Vikan


Vikan - 27.10.1977, Blaðsíða 18

Vikan - 27.10.1977, Blaðsíða 18
2. HLUTI Kverkar hennar voru þurrar, þegar hún las: ..öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefir sinn tíma. Að fæðast hefur sinn tíma og að deyja hefir sinn tíma." (Prédikarinn III:I) Eini tíminn. sem handklæðið hafði verið utan sjónmáls, var á meðan hún var á gangi um garðinn. Þegar hún skildi hvað það táknaði. hljóp hún í blindni að aðaldyrunum. Hún lokaði á eftir sér og hallaði sér að hurðinni augnablik. Einhver fylgdist með greinilega mjög náið með henni. Kannski var hann ennþá þarna úti. Hvað ætti hún að gera? Alec var illa við er hringt var í hann í vinnuna og Mary, besta vinkona hennar. var örugglega að kenna. Istöðuleysið gerði hana reiða. Því skyldi hún vera hrakin af sínu eigin heimili? Hún ætlaði að iáta sem ekkert hefði skorist. Það var mánudagur, þvottadagur. Þá skyldi verða þvegið. Eftir hádegið sat hún og horfði á kortið. Hún sótti þungan ösku- bakka.sem hún setti kyrfilega ofan á það. I þetta sinn skyldi Alec fá að sjá það. Hún gekk yfir að glugganum og hrökk ósjálfrátt við. Hún var alveg viss um að þegar lakið bærðist í golunni hafi hún séð andlit í leynum milli tveggja Cupressus trjáa. Hún slengdi upp eldhúshurðinni og stefndi beint í þá átt. sem hún hafði séð andlitið. En það var farið. Hún ýtti laufum trjánna til hliðar og hallaði sér áfram, svo að hún gæti séð yfir lága girðinguna. Herra Turner birtist skyndilega þar sem hann gekk í áttina að húsvagni sínum. Ö... herra Turner... hefurðu séð einhvern á vappi i garðinum þinum?" ,.Ég hef engan séð.” ..Þú lætur okkur kannski vita. ef þú skyldir sjá einhvern?” Sara gekk hægt eftir stignum hiá bílskúrnum. Þetta var löng stein- bygging. Fjærst og næst veginum var litil geymsla sem venjulega var læst. Hún varð þvi hissa á að sjá dyrnar opnar í hálfa gátt og strax á eftir undruninni kom óttinn. Gæti óþekkti gægirinn verið þar núna. Hún færði sig eins hljóðlega og mögulegt var í áttina að geymsl- unni. Þegar hún var komin nógu nálægt stóð Sara eitt augnablik og safnaði kjarki. teygði sig síðan og reif upp hurðina. Með aðgætni kíkti Sara á bak við hurðina. Hún sá enga hreyfingu. Hún steig fram með nokkrum létti. Hún stóð þarna um stund þar til hún var þess fullviss að enginn væri þar. Henni létti og hún sneri sér til að fara aftur út. Um leið varð hún vör við hreyfingu og hurðin skelltist. Sara stóð i niðamyrkri og barðist við lamandi óttann. Svo næstum hló hún af létti. Hún var ekki læst inni. Læsingin opnaðist innan frá. Hún gat gengið út. þegar hana lysti. Hún ætlaði samt að biða til að komast yfir óttann. Þvi að hún var viss um að þetta hafði ekki verið slysni. Og hún varð ekki hið minnsta undrandi þegar hún kom aftur til eldhússins. og sá að öskubakkinn var enn á borðinu, en kortið var horfið... Sara var ekki alveg með sjálfri sér aftur fyrr en rétt áður en Alec var væntanlegur heim. Hún var ennþá nokkuð róleg. Þótt atburðir morg- unsins hefði valdið henni ótta höfðu þeir þó gefið henni nokkru fullvissu um að sá, sem léki hana svo grátt, ætlaði sér ekki að meiða hana líkamlega. Næg tækifæri höfðu verið til þess. Eftir atvikið í geymslunni hafði hún ákveðið að ef þetta átti að verða taugastrið, þá ætlaði hún sér að vinna það. Hún komst samt fljótt að því að auðveldara var að taka þessa ákvörðun heldur en að standa við hana og það sem eftir var dagsins notaði hún til að hugsa málið. En af hverju skyldi einhver vilja hræða hana? Hver svo sém þessi manneskja var, virtist hún hafa eitthvert innsæi í hugsanir Söru. ..Að fæðast hefir sinn tíma og að deyja hefir sinn tima." Orðin ómuðu i huga hennar og hún lagði handleggina ástúðlega um þaninn kvið sinn. Ekkert, alls ekkert, skyldi verða barninu hennar að meini. Hún skyldi koma i veg fyrir það! Henni var einnig mjög illa við að hafa það á tilfinningunni að hennar væri gætt. Þegar hún fór upp til að skipta um föt áður en hún færi að undirbúa kvöldmatinn, dró hún meira að segja fyrir gluggann í svefnherberginu, svo sterk var tilfinning hennar um að einhvers staðar væri þessi ósýnilegi áhorf- andi að læðast um. Áður en hún fór niður fann hún sig knúna til að líta út um gluggann einu sinni enn með það i huga að hún kæmi auga á gæginn. Bara að það væri eins saklaust og það leit út fyrir að vera. Sara andvarpaði, lét gluggatjöldin falla og fór niður að undirbúa kvöldmatinn. Hún var að afhýða kartöflurnar Hatursfull kortin voru nógu hræðileg en núna vissi Sara að sá, sem sendi þau, hafði verið inni á heimili hennar á meðan hún svaf. Hræðsla hennar óx... Öttinn hafði jafnvel lagt undir sig hennar eigið yndislega heimili. þegar hljóðið í vörubíl herra Turners varð henni uinhugsunar- efni. Hvað ef það væri herra Turner sem væri að reyna að hræða hana? Því meira, sem hún hugsaði um atburðina, því rökréttara virtist það vera. Hann hafði betra tækifri til að fylgjast með henni en nokkur annar. Það hefði verið hægðarleikur fyrir hann að koma kortunum fyrir, það hefði auðveldlega getað verið hans andlit, sem hún sá bak við Cupressus-runnann, hann hefði vel getað farið inn í geymsluna á undan henni. Timinn hafði verið nægur. Eina vandamálið var að hún gat enn ekki séð neina mögulega ástæðu fyrir þvi að hann langaði til að hræða hana. En einhvern veginn var hinn kunnugi herra Turner ekki eins ógnvekjandi og óskiljanlegar hótanir ókunnugs manns án and- lits. Um kvöldið minntist hún á þetta vð Alec yfir kaffibolla. Hún vildi siður spilla afslöppuðu og friðsam- legu andrúmsloftinu en vissi að hún mátti til. Eaunverulegur friður var ekki fyrren þau höfðu náð einhverj- um skilningi á þessu, svo að hún andaði djúpt og tók til máls ,,Alec? Manstu eftir kortinu, sem ég fann á föstudaginn? Ég fékk annað í dag.” Rödd hennar titraði af áreynslunni við að halda sér rólegri, að vera í jafnvægi. Hann horfði á hana, vantrúaður. ..Segðu mér.” Hún sagði honum í fljótu bragði frá atburðum dagsins og á meðan hún talaði fann hún, hvernig mótspyrna hans minnkaði, hvernig viðhorf hans breyttist. „Seinna þegar ég fór aftur inn i eldhús var kortið farið,” lauk hún við. Strax aftur á varðbergi. „Farið? Aftur?” Það sem fólst í þessu „Aftur?” var óbærilegt. „En skilurðu ekki, Alec, það mátti búast við því. Ég býst við að það sé ástæðan fyrir því að ég var lokuð inni i geymslunni — svo að hann gæti fundið kortið og fjarlægt það." „En þvi skyldi hann vilja það?” , ,Til að hræða mig og rugla ennþá meir, auðvitað. Til að gera mér erfiðara fyrir, til að tryggja á þennan hátt að ég hafi ekkert sönnunargagn að sýna þér. Gerðu þaö Alec, reyndu að sjá? Þú leikur eftir hans höfði.” Alec var ergilegur: „Það er ekkert vit i þessu. Því skyldi þessi maður — ef hann er til — vilja hræða þig?" „Hvað meinarðu — ef hann er til?” Hún stóð upp mjög snögglega. „Þú trúir mér ekki, er það? Þú trúir engu af þessu. Hvers vegna? Er ég vön að ljúga?” Þegar Alec hristi höfuðið missti hún alveg stjórn á sér og öskraði á hann: „Því ætti ég þá að vera að þvi núna? Ég veit ekki af hverju þetta er að gerast, en það bara er að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.