Vikan - 15.06.1978, Blaðsíða 26
i mom
VJKU
Spakmæli vikunnar..
• Sársauki og dauði er ekki það versta sem
getur hent þig. Verstur er einmanaleikinn og
næstverst, þegarfólk hættirað taka mark áþér.
• Efþú lifir ekki erfiða daga, þú muntu ekki
minnast góðra daga.
• Erfiðasta hlutverk, sem hugsast getur, er að
vera þrestsfrú og starfa um leið t verslun sem
selur kvenskð!
Helst að gömul Ijón gerist
mannætur
Ljón eru yfirleitt rólynd
og friðelsk og eru reynd-
ar eina dýrið af kattar-
tegundinni, sem lifir
hóplifi — allt að 35 í
flokki. Ef ljón yfirgefur
hópinn í lengri eða
skemmri tíma er því
fagnað þegar það birtist
á ný, á þann hátt að
ljónin leggja kinn við
kinn. Hóplífið er yfirleitt
ákaflega friðsælt, enda
verja ljón um 20 klukku-
stundum á sólarhring í
svefn eða hvíld.
Ljón drepa vissulega
önnur dýr, en ekki nema
af nauðsyn — þegar
hungur sverfur að, og
aldrei nema eitt dýr í
einu. Fullorðið ljón
getur tekið hraustlega til
matar síns, borðað allt
að 75 pund af kjöti i eina
máltíð.
Snjöll en einföld lausn
Börn eiga ekki að vera í framsætum bifreiða, en það
er samt þægilegri staður þegar móðirin situr undir
stýri. Fyrirtækið General Motors hefur nú látið
hanna körfu, sem hægt er að setja í framsætið og
spenna niður með bilbelti. Þegar móðirin fer úr
bílnum til að versla, þá setur hún körfuna einfaldlega
i létta grind, og þá er kominn hinn ágætasti barna-
vagn. Einföld og snjöll lausn.
Ljón eru ótrúlega
sterk. Þau geta borið
tvöfalda eigin þyngd: —
karldýrin eru oftast 350
— 400 pund á þyngd, en
kvendýrin 250 til 300
pund. Ljón getur
auðveldlega lagt að velli
uxa, sem er tvöfalt stærri
en það, og ljón hafa sést
drepa hina hræðilegu
krókódíla. Algengasta
bráð ljónanna eru sebra-
dýr, antilópur og
buffalóar en þau hafa
einnig sést éta fisk,
skjaldbökur og fugla.
Þegar aldur færist yfir
ljónið og það getur ekki
lengur klófest fótfrá
dýr, er fyrst hætta á að
það gerist mannæta.
Talið er að ljón eitt í
Tanganyika hafi drepið
300 manns.
Þegar kemur að fengi-
tímanum, þá stendur
samband milli karldýrs
og kvendýrs í tvær
vikur. Ljónynjan gengur
með í 108 daga og gýtur
tveimur til sex hvolpum.
Yfirleitt ná tveir eða þrír
einhverjum þroska.
Hér áður fyrr voru
ljón í allri Afríku, i
Austurlöndum nær og
fjær og jafnvel á
nokkrum stöðum í
Evrópu. Nú er ljón að
finna mestan part í
austur- og miðhluta
Afríku og eru flest í
þjóðgörðum. Um 200
ljón lifa enn í Indlandi.
26 VIKAN 24. TBL.