Vikan - 15.06.1978, Blaðsíða 46
Ástina sína fékk hann ekki
og eymd. Hún heimsótti hann til New
York, Morristown og Middlebrook.
Hún var einnig viðstödd lokasigurinn.
Meðan síðustu fallbyssuskotin riðu af í
Newburgh, biðu Marta og George
Þetta málverk af George
Washington eftir Gilbert Stuart er
eini hkiturinn i Hvíta húsinu frá veru
fyrsta forsetans þar.
óþolinmóð frétta af friðarráðstefnunni i
Paris. 1783 kom hinn mikli boðskapur:
Bretar hafa gefið eftir, Bandaríki
Ameríku eru frjáls ogsjálfstæð.
FYRSTA FORSETAFJÖL-
SKYLDAN
Þegar sigurinn var tryggður, snéru
George og Marta aftur til Mount
Vernon. Hershöfðinginn var staðráðinn
i að eyða siðustu ævidögunum á stórbýli
sínu. En þau fengu aðeins fáein ár fyrir
sig. 1789 var George Washington valinn
fyrsti forseti lýðveldisins. Hjónin á
Mount Vernon urðu fyrstu forsetahjón
Bandarikjanna.
Höfuðborgin var þá New York, og
enn urðu Washington og kona hans að
yfirgefa heimili sitt. Það varð hlutverk
Washingtons að móta forsetaembættið,
og hann valdi einfaldan og virðulegan
stíl — sem var fjarri hinu stifa yfir-
bragði, sem rikti við evrópsku hirðirnar.
Marta var fyrirmyndar forsetafrú. Hún
var hlédræg, en það hæfði ágætlega
látlausum veislum forsetans, þar sem
hún var húsfreyja.
Elskaði hann hana? Það fáum við
aldrei að vita með vissu, en milli þeirra
ríkti örugglega eindrægni og fullkomið
traust. 14. desember 1799 andaðist
George Washington, og með honum
kvaddi átjánda öldin. Með honum var
genginn mikill ágætismaður, farsæll
hershöfðingi og djarfur maður. Hann
hafði átt mikinn þátt i mótun nýrrar
þjóðar og hans mun ætið minnst með
virðingu. Hann var einn af merkustu
mönnum átjándu aldarinnar og átti
ríkan þátt í sköpun sögunnar á þeirri öld.
í dag liggja þau hlið við hlið, Marta og
George, í litlu grafhýsi á Mount Vernon
við Potomacfljótið. ★
46 VIKAN 24. TBL.