Vikan


Vikan - 26.01.1978, Page 45

Vikan - 26.01.1978, Page 45
f , Smásaga eftir EINAR LOGA EINARSSON öggæslan á Löngueyri Vandræðin á Löngueyri hófust, þegar nýja fiskvinnslan tók til starfa. Aðkomumennirnir heimtuðu böll i landlegum, og þá leið ekki á löngu, uns þörf varð fyrir lögregluþjón — og svo annan — og annan — og enn einn. Gústi i Koti hækkaði í tign með hverjum deginum sem leið. Það var fljótt að spyrjast út. Litla, friðsæla þorpið Langaeyri var ekki lítið og friðsælt lengur. Að vísu hafði það ekki stækkað hvað fer- kílómetra snerti. Það hafði stækkað einhvem veginn ósýnilega. Eitt- hvað hafði gerst, sem stækkaði það, og íbúamir gerðu sér ekki fyllilega grein fyrir. Á móti hinu varð ekki mælt, að það var ekki að öllu leyti friðsælt lengur. Og hvað hafði þá gerst? Segja má, að þetta hafi byrjað, þegar nýja fiskvinnslan hóf starf- semi sína. Þá hófu aðkomubátar að landa þama. íbúamir höfðu verið vanir að skemmta sér á hinum árlegu Þorrablótum, árshátíðum kvenfélagsins og ungmennafélags- ins, og svo var auðvitað réttarballið á haustin. Dansleikir þessir höfðu farið tíðindalaust fram, og þegar þeim lauk höfðu íbúamir farið hver til síns heima, sáttir við hvem annan og tilveruna. En í landlegum heimtuðu aðkomumennimir ball, og auðvitað fengu þeir ball. Það var þá, sem ósköpin byrjuðu. Það urðu slagsmál, meira að segja blæddi sumum. Engin löggæsla var á staðnum, og menn máttu þakka sínu sæla fyrir, að allt endaði ekki með ósköpum. En hér þurfti eitthvað að gera. Daginn eftir fyrsta dansleikinn kom hreppsnefndin saman ó fund, til að ræða þetta nýja vandamál, og hvemig bregðast ætti við því. Hvað gerðu önnur þorp? Því var fljót- svarað. Þau höfðu löggæslu. Á fundinum var því samþykkt að stofna nýtt embætti. Það var embætti lögreglumanns. Nokkrar uppástungur komu fram um væntanlegan lögregluþjón, ogi að lokum var samþykkt að bjóða Gústa í Koti starfið. Hann var þegar kallaður á fundinn, og samþykkti þar að taka þetta að sér. Var ekki laust við að honum þætti upphefð í því, að vera fyrsti og reyndar eini lögregluþjónn staðarins. Á næsta dansleik mætti svo Gústi í nýja einkennisbúningnum sinum og með derhúfu á höfðinu. En þá skaut upp öðm vandamóli. Gestir hússins sýndu Gústa ekki næga virðingu. Þeir óttu það til að læðast aftan að honum og ýta við derhúfunni, þannig að hún annað hvort datt á gólfið, eða rann fram yfir augu hans og birgði útsýnið. Á meðan Gústi var að finna húfuna, eða koma henni í samt lag, hvarf sökudólgurinn í mannþyrpinguna og fannst ekki. Næsta dag hélt Gústi á fund hreppstjóra, sem var sjólfskipaður lögreglustjóri, og bar sig aumlega. ,,Nú,” sagði hreppstjórinn, „við fáum bara annan lögregluþjón. Þið standið betur að vigi tveir en einn.” Gústa leist vel á það. Þó var eitt, sem lá honum ó hjarta. Hann spurði, hvaða embættisheiti nýi lögregluþjónninn ætti að fá. ,,Nú, hann verður lögregluþjónn eins og þú.” ,,En, er það sanngjamt, hrepp- stjóri, að hann standi mér jafnfætis í metorðastiganum, þar sem ég hef þó meiri starfsreynslu?” Hreppstjórinn hugsaði sig um. Hann samþykkti með sjálfum sér, að nokkuð væri til í þessu. Svo glaðnaði yfir honum, og hann sagði: „Við látum hann heita aðstoðar- lögregluþjón.” Þetta gat Gústi sætt sig við, og hélt glaður heim ó leið. Á