Vikan - 26.01.1978, Blaðsíða 5
S»L 1
3ft
Séö ofan í etdgíginn frá toppi eldfjallsins Ca/dera de Bandama.
Falleg sjón, sem sjá má hvar sem er / fjollum Gran Canaria
4. TBL. VIKAN 5
Enginn getur ieyft sér að
heimsækja spánskt umhverfi,
án þess að sjá spánska dansara
leika listir sínar, og hér sjáum við
eitt atriði þeirra.
einkennandi fyrir spánskt um-
hverfi, staðurinn er allur byggður
upp með það fyrir augum, að
feröamaðurinn njóti sem mestra
þæginda. Þrjú stór verslunarhverfi
eru á staðnum, og bjóða verslanir
þar að mestu upp á nýtískulegar
vörurfrá Evrópu — en eins og fyrr
sagði er verðið tiltölulega hátt. Á
Playa del Inglés er aðeins eitt
spánskt hverfi, San Fernando, og
þar eru haldnar grísaveislur fyrir
ferðamenn. í San Fernando býr
hluti starfsfólksins á P.d.l., en
annars kemur það víðs vegar að af
eyjunni. Flest starfsfólkið býr í
þorpinu Vecindario, sem er í
u.þ.b. 20 mínútna akstursleið frá
P.d.l. Að afloknum vinnudegi fer
þetta fólk heim í þorpið sitt, og þá
sést lítið af innfæddum eyjar-
búum, nema þá í starfi, því
sennilega hefur það fengið nóg af
ferðamönnum yfir daginn og er
fegið að geta dregið sig í hlé.
Bæarjarstjórnin á P.d.lnglés hefur
aðsetur sitt í þorpinu San Barol-
ome uppi í fjöllunum skammt frá.
Þeir Kanaríeyjabúar, sem við
hittum t.d. á skemmtistöðum voru
flestir frá sveitaþorpum, og
bjuggu á því hóteli, sem þeir unnu
á.