Vikan


Vikan - 26.01.1978, Síða 47

Vikan - 26.01.1978, Síða 47
o Jólaball Vikunnar er árviss viðburður, sem alltaf hefur bótt með hinum ágætustu skemmtunum, og svo var enn 7. janúar síðastliðinn. Skemmtunin fór fram á hefðbundinn hátt með dansi og sprelli, kókþambi og prinspólóáti, jólasveinahasar og gottipoka í nesti. Þarna varfrítt og mikið lið sölubarna, og starfmenn fjölmenntu með börnin sín. Krakkarnir kepptu í spurningaleik og kókdrykkju, þau fengu að syngja við undirleik hljómsveitarinnar, sem Friðrik Theódórsson stjórnaði, og þau voru sérstaklega dugleg að dansa, bæði hina hefðbundnu jóladansa og einnig nýtískulegri dansa inn á milli, eins og la bostella, konga og rokk, og allt féll þetta vel í kramið, að því er best varð séð og heyrt. Hápunkturinn var, þegar jólasveinarnir birtust, en þeirvoru hinir skemmtilegustu og harla nýstárlegir, sumir í gamla þjóðlega stílnum, aðrir í alþjóðlegum sanktakláusstíl, og svo var einn, sem kom á vélhjóli með hjálm á höfði og kvaðst heita jógúrtgámur, því nú væru ekki lengur neinir askar til að sleikja, svo hann yrði bara að vera í takt við tímann. Þarna kom líka hún Leiðindaskjóða, og meira að segja Grýla gamla leit þarna inn og taldi ekki eftir sér að rokka svolítið í kringum jólatréð viðstöddum til rnikillaránægju. Við birtum hér nokkrar svipmyndirfrá skemmtuninni. Hinn kunni rithöfundur Charles Dickens, sem andaðist árið 1870, var frægasti rithöfundur síns tíma og mjög dáður. Enn þann dag i dag skemmta milljónir lesenda sér með Pickwick og gráta með David Copperfield og Oliver Twist. En hinn vinsæli og dáði Charles Dickens var í rauninni einmana, þegar hann lést, lifið og ástin hafði leikið hann hart. Stúlkan, sem hann elskaði af heilum hug, sveik hann — en hún gerði hann lika að rithöfundi. 1 næsta blaði má lesa um æskuást Charles Dickens. DICKENS ÁRAMÖTI ÞÓRSMÖRK Áramót kalla á eitthvað sérstakt, þá finnst öllum þeir verða að gera sér einhvern dagamun. Flestir eyða nóttinni í félagsskap kunningja heima hjó sér eða þeim en svo eru aðrir, sem láta sér það ekki nægja, heldur takast á hendur ferð um óbyggðir til að halda upp á þessi merku tímamót. í næstu Viku birtast nokkrar myndir og frásögn af ferð Ferðafélags Islands i Þórsmörk, þar sem haldið var upp á áramótin með voldugu báli, söng og gleðskap fram eftir nóttu. VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. aigurðsson, Anna Kristine Magnúsdóttir, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Snvart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjóm og auglýsingar i Síðumúla 12. Simar 35320—35323. Afgreiðsla og dreifing i Þverholti 11. Sími 36720. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 400. Áskriftarverð kr. 1500 pr. mánuð, kr. 4500 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 8460 fyrir 26 tölubl. hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar, mai, ágúst. 4. TBL. VIKAN 47 I NÆSTU VIKU SPILVERKIÐ - HLJÖMSVEIT ÁRSINS Eins og fram kemur í þessu blaði, þá hefur vinsældaval Vikunnar og Dagblaðsins skorið mjög ákveðið úr um ógæti Spilverks þjóðanna. Hljómsveit ársins, vin- sælasta platan, vinsælasta lag ársins, vinsælasta söngkonan, allt þetta skrifast á Spilverkið, auk þess sem hópurinn hlaut góða útkomu í valinu um besta lagasmið og textasmið, og Egill Ölafsson varð semidúx í söngvarahópnum. Þetta er glæsilegur vitnisburður, sem þátttakendur í vinsældavalinu eru áreiðanlega ekki einirum að vilja gefa þeim. í næsta blaði ræðir Vikan við þetta frækna lið — Spilverk þjóðanna. RÆTT VIÐ PÁLÍNU JÖNMUNDSDÖTTUR íslendingar virðast ákaflega gefnir fyrir sýningar af öllu tagi, það sannar reynsla síðustu ára. I sambandi við vörusýningarnar í Laugardalshöllinni hafa verið haldnar meiri háttar tískusýningar, sem vakið hafa mikla athygli. Þar hafa margir lagt hönd að verki, en drjúgan þátt má skrifa á reikning Pálinu Jónmunds- dóttur, sem mörgum er kunn. Vikan heimsótti Pálínu og rabbaði við hana um sitt af hverju, en aðallega um tískufatnað, hönnun og sýningar. Viðtalið birtist í næstu Viku. ÆSKUÁST CHARLES

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.