Vikan - 27.10.1977, Qupperneq 40
STJÖHMJSRl
llruiurinn 2l.mars 20.a iril
Smáferðalag, sem þú
hefur skipulagt, fer á
allt annan veg en þú
hafðir gert ráð fyrir.
Láttu ekki skyld-
menni þín skipta sér
af einkamálum þin-
um, það fer best að
annast þau sjálfur.
Naulirt 2l.april il.mai
Ástarævintýri, sem
þú hefur staðið i,
virðist vera að kom-
ast á alvarlegt stig.
Athugaðu vel, hvort
það sé það, sem þú
óskar eftir, og láttu
skynsemina verða
tilfinningunum yfir-
sterkari.
Tuhurdrnir 22.mai 2l.júni
Einhver reynir að
freista þín að kaupa
eitthvað, sem þú
hefur ekki ráð á og
hefur auk þess engin
not fyrir. Láttu ekki
innantómt hjál hafa
áhrif á ákvarðanir
þínar.
kr;'hhinn 22. juni 2.V júli
Vertu kátur og glað-
ur, og gættu þess að
særa ekki tilfinning-
ar ákveðinnar per-
sónu. Sem betur fer
geturðu verið blíð-
lyndur, ef þú vilt það
við hafa. Heillatala
er 4.
Ljónirt 24.JÚIÍ 24. iijúsl
Þú ættir að reyna að
vera meira úti við, ef
veður leyfir, svo
heilsa þín komist í
samt lag aftur. Það
getur verið, að þú
þurfir að taka mikið
tillit til óska fjöl-
skyldu þinnar.
Nú færðu tækifæri
til að eignast lang-
þráðan hlut. Ef þú
hefur lokið skyldu-
störfum þinum,
skaltu slappa af og
njóta lifsins í ríkum
mæli. Happalitur er
brúnn.
\<»i*in 24.\cpi. 2.Vnki.
Þetta er góður timi
fyrir þá, sem vinna
andleg störf. Ráða-
gerð, sem þú hefur á
prjónunum, mun
mistakast og valda
þér miklum von-
brigðum. Farðu út
að skemmta þér um
helgina.
Slcingcilin 22.dc>. 20. jan.
Það fer heldur að
birta yfir umhverfi
þinu í þessari viku,
og eitthvað, sem þú
hefur lengi hlakkað
til, kemur fram í
dagsljósið. Þú ættir
að gefa þér meiri
tíma til hvíldar.
SpnrAdrckinn 24.okl. !.Mnói.
Einhver þér yngri
virðist heldur á-
hyggjufullur þessa
dagana og þarfnast
hjálpar þinnar. Þú
ættir að gefa þér
tíma til að sinna
þessari persónu —
þú munt fá það
endurgoldið um siðir.
\aln\bcrinn 2l.jan. lO.fehi.
Þessi vika verður
fremur góð og lífleg.
Þó fer ákveðin per-
sóna í taugamar á
þér, vegna þess hve
stórt hún litur á sig.
Þú þarft á skapstili-
ingu að halda heima
fyrir.
KoiimaAurinn 24.nói. 21.dcs.
Þú ættir að fara í
fjölskylduheimsókn í
þessari viku, það
yrði vinsælt. Þú
færð bréf með leiðin-
legum fréttum, en
síðar færðu upplýs-
ingar, sem hjálpa þér
út úr ógöngunum.
Fiskarnir 20.fchr. 20. mars
Til að koma málum
þinum í framkvæmd,
ættirðu að þiggja
samvinnu, sem þér
býðst.Það mun auð-
velda þér hlutina að
mun. Síðari hluti
vikunnar verður við-
burðaríkur.
Þau bíða mín: Mama, Papa,
systirin Cassandra og Stepiianos
bróðir. Ég bíð þess, að þau bjóði
mig velkomna, og ég sé vanþóknun
í augnaráði þeirra.
,,Þú sagðist ætla að koma með
sterklega eiginkonu frá eyjunni,
Josef, einhverja, sem myndi taka
við störfum minum í eldhúsinu”
virðist augnaráð Mama segja.
,,Þú sagðist ætla að finna
greindarlega eiginkonu, Josef,
reiðubúna að taka við afgreiðslu-
störfunum við peningakassann af
mér,” virðist Cassandra systir
segja.
,,Þú sagðist ætla að finna fallega
stúlku, sem myndi draga að fjölda
viðskiptavina í veitingasöluna okk-
ar til að borða og drekka,” virðist
Stephanos bróðir segja.
Ég er ekkert af þessu. En hafi
þau verið dregin á tálar, hvað
eiginleika mína snertir, hefur Josef
ekki siður dregið mig á tálar.
Þetta er ekkert glæsihótel, sem
ég er komin til, heldur leiguhúsnæði
og veitingasala. Þrátt fyrir að ég sé
ekki sterkleg, eða greindarleg, eða
falleg, get ég þó lesið, og ég hef
komið auga á nafnið fyrir ofan
dyrnar.