næsta dansleik fór allt á sömu leið. Hreppsnefndinni skildist, að tveir lögregluþjónar vom ekki nóg, svo samþykkt var að ráða þann þriðja. En þá vom það stöðuheitin, sem þurfti að taka til meðferðar. Að lokum var samþykkt, að Gústi skildi vera yfirlögregluþjónn, að- stoðarlögregluþjónninn lögreglu- þjónn, og nýi maðurinn aðstoðar- lögregluþjónn. Þrátt fyrir þetta reyndist það þorpinu ekki meira en svo nóg að hafa þrjá lögregluþjóna, og enn á ný var manni bætt við. Gústi var áfram yfirlögregluþjónn, lögreglu- þjónninn var gerður að aðstoðar- yfirlögregluþjóni, aðstoðarlögreglu- þjónninn að lögregluþjóni og nýi maðurinn var gerður að aðstoðar- lögregluþjóni. Undu svo allir glaðir við sitt. Reyndist það þorpinu nóg um hríð að hafa fjóra lögregluþjóna, með yfirlögregluþjóninn i broddi fylkingar. Á dansleikjunum héldu þeir líka ávallt hópinn, og ekki þótti árennilegt að reita þá til reiði, þar sem þeir gengu valdsmannslega um, fjórir saman. En brátt kom að því, að all-alvar- legur hlutur gerðist í þorpinu. Hann var það alvarlegur, að íbúamir vissu fyrst ekki hvemig þeir óttu að snúast gegn honum. Það var eina nóttina brótist inn í litla kaupfélag- skömm í hattinn auk dóms og sektar. Gústi hugsaði sitt mál. Hann hafði staðið dyggilega við hlið yfirrannsóknarlögreglumannsins í þessu máli, og fór því fram á að verða hækkaður í tign. Það var samþykkt að Gústi yrði gerður að aðstoðaryfirrannsóknarlögreglu- 1 þjóni. Leiddi þá af sjálfu sér að aðstoðarrannsóknarlögregluþjónn- inn varð rannsóknarlögregluþjónn, yfirlögregluþjónninn aðstoðar- rannsóknarlögregluþjónn, aðstoðtu-- yfirlögregluþjónninn yfirlögreglu- þjónn, lögregluþjónninn aðstoðar- yfirlögregluþjónn, aðstoðarlög- regluþjónninn lögregluþjónn og nýr aðstoðarlögregluþjónn ráðinn. Leið svo tíminn, og alltaf fjölgaði málum, sem þurfti að rannsaka, og kom að því að yfirrannsóknar- lögregluþjónninn óskaði eftir aukn- um starfskrafti. Hreppsnefndiri þurfti ekki að kanna málið, svo mikla virðingu bar hún fyrir hæfileikum og þekkingu þessa snjalla lögreglumanns að sunnan, sem hafði tekist að leysa hvert málið á fætur öðm. Nýr aðstoðarlögregluþjónn var ráðinn, aðstoðarlögregluþjónninn gerður að lögregluþjóni, lögreglu- þjónninn að aðstoðaryfirlögreglu- þjóni, aðstoðaryfirlögregluþjónninn að yfirlögregluþjóni, 'yfirlögreglu- þjónninn að aðstoðarrannsóknar- lögregluþjóni, aðstoðarrannsóknar- lögregluþjónninn að rannsóknar- lögregluþjóni og rannsóknarlög- regluþjónninn gerður að aðstoðar- yfirrannsóknarlögregluþjóni. En þá kom babb í bátinn. Nú vom aðstoðaryfirrannsóknarlög- regluþjónarnir orðnir tveir, og auð- vitað þótti Gústa í Koti súrt í brotið að vera ekki einu starfsheiti ofar en hinn aðstoðaryfirrannsóknarlög- regluþjónninn, þar sem hann hafði meiri starfsreynslu, en næsta þrep fyrir ofan var yfirrannsóknarlög- regluþjónninn að sunnan, og hann sýndi engan lit ó að segja starfi sínu lausu, eða fara fram á stöðuhækk- un. Gústi braut lengi heilann um þetta, og fyrir áeggjan konu sinnar, sem var ekki síður en hann sólgin í stöðuheiti, fór hann á fund hrepps- stjórans. Hún beið í ofvæni eftir honum, til að vita hvemig erindið hefði gengið, og loks fékk hún laun erfiðis síns. Þegar Gústi kom aftur spurði hún spennt: „Og hvemig gekk?” Gústi brosti drýgindalega, um leið og hann svaraði: „Hér eftir, góða mín, geturðu kallað þig yfiraðstoðaryfirrann- sóknarlögregluþjónsfrú!! ” Endir ið á staðnum. Auðvitað var aðkomumanni kennt um, því land- lega var, en þar sem ekki var hægt að benda á neinn sérstakan, var Gústa fengin rannsókn málsins í hendur. Ekki tókst þó betur til en svo, að Gústi komst ekki að því, hver hinn seki var, og hefur hann ekki fundist enn í dag. Það var þó lán í óláni, að litlu var stolið. En þetta hafði komið nýrri hugmynd inn í kollinn á Gústa. Hann hélt á fund hreppstjóra, og bar upp erindi sitt. „Mér datt nú svona í hug, hreppstjóri,” sagði hann, „að ef fleiri slík innbrot og þjófnaðir koma til með að eiga hér stað, hvort ekki væri réttast að gera mig að rannsóknarlögregluþjóni. Þó er ég alltaf tiltækur til að rannsaka öll slík mál, svo og önnur, sem upp kunna að koma.” Hreppstjóri hugsaði málið, og leist vel á hugmyndina. Hrepps- nefndarfundur var boðaður í skyndi, og þar var samþykkt, að Gústi skyldi héreftir bera starfs- heitið ránnsóknarlögregluþjónn. Leiddi þá af sjálfu sér að aðstoðar- yfirlögregluþjónninn var gerður að yfirlögregluþjóni, lögregluþjónninn að aðstoðaryfirlögregluþjóni, aðstoðarlögregluþjónninn að lög- regluþjóni, og síðan var nýr aðstoð- arlögregluþjónn ráðinn. Hélst ástandið svo um hríð. Ekki varð mikið um þjófnaði um tíma. Samt var einu reiðhjóli stolið, sem fannst að vísu bak við eitt fisk- verkunarhúsið, og af tilviljun komst upp um þjófinn. En þetta varð til þess, að Gústi gekk enn á ný á fund hreppstjóra. Kvaðst hann hafa eytt mikilli vinnu og tíma í mjög svo giftusamlega lausn þess máls, en kvað það nauðsynlegt að fá aðstoðarmann. Gat hann með rökum og málsnilld, hváðan sem hún var nú fengin, sýnt hreppstjóra fram ó nauðsyn þessa. Eftir fund var þetta því samþykkt. Gústi var áfram rannsóknar- lögregluþjónn, yfirlögregluþjónn- inn var gerður að aðstoðarrann- sóknarlögregluþjóni, aðstoðaryfir- lögregluþjónninn varð yfirlögreglu- þjónn, lögregluþjónninn aðstoðar- yfirlögregluþjónn, aðstoðarlög- regluþjónninn lögregluþjónn, og nýr aðstoðarlögregluþjónn ráðinn. Og aftur undu allir glaðir við sitt. Auðvitað hafði þetta allt tekið sinn tíma, og á meðan stækkaði þorpið í eiginlegum skilningi. Og þá dundi reiðarslagið yfir. Það varð eldsvoði. Það kviknaði í geymslu- húsi , við hlið fiskverkunarhússins. Ekki var hægt að kenna um, að kviknað hefði í út frá rafmagni, þar sem ekkert rafmagn var í geymsluhúsinu, sem var gamalt timburhús. Hér var úr vöndu að ráða. Menn hölluðust helst að því, að um íkveikju hefði verið að ræða. En hver gat haft hag af því, að brenna þetta gamla geymsluhús? Þetta verkefni varð rannsóknar- lögreglunni ofviða, svo fenginn var sérfræðingur að sunnan. Og það sem meira var, honum var boðin staða sem yfirrannsóknarlögreglu- þjónn, sem hann tók. Hófst hann nú handa við lausn málsins, og naut þar dyggilega stuðnings Gústa. Ekki var yfirrannsóknarlögreglu- þjónninn nýi lengi að komast að hinu sanna. í ljós kom, að gamla geymsluhúsið hafði verið vel tryggt, og stjórnandi fiskverk- smiðjunnar kveikti í því. Hlaut yfir- rannsóknarlögregluþjónninn óspart lof íbúa þorpsins fyrir frammistöðu sína, en fiskverksmiðjustjórinn

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.