Vikan - 15.06.1978, Síða 7
16. ágúst, 22. júní, 28. júlí, 1.
apríl, 24. okt., og 11 okt?
Hvernig eiga saman tvö Ijón,
kk. og kvk. ? En sem vinkonur,
steingeitin og Ijónið, og
krabbi(karlkyns) og ljón
kvenkyns? Ef maður skrifar
pennavinaklúbbnum í Finn-
landi, hvort áþá að skrifa á
íslensku eða ensku? Þetta er
dálítið langt bréf, og ef þú ert
búinn að fá mörg bréf máttu
láta bara svarið. Efþú birtir
þetta bréf, það er heldur langt,
vona að þú birtir þetta, nenni
ekki að skrifa þetta allt aftur,
Þess vegna œtla ég að skrifa
allt, sem þú mátt vita, en ekki
birta það. 11. spurning: Hvað
gceti ég verið gömul eftir
skriftinni að dæma? .
Eg
Samkvæmt útreikningi Pósts-
ins, eru þetta mun fleiri
spurningar en ellefu!! En
vindum okkur þá í svörin: Ég,
sem svara Póstinum, geri það
eftir minni bestu vitund og
þekkingu á málunum. Ég skrifa
ekki bara það, sem mér dettur í
hug, heldur það, sem ég held,
að komi bréfritara að sem
mestu gagni. 2. og 3. Jú, þú ert
alltof þung. Þú ættir að vera á
bilinu frá 54 kg (grönn) að 63
kg (kraftaleg). 4. Þeir meina
sennilega, að þeim lítist vel á
þig og langi til að lenda á séns
með þér... 5. Jú, góða mín, þú
ert alltof ung til að sofa hjá. 6.
Nei, það er hægt að kyssa
mjög langan koss á kinnina...
og þá bara með vörunum!! 7.
Það eina, sem ég veit um
Shaun Cassidy, er að hann er
19 ára, upprennandi stjarna í
Bandarikjunum og er nú að
verða mun vinsælli en David
bróðir hans hefur nokkurn
tíma verið. Nú, svo var móðir
hans að gifta sig aftur nýlega,
og þá var hann svaramaður
hennar. 8. Ég hef aldrei heyrt
minnst á þessa leikkonu. 9. Ef
það er ofát að þér, verðurðu að
stappa í þig stálinu, og hætta
að borða, en annars skaltu leita
til læknis. Það má vel vera, að
eitthvað sé óeðlilegt við efna-
skiptin í þér. 10. Þú biður ekki
um lítið! Hér kemur þetta
happadót þitt: 16. ágúst: Tölur:
1 og 7, litir: rauðbleikt, grænt
og gyllt. Dagur: Þriðjudagur.
22. júní. Tölur: 2 og 4, litur:
silfurhvítt, dagur: Mánudagur.
28. júlí. Tölur: 4 og 5, litur:
blágrænn, dagur: föstudagur.
I. apríl: Tölur: 1 og 9, dagur:
þriðjudagur, litur: rauður. 24.
okt.: Tölur: 6 og 9, litir: Blátt
og rautt, dagur: Fimmtudagur.
II. okt: Tölur: 2 og 6, litir:
Blátt og silfurlitt, dagur: Þriðju-
dagur. Ánægð? Tvö ljón eiga
vel saman, en ef deilumál rísa
upp á milli þeirra, er ekki von
á góðu, því hvorugt gefur
nokkurn tíma eftir. Steingeitar-
stelpa og ljónsstelpa eiga vel
saman sem vinkonur. Krabba-
strákur og ljónsstelpa eiga ekki
sérstaklega vel saman. Ef þú
skrifar pennavinaklúbbnum í
Finnlandi, ættirðu að skrifa á
ensku eða dönsku, íslenskan
gerir víst lítið gagn þar! 11. Þú
gætir verið 11-12 ára eftir
skriftinni að dæma, og staf-
setningarvillurnar í bréfinu
voru óteliandi, og þú kannt
ekki einu sinni að skrifa
algengustu orð rétt! (T.d.
oktoNber!!).
Er hættulegt
að drekka
mentolspritt?
Kæri Póstur.
Getur þú svarað þessum
spurningum fyrir mig? Er
hættulegt að drekka ment-
olspritt, og ef svo er, er það þá
hættulegra fyrir fólk með
gleraugu? Hvaða merki á best
við steingeitina (kk. og kvk.)
fyrir vini? Hver er happadagur
og happalitur og allt það, fyrir
þá sem fæddust 17. 1.? Hvað
lestu úr skriftinni, og hvað
heldurðu, að ég sé gömul?
Hvað á ég að vera há, ef ég er
61 kg?
9436-1621
Já, það er hættulegt að drekka
mentolspritt og spritt yfirleitt,
— og mun hættulegra fyrir
fólk, sem notar gleraugu, því
það á helst ekki að vera
drukkið! — Nei, svona í alvöru
talað, þá hefur spritt slæm
áhrif á sjónina, og getur
valdið blindu... Tvíburarnir
eða fiskarnir eiga best við stein-
geitarstrák, en fiskarnir, nautið
eða ljónið munu reynast bestu
vinir steingeitarstelpunnar.
Þeirra, sem fæddust 17. 1?!
Hvaða ár? Happatala þess, sem
er fæddur 17. janúar er 8,
happalitur er rauður, og
happadagur er sunnudagur.
Skriftin ber með sér, að þú
sért fram úr hófi fljótfær og
framkvæmir yfirleitt, án þess
að hugsa, og þú ert varla meira
en 14 ára. Þú átt að vera u.þ.b.
162 sm há, ef þú ert 61 kg og
kraftaleg, en grönn áttu að
vera 172 sm. Meðalþung
ættirðu að vera 168 sm.
Peiiiiavinir
Helga Valgeirsdóttir, Sr ragrund,
Jökuldal, 701 Egilsstaðir (12 ára) og
Bergþóra H. Arnórsdóttir, Hvanná II,
Jökuldal, 701 Egilsstaðir, óska eftir að
skrifast á við strák á sama aldri og þær
eru.
Svanhildur Egilsdöttir, Brekkugötu 60,
470 Þingeyri og Jónína Pálsdóttir,
Fjarðargötu 14, 470 Þingeyri, óska eftir
pennavinum, strákum og stelpum á
aldrinum 11-12 ára. Áhugamál eru
íþróttir, popptónlist og frimerki.
Rösa Kolbrún Ástvaldsdóttir, Brekku-
götu 38, Þingeyri og Kristbjörg Bjarna-
dóttir Fjarðargötu 49, Þingeyri, óska
eftir pennavinum, strákum og stelpum
(helst strákum) á aldrinum 13-15 ára.
Áhugamál margvísleg.
Sigriður James, Klapparstig 13, Ytri-
Njarðvík, 230 Keflavik og Kristín
Sumarliða, Ishúsastig 3, 230 Keflavík,
óska eftir að skrifast á við stráka á
aldrinum 15—? Eru æðislega hressar.
Áhugamál margvisleg, þó aðallega sætir
og skemmtilegir strákar.
Denise Mclntosh, 211 Mootoo Street,
Rep. og T. dad & T’bgo. West Indies,
óskar eftir 14 ára pennavinum. Hún er
sjálf 14 ára. Áhugamál eru margvisleg.
Sigrun Kornkveen, Rute 2010, 3500
Honefoss, Norge, óskar eftir penna-
vinum á íslandi. Hún er 18 ára og
hefur mörg áhugamál, m.a. bréfaskriftir,
tungumál, handavinna og fjallgöngur.
Aquarius Panpal-Club, Postbox 1678,
Vika, Oslo 1, Norge,. Nýr pennavina-
klúbbur, sem óskar eftir að komast I
samband við íslenskar konur. Bréfum er
svarað á ensku, norsku, sænsku eða
dönsku. Mynd æskileg auk almennra
upplýsinga (nafn, heimilisfang, aldur,
áhugamál o.s.frv.).
24. TBL.VIKAN 7