Aðeins Papa kemur á móti mér.
„Svona, réttu mér þetta.” Pinkill
minn er í höndum hans. ,,Þú ert
þreytt." Hann fer með mig í lítið
þakherbergi, sem ég mun halda til
í, þar til éggiftist Josef. ,,Þú verður
hamingjusöm hjá okkur,” segir
hann og lítur niður á inniskóna sína,
því hann kemur sér ekki til að líta í
andlit mitt og sjá sannleikann, sem
hann gerir sér þegar grein fyrir.
Hamingjusöm? Josef er farinn
að fá sér í glas með félögunum. Hann
spyr mig ekki, hvort ég vilji, að
hann verði hér hjá mér fyrsta
kvödlið mitt á ókunnugum stað. Ég
er einföld sveitastúlka, og því er ég
ekki verð þess, að tekið sé tillit til
tilfinninga minna.
í skápnum er hvítt silki, sem
verður notað í brúðarklæðnað.
Hvítt fyrir hreina mey. En ég
missti minn meydóm í kofa hátt
uppi í fjöllunum, og aftur finn ég
fyrir hræðslu.
Tíminn fram að brúðkaupi okkar
liður. Stór kirkjuklukka hringir frá
kirkju í nágrenninu, og mér verður
hugsað til annarra klukkna, hljóms-
ins frá geitabjöllunum í fjöllunum
langt héðan.
Hvítt fyrir hreina mey. Hendur
mínar grípa um silkipilsið á
brúðarkjólnum mínum. í garðinum
fyrir aftan veitingasöluna eru
vintunnur. Þar er bæði ouzo og
mikið af retsina. Josef er hrifinn
af retsina og er mjög hamingju-
samur.
Hvítt fyrir heina mey. Ég þarf
ekkert að óttast. Josef hefur
drukkið svo mikið retsina, að hann
veit ekkert, hvað hann er að gera.
„Vertu varkúr við hana,” biður
Papa hann.
Vertu varkár. Ég tek þessa
viðvörun til mín. Neglur minar rífa
hörundið á öðrum fætinum þar til
fingur mínir verða löðrandi. Um
morguninn er talsvert blóð i
brúðarlökunum okkar. Ég er sveita-
stúlka og ég veit við hverju er búist.
Hvernig get ég geðjast þessari
fjölskyldu, sem ég hef tengst?
Mama vill ekki aðstoð mina i
eldhúsinu. Ég skil ekki.hvernig hún
meðhöndlar matinn — hún hirðir
leyfarnar af diskum viðskiptavin-
anna og ber þær fram handa
útlendingunum. Hún segir þeim, að
þessi réttur sé dæmigerður fyrir
þetta hérað, en það er ekki satt.
Cassandra vill ekki láta mig
hjálpa sér við peningakassann, hún
segir, að ég skilji ekki, hvernig
skipta skal erlendum peningum og
muni því gefa rangt til baka, en ég
veit að hún gerir það einmitt sjálf.
Stephanos vill ekki láta mig bera
fram, því hann segir að ég hafi tvær
vinstri hendur.
Hvemig get ég gert þeim til geðs?
Morguninn sem ég sagði þeim, að
ég héldi, að ég ætti von á barni,
reigði Josef sig eins og ungur hani i
miðjum hænsnahópi. „Ég er mikill
maður,” sagði hann montinn.
„Bráðlega eignast ég son.”
„Það verður ef til vill ekki sonur.
Kannski er það ekki lifandi,” sagði
Cassanra ónotalega.
En ég veit, að barnið mitt verður
sonur, og ég veit, að það er á lífi,
því það er nú þegar farið að sparka.
„Hún er svo grönn og fingerð,
hún getur aldrei haldið þvi þessa
níu mánuði,” bætir Mama við.
Vetrarregnið kemur og fælir
ferðamennina á brott og skilur
okkur eftir skjálfandi við arininn.
En vorið kemur á ný.
Það kemur mjög snögglega til
min.
Svefnherbergið virðist troðfullt af
kvenfólki. Þær öskra til mín og
segja mér, hvað ég á að gera. Ég
hlusta ekki á þær. Ég hef séð dýrin í
fjöllunum eignast afkvæmi. Ég hef
séð fæðingarhríðir þeirra og stund-
um hef ég hjálpað þeim.
Fæðingin stendur ekki lengi yfir.
Ég er sveitastúlka og sterk. Óp
kvennanna eru svo hávær, að ég
fæ varla greint fyrstu gráthljóð
bamsins mins. „Það er drengur.
Drengur,” hrópa þær. „Jósef er
orðinn faðir, og það er sonur.”
Þær þvo barnið og leggja hann í
fang mitt. Þau em nú þegar farin að
fagna niðri. Ég heyri rödd Josefs:
„Samgleðjist mér, vinir mínir. Ég
hef eignast son.”
40VIKAN 43. TBL.