Vikan - 26.01.1978, Page 17
ng og Pekingönd
Norður-Kína íLondon
Reyndust þeir síðar hafa orðið
efstirá vinsældalista sumra veislu-
gestanna.
Nú var skammt stórra högga á
milli. Á borðinu birtust snögg-
steiktir smábitar af kjöti og fiski,
„Quick Fried Dices of Seafood &
Meat," og reyndust þeir vera
lægð milli hæða í veislunni.
Ennfremur komu blandaðar,
þunnar kjötflögur með grænum
og rauðum pipar, „Mixed Beef
With Green Pepper & Chili," og
voru þær prýðilegar.
Um leið kom á borðiö saxaður
koli í sæt-súrri sósu, „Minced
Sole in Sweet-Sour Sauce,"
góður á bragðið.
Hið milda sætsúra bragð kolans
var nokkuð dæmigert fyrir þá
útgáfu Peking-matreiðslu, sem
þarna var kynnt.
Borðgestum fannst þetta bragð
of áberandi til að þeir gætu fallist
á, að Peking-matreiðslajafnaðistá
við franska, en voru þó sammála
um, að allur þessi matur væri
einstaklega góður.
PEKINGÖND KOM SÍÐUST
Hápunkturinn var svo partur af
Peking-önd, sem þjónninn kom
með á borðið og krafsaði síðan í
litlar tægjur með gaffli sínum.
Með öndinni bar hann fram lauk-,
gúrku- og andakjötssósu og
pönnukökur, hvítleitar að kín-
verskum hætti.
Við opnuðum pönnukökurnar
og helltum sósunni á þær. Síðan
hrúguðum við andakjötstægjun-
um á þær og rúlluðum pönnukök-
unum saman. Stýfðum við þær
síðan úr hnefa, svo sem við sáum
Kínverja við næsta borð gera.
Ekki fannst okkur öndin eins
góð og sumir aðrir réttir, sem fyrr
komu í röðinni,, svo sem svína-
rifjuendarnir og þunnu kjötflög-
urnar.
Matarsyrpa átta rétta kostaði 5
pund á mann. Veislugestirnir fjórir
drukku með þessu tvær flöskur af
víni hússins, og kom það reikn-
ingnum með þjórfé upp í 30 pund
fyrir fjóra. Að öllu samanlögðu
kostaði því sú veisla, sem hér
hefur verið lýst, ekki nema 2900
krónur á mann að þjórfé með-
töldg.
Þrátt fyrir alla inntökuna voru
veislugestir léttir í spori, þegar þeir
yfirgáfu matstofuna. Kominn var
tími til að hugsa til næsta áfanga í
heimsreisunni miklu. Við ætlum
að gera það á viku, sem Phileas
Fogg gerði á áttatíu dögum, enda
höfum við uppgötvað, að það er
hægt að gera, án þess að fara frá
London.
Næsti áfangastaður í hádeginu
á morgun er ítalskur. Sú matar-
gerðarlist hefur löngum verið van-
metin vegna reisnar nágrannans,
hinnar frönsku. Við segjum frá
þeirri veislu í næsta tölublaöi
Vikunnar.
(Soho Rendezvous, 21 Romilly
Street, W 1, sími 437-1486. Aðrir
góðir Pekingstaðir í borgarmiðju
eru Peking, 3 Westbourne Grove,
W 2, sími 727-4328 og Gallery
Rendezvous, 53 Beak Street, W
1, sími 734-0445).
Jónas Kristjánsson
I