Vikan


Vikan - 28.12.1978, Blaðsíða 5

Vikan - 28.12.1978, Blaðsíða 5
bæði sjá hefðbundna rétti og óvenjulega. Grænmetisréttir eru veikasta hliðin. Allt annað er yfirleitt frábært og Guy Mouilleron gerir sjaldan mistök. Ég fékk mér fyrst humarsúpu (Soupe au homard), siðan hörpuskelfiskfroðu Imeð appelsinusósu (mousseline de coquilles Saint-Jacques a l’orange) og loks súkkulaðifroðu (mousse brulée). Allt var þetta frábærlega gott. Matreiðslan á hörpuskelfiskinum kom skemmtilegast á óvart. Með þessum ævintýramat drukkum við flösku af Chablis Premier Cru á £7,80, sem skiptist í þrjá staði. Eins og annar góður Chablis var þessi ákaflega hentugur með fiskréttum, ekki sist skel- fiskréttum, enda svo skraufaþurr, að lengra verður vart komist. Meðal annarra rétta, sem mælt er með á Ma Cuisine, er fisksúpan ,soupe de poisson”, eggjarétturinn „oeuf vert galant” og humarinn „langoustines a , l’oseille”. Meðalverð á matseðlinum eru sem hér segir: Fastagjald 45 pens, forréttir £2, aðalréttir £3,35, eftirréttir £1,10, hálfflaskan £3,