Vikan - 26.01.1978, Page 41
úr handskjólinu og stakk henni inn í
hanskann hans, stakk höndinni inn
í lófa hans og hvíldi hana þar. Jú,
hún vissi, nú, hvemig honum leið.
— Ég vil gera breytingar á
húsinu heima, sagði hann allt í einu.
— Mig langar til að hefjast handa,
sem fyrst. T.d. að byggja þak yfir
stéttina utan við borðstofuna og
gera svalir þar ofan á. Og svo
getum við innréttað okkur stórt
svefnherbergi uppi í kvistinum.
Gamla svefnherbergið okkar og
barnaherbergið geta verið barna-
herbergi. Sara-Kajsa gœti sofið þar
hjá börnunum, þá verðum við eltki
fyrir ónœði að óþörfu. Ég vil, að
húsið verði eins og nýtt með þér.
Ebba fann roðann hlaupa fram í
kinnarnar. Hún minntist fyrstu
næturinnar, þá hafði hún legið og
hugsað um það, að þetta hefði líka
verið svefnherbergi Lúkasar og
fyrri konunnar hans. En hún hafði
ekki viljað segja neitt.
Hún lét sér líka nægja að kinka
kolli núna.
— Við skulum fara og taka mál
strax á morgun, sagði Lúkas
ákafur. — Mattías vill fá eigið
herbergi eftir nokkur ár, og systkini
hans eiga ekki heldur að þurfa að
búa eins og í kanínubúri. Kannski
að við þurfum að byggja álmu við
húsið.
Ebba andvarpaði létt. Henni varð
hugsað heim. Það var lítið hús í
garðinum, bak við bjarkirnar milli
rósa- og blómarunna. Amalía bjó
þar með fóstmnni sinni. Hvemig
skyldi Amalíu líða — myndi henni
nokkum tíma batna? Þau urðu að
reyna að gera henni lífið eins
auðvelt og bjart og þeim var unnt.
En hún vildi ekki tala um litlu
stúlkuna við Lúkas núna.
— Jæja, elskan mín, sagði Lúkas
og sveigði upp að tröppunum á
Steinum. Steinarnir spyrntust und-
an hófum hestanna og þeir frýsuðu
hátt. — Nú emm við komin heim
aftur. Við snémm heim saman.
Hann hoppaði niður úr vagninum
og lyfti henni niður, áður en nokkur
hafði opnað dymar. Það var orðið
skuggsýnt, en birtan frá gluggum
hússins virtist bjóða þau velkomin.
Dymar opnuðust, og jómfrú
Gréta kom hröðum skrefum til móts
við þau.
— Guði sé lof, að húsbændumir
komu heim i kvöld, sagði hún og
var mikið niðri fyrir. — Við höfum
átt i miklum erfiðleikum hér í dag.
Fröken Aberg kom með ókunnugan
herra í fylgd með sér um hádegis-
bilið, og hann sagði, að þau myndu
ekki hreyfa sig burtu, fyrr en
húsbændurnir kæmu heim. Hann
hefur verið reglulega ókurteis, og
Sara-Kajsa hefur ekki fengið nokk-
urn frið með Mattías litla fyrir
honum. Ég skil hvorki upp né
niður... og ég vissi ekki, hvað til
bragðs skyldi taka. Viljið þér,
herra, vera svo góðir og tala við
þau, þau sitja inni i bókasafninu.
Ebba var náföl, og Lúkas tók
tröppurnar í nokkmm skrefum. En
áður en hann náði alla leið, vom
dymar opnaðar í fulla gátt, og þvert
yfir anddyrið starði hann beint inn
í dimmt, æst andlit. Á sama hátt og
hann hafði séð ættarmót með Ebbu
og systkinum hennar, sá hann nú
ættarmót með hinum ókunna manni
og syni sínum.
EBBA stóð eins og lömuð neðan
við tröppumar. Henni fannst ísköld
hönd nísta hjarta sitt, og tilfinning
vonleysis og ótta greip hana
heljartökum. En svo vann hún bug
á angistinni, og styrkur og þróttur
forfeðranna efldist. Hún gekk
rólegum skrefum upp tröppumar og
staðnæmdist við hlið eiginmanns
síns. Framhald í næsta blaði.
þettageríég
fyrirþig
Aðstoða við að orða auglýsingu þína,
ef þú óskar. Svara í síma fyrir þig.
Veiti fyrirspyrjendum upplýsingar
um það sem þú auglýsir og
tek við tilboðum sem berast.
Njóttu góðrar þjónustu ókeypis.
Opið til kl. 10 í kvöld.
WIAÐW
Dagblaðið, smáauglýsingaþjónusta. Afgreiðsla Þverholti 11, simi 27022
Mi
:
:
HB
:
.
■
• Wmm
Wm m
4. TBL. VIKAN 41