú ekkert
eftir þessum verslunarmönnum
þínum, svo ég veit ekki hvort mér
finnst það sama og þér. Helga
b/essunin er a/veg ágæt og hefur
nú verið svo /engi hér, að ég sé
enga ástæðu til að fá mér eitthvað
,,tæknilegra" ti/ að /osna við
nafnlausu bréfin! ___ Þetta með
vísurnar, Gunnu, Maju, Stínu
o.s.frv. __ jú, það mætti a/veg
breyta tH, en mér er alveg sama,
hvað þær heita í þessum /ögum
...nú svo er til afskaplega fallegt
kvæði, sem ber sama nafn og þú!
Ég verð nú að segja eins og er, að
mér finnst skriftin þín hreint ekkert
yndisleg, bréfið er mjög illa
skrifað, og skriftin ber vott um
alveg gifudega fljótfærni og
skapofsa. — Lifðu svo hei/ og sæ/
sjálf.
ÝMSAR SPURNINGAR VARÐ-
ANDI EITT OG ANNAÐ
Ágæti Póstur!
Er það rétt, að pillan lagfæri
óhreina, bólótta húð? Fitna allar
stelpur við að taka hana? Geturðu
bent mér á einhver sérstök
vítamín, sem gott væri að taka
inn, ef maður ætlar í megrun?
Væri rétt af mér að fara í Línuna,
til að losna við 5 kg.? Hvar er
hægt að komast í frönskunám utan
skóla, og hvað myndi það kosta? Er
hægt að komast á eitthvert
námskeið I vetur hjá Karon
samtökunum til að læra góða
framkomu, fallegt göngulag og
snyrtingu? (Ekki þó sem sýningar-
stúlka). Þarf að uppfylla einhver
skilyrði, t.d. hæð, útlit eða þyngd,
og hvað myndi þetta kosta, ef það
er hægt? Að síðustu kemur svo
loka- og aðalvandamálið: Þannig
vill til, að ég var í fáar vikur úti á
landi í sumar og kynntist strák á
balli, sem raunar er frændi bestu
vinkonu minnar. Við byrjuðum
saman, og sambandið stóð yfir í
tvær vikur, en þá fór ég heim til
Reykjavíkur. Ég var, og er enn,
ofboðslega hrifin af stráknum, og
ég veit, að hann var það líka,
a.m.k þegar við kvöddumst.
Strákurinn ætlar að koma til
Reykjavíkur ásamt vinum sínum
bráðlega og var raunar búinn að
lofa að tala þá við mig, en hvað á
eftir að gerast fram að þeim tíma
frá hans hálfu, veit maður aldrei.
Góði Póstur! Á ég að skrifa
honum eða hringja til hans, eða
leiðist strákum slíkt? Ég er svo
hræðilega hrædd um að missa
hann. Hvað get ég gert til að svo
fari ekki? Strax næsta vor ætla ég
til hans að vinna, en hvernig á ég
að láta hann ekki missa áhugann á
mér? Ég tek það fram, að hann er
mjög traustur og grandvar — alls
ekki lauslátur. Að lokum langar
mig mikið til að vita, hve gamla þú
álítur mig vera, hvað þú getur
lesið úr skriftinni og hvernig
sambandi þú spáir pilti úr sporð-
dreka og stelpu úr fiskamerki.
Hvernig vinur getur strákur úr
sporðdreka reynst fiskastelpu?
Einnig hvernig fara saman, piltur
úr voginni og stelpa úr vatns-
beranum? Ég óska þér ætíð góðs
gengis og vona einlægt, að þú
sjáir þér fært að svara þessu bréfi.
Með kæru þakklæti,
Blómarós.
PiHan er fyrst og fremst ætluð
sem getnaðarvörn, og þar sem
Pósturinn er enginn sérfræðingur
á sviði lækninga, treystir hann sér
ekki til að upplýsa þig um þetta
mál og ráðleggur þér að spyrja
lækni um þetta. Ég tel mjög
óliklegt, að allar stúlkur fitni við að
taka hana, a.m.k veit ég ekki til
þess. Hvað varðar vítamínin, tel
ég bara hollt að taka vitamin
svona yfir/eitt, hvort sem þú ætlar
í megrun eða ekki. Þú verður
aðeins að gæta þess, að það fæði,
sem þú borðar í megrunarkúrnum,
innihaldi öll þau efni, sem Hkaminn
þarfnast. Ég held þú þurfir ekki að
/eita til Línunnar tii að losna við 5
kg, — það ætti ekki að reynast
þér svo erfitt, en ef þú hins vegar
sérð engan árangur. ættirðu
hiklaust að leita þangað.
Frönskunám getur þú stundað
t.d. í Málaskólanum Mími, og
kostar námskeiðið þar kr. 25. OOO
— Námskeiðið stendur yfir i þrjá
mánuði, og er kennt tvö kvöld i
viku, tvær k/st. hvert kvö/d. Ég
náði ekki sambandi við Karon-
samtökin, en það mun vera alveg
upppantað hjá þeim i vetur. Þú
gætir þó reynt að hringja sjálf til
þeirra, siminn er 38126. Ég get
ekki imyndað mér, að það þurfi að
uppfylla nokkur skilyrði til þess að
læra það sem þú spyrð um, en
annað mál er, ef þú óskar eftir að
gerast sýningarstúlka hjá þeim. Ég
mundi láta ógert að hringja i
piltinn eða skrifa honum, bíddu og
sjáðu hvort hann hefur ekki
samband við þig, þegar hann
kemur í bæinn. Það er örugg/ega
ekki til nein örugg aðferð til að
halda við áhuga hjá fólki, annað-
hvort hefur það áhuga eða ekki,
svo þú skalt bara bíða og sjá hvað
gerist. Þetta getur Hka a/lt komið,
þegar þið hittist næsta vor og
hafið meiri tima til að kynnast.
Það er misjafnt, hvort strákar vilja
láta stelpur hringja í sig og þvi um
líkt, f/estir karlmenn eru nú fædd
veiðidýr __ og vilja hafa fyrir
hlutunum sjálfir! Þú ert svona
18-19 ára, og skriftin ber vott um
heilbrigða skynsemi og sjálfstæði
og bendir jafnframt f/7, að þú sért
framagjörn persóna. Sporðdreka-
strákur ætti að geta mótað lif
fiskaste/pu ti/ góðs, og fiska-
stelpan ætti að taka viljastyrk hans
til fyrirmyndar. Samband þeirra
ætti þvi að geta orðið gott _____
hvort heldur er I ástum eða
vináttu. Vogarstrákur og vatns-
berastelpa rug/a hvort annað í
ríminu, en þau eiga auðvelt með
að sýna hvort öðru ástúð og blíðu.
10VIKAN 43. TBL.