Vikan - 26.01.1978, Page 3
Það var einkennileg tilfinning að
lenda á Gran Canaria í 19 stiga hita
um miðja nótt, eftir að hafa barist
gegn storminum út að flugvélinni á
Keflavíkurflugvelli, og mátt hafa
sig allan við að fótbrotna ekki í
hálkunni. Það væri hreint ekki svo
vitlaust að setja upp pelsaleigu á
Keflavíkurvelli, því það var fremur
óþægilegt að burðast með hlýjar
yfirhafnir, peysu og annað slíkt
með sér. Að sjálfsögðu hékk þetta
svo inni í skáp, þar til haldið var
heim að nýju — en þá kom það
líka svo sannarlega að góðum
notum!
ALLT FYRIR FERÐAMANNINN
Kanaríeyjar eru sjö eyjar, sem
L
liggja á milli 27. og 29. gráðu
norðlægrar breiddar og 13. og 18.
gráðu vestlægrar lengdar. Vestur-
eyjarnar eru Tenerife, La Palma,
Gomera og Hierro, en austur-
eyjarnar eru Lanzarote, Fuerte-
ventura og Gran Canaria, en til
þeirrar eyju beina Samvinnuferðir
ferðum sínum.
Árlega streymir fjöldi ferða-
manna til Gran Canaria. Flestar
þjóðir kjósa að heimsækja eyjuna
að vetri til, s.s. Svíar, Norðmenn,
Hollendingar, Englendingar, Þjóð-
verjar — að ógleymdum Islending-
um, en Frakkar kjósa heldur að
heimsækja eyjuna að vori til.
Fjölmargir ferðamannabæir hafa
skotið upp kollinum á Gran
Canaria á undanförnum árum. Allt
er gert til að líf ferðamannsins sé
sem þægilegast, hvarvetna má sjá
nýtískuleg hótel, og verslunar-
hverfin eru ekki síðri en í París eða
London. Verð á vörum er að vísu
fremur hátt, enda reiknað með
því, að fólk hafi nægilegt fé
handanna á milli í sumarleyfum!
Lítið annað er hægt að hafast að í
ferðamannabæjunum en að sóla
sig, enda sennilega tilgangur
Einkennandi fyrir
ferðamannastaði Gran Canaria:
Gamall maöur með
asnann sinn bíður brosandi við
áætiunarbifreiðirnarí von
um að vinna sér inn nokkra peseta.
Mariuhkneskið / Teror.
Ekki fékkst leyfi til að mynda
Hkneskið nær, en ef vel
tekst ti/með prentunina, má sjá
glampann frá dýrgripunum, sem
prýða líkneskið. Veggir kirkjunnar
eru úr tré og mynstur allt
handskorið.
flestra með Kanaríeyjaferð að
hvílast og fá lit á fölan kroppinn.
Þó eru þarna að sjálfsögðu tennis-
vellirog milli strandanna Playa del
Inglés og Maspalomas eru tveir
átján holu golfvellir. Mörg góð
söfn eru í höfuðborginni, Las
Palmas, en auk þess eru þar
fjölmargar fallegar kirkjur, sem
gaman er að skoða, fallegir
skemmtigarðar og margt fleira.
Auðvelt er að komast til höfuð-
borgarinnar með strætisvögnum,
sem ganga á 15 mín. fresti frá
strandbæjunum.
„HUNDAEYJAR"
Lítið er vitað um, hvenær
eyjarnar byggðust, en margir telja
þær eiga uppruna sinn að rekja til
goðsagnaeyjunnar Atlantis. Aðrir
telja, að þær hafi eitt sinn verið
hluti af meginlandi Afríku, en
flestir hallast að því, að þær hafi
myndast eftir neðansjávargos. Þó
er vitað með vissu, að árið 1314
fann rannsóknarleiðangur frá
Portúgal fjórar eyjar, Fuerteven-
tura, Hierro, La Palma og Gran
Canaria. Ekki virðist þeim hafa
litist vel á eyjarnar, ,
a.m.k. námu þeirekki I
land þar. Nafn eyjanna — w