Vikan


Vikan - 26.01.1978, Qupperneq 9

Vikan - 26.01.1978, Qupperneq 9
— Það er mín skoðun, að íslenska landsliðið eigi að geta unnið landslið Danmerkur og Spánar í Heimsmeistarakeppninni, segir Jón H. Karlsson, fyrirliði landsliðsins, í viðtali við Vik'una. — Janus Cerwinsky, hinn pólski þjálfari okkar, hefur hins vegar óbilandi trú á, að auðveldasti leikurinn verði á móti Rússum, en róðurinn verði erfiðastur gegn Dönum. Mér virðist þannig, að ef við Janus leggjum saman, eigi ísland að vinna alla þrjá leikina í riðlakeppninni. Við skulum bara vona, að þessi verði niðurstaðan, segir Jón og brosir — sennilega af tilhlökkun. Sextán bestu handknattleiksþjóðir í heimi hefja í dag, 26. janúar, með sér úrslitaglímu um hver þeirra sé í rauninni sterkust. Íslendingar leika í riðli með Sovétmönnum, Spánverjum og gestgjöfunum, Dönum. Vissulega allt erfiðir andstæðingar, og í dag verður leikið gegn „Birninum úr austri" — hinu sterka og vel agaða liði Rússa. Jón H. Karlsson, eða Ponni, eins og hann er kallaður, er 29 ára gamall, varð það í fyrradag, þann 24. janúar. Hann hefur leikið 65 landsleiki fyrir islands hönd í handknattleik og verið fyrirliði liðsins frá því í fyrravetur. Jón leikur með Val og varð islandsmeistari með félagi sínu bæði ihnanhúss og utan 1977. Jón hef- ur viðskiptafræðimenntun og er framkvæmdá- Stjóri hjá versluninni Teppalandi við Grensás- veg. Jón er kvæntur Erlu Valsdóttur, og'eiga þau þrjár dætur, Tinnu, Sif og Þóru Dögg. Þetta eru nokkrar persónulegar upplýsingar um kappann Jón Karlsson. Við settum okkur niður dagstund fyrir nokkru og ætluðum okkur að spjalla um heima og geima. Útkoman varð reyndar sú, að handknattleikurinn kom alltaf upp á yfirborðið aftur og aftur, enda ofarlega i huga landsliðsfyrirliðans dagana áður en haldið var utan. Við komum þó einnig annars staðar við, en að sjálfsögðu verður að byrja að greina frá handknattleiksferlinum. — Ætli ég hafi ekki verið 10 ára þegar ég byrjaði í handboltanum og þá með iR, segir Jón Karlsson. — ég átti reyndar heima í Víkingshverfinu, en félagi minn, Gunnar Ólafsson, tók mig með sér á æfingar hjá ÍR á gamla Hálogalandi. Við voru náttúrlega bara smápollar og fengum lítið að vera með á þessum æfingum, en kallar eins Þórarinn Tyrfingsson læknir og Júlíus Hafstein, gjaldkeri HSÍ, voru þá aðalmennirnir og litu okkur hálfgerðu hornauga. — Heimsmeistarakeppninárið1961 ogfrábær árangur islands þar kveikti síðan bálið, og það má segja, að ég hafi verið ofurseldur hand- knattleiknum síðan þann vetur. í leikfimi hjá Árna Njálssyni var mikill áhugi á handknatt- leiknum, og á bekkjamótum skírðum við liðin eftir sterkustu liðum í heimi í þá daga- — Ég var bara einn vetur í IR, en við Gunnar Ólafsson gengum þá í Val, og var það mest fyrir tilstilli Kristjáns Karlssonar, heldur Jón Rætt við Jón H. Kar/sson fyrirliða ís/enska iandsiiðsins í handknatt/eik. áfram. — Þá var Þórarinn Eyþórsson að byrja sinn þjálfaraferil hjá Val, og hann hefur margoft sagt mér, að honum hafi alls ekki litist á blikuna, þegar þessir guttar mættu á fyrstu æfinguna. Algjörlega skotóðir menn, að því er Tóti hefur sagt, og hann byrjaði strax að reyna að halda aftur af okkur. Ég hef verið svo lánsamur að vera undir stjórn Þórarins að einhverju leyti í öllum flokkum, og hann hefur átt mikinn þátt í að gera þó þetta úr manni í íþróttinni, en honum hefur alveg mistekist að halda aftur af skotgræðginni, segir Ponni og hlær. ÞÁ VAR EKKI LENGUR SAMI LJÓMINN YFIR ÞESSU - ALLT SVO SJÁLFSAGT Jón Karlsson lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki Vals árið 1965, og var hann þá 16 ára gamall. Fór þessi leikur fram á Hálogalandi, og ekki fór mikiö fyrir nýliðanum í Valsliðinu. Nú hefur Jón rétt tæplega 300 leiki með meistarflokki Vals að baki, og nokkrir 4. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.