Vikan - 28.12.1978, Blaðsíða 4
Besta stofan er
ekki dýr
Besta veitingahúsið í
London: Ma Cuisine
Tvær alfranskar veitingastofur bítast
um fremsta sætið í hugum mataráhuga-
manna í London. Það eru Gavroche og
Ma Cuisine, báðar í Chelsea, en eins
ólíkar og slíkar stofur geta verið.
Gavroche er fínn og rándýr staður
með virðulegri þjónustu. Þar átt þú á
hættu, að vindlareykur vel stæðra
kaupsýslumanna spilli þefnæmi þínu á
mat og drykk. Þar borgar þú líka um
15.000 krónur á mann, að vísu fyrir
óaðfinnanlega máltíð.
Ma Cuisine er hins vegar einfaldur og
ekki tiltakanlega dýr matstaður. Þar má
reikna með, að þríréttaður matur með
víni og kaffi kosti um £11 eða 7.500
krónur.
Glaðvært andrúmsloft ríkir hjá
snöggum þjónunum. Það er ung og
glæsileg kona, madame Mouilleron, sem
gefur tóninn í veitingasalnum. Hún á
þessa matstofu með manni sínum, sem
ræður ríkjum i eldhúsinu.
Með fjögurra vikna fyrirvara
Ég var vel undirhúinn, hafði pantað
borð með fjögurra vikna fyrirvara. Því
miður fékk ég að vita, að daginn, sem ég
ætlaði að koma, væri fyrst hægt að fá
borð klukkan hálfellefu um kvöldið.
Þannig hefur ástandið verið á Ma
Cuisine nánast frá opnun hússins.
Matstofan tekur ekki nema 30 manns í
sæti og allir vilja fá að komast að. Þama
er um að ræða lengsta biðlista í London.
Það þýðir ekki að fá skyndilega
hugdettu um að fara út að borða á Ma
Cuisine. Menn verða að vita með
miklum fyrirvara, hvaða daga þeir verða
í London, og senda síðan borðpöntun í
bréfi með sjálfdæmi um tímasetningu að
kvöldinu.
Þröngt var setið á Ma Cuisine, þegar
við komum þangað seint um kvöld. Eitt
borð var þó laust, eins og lofað hafði
verið. Madame Mouilleron vísaði okkur
til sætis. Þar tróðum við okkur niður í
miklum þrenglsum.
Borðdúkarnir voru köflóttir að
frönskum hætti. Við borðin voru hjól-
bakstólar. Koparpönnur héngu á striga-
klæddum veggjum. 1 rauninni var þetta
veitingahola fremur en veitingahús, lítil.
látlaus og einföld i sniðum.
Maturinn er alfa og ómega
Auðvitað er það ekki útlitið né
þjónustan, sem draga menn að Ma
Cuisine. Þarna er maturinn alfa og
ómega. Það er hans vegna, að barist er
um hvert sæti í salnum.
Guy Mouilleron, eigandi og
yfirkokkur, er svo sem ekki nýr Bocuse
né Guérard. Hann er ekki einn af hinum
heimsfrægu uppfinningamönnum á
sviði matargerðar. En hann er besti
fulltrúi franskrar matargerðarlistar í
London.
íslendingar, sem hafa áhuga á að
kynnast ekta frönskum mat og eiga
stundum erindi til London, en aldrei til
Parisar, ættu að efna til heimsóknar á
MaCuisine.
Guy Mouilleron matreiðir góða og
einlæga franska rétti, létta og
hugmyndarika. Hann er fulltrúi hinnar
nýju, frönsku matargerðarlistar,
einfaldrar og náttúrulegrar. Hann ber
virðingu fyrir hráefnum, hefur sósurnar
fisléttar og steikir nákvæmt.
Bæði hefðbundið og óvenjulegt
Matseðillinn er fremur stuttur og
breytist lítið frá degi til dags. Þar má
Frá KPS, stærstu heimilistækjaverksmiðju Noregs bjóöum við stórglæsnegt úrval
eldavéla, gufugleypa, kæliskápa og uppþvottavéla á mjög hagstæðu verði. Góðir
greiðsluskilmálar. Tískulitir: Karry gulur, Avocado grænn, Inka rauður, hvítur og það
allra nviasta: svartur!
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Berg-taðastræti 10 A.
Sími 16995.
Sendið úrklippuna til okkar
og vió póstieqgium bækiing strax.
4 Vikan 52. tbl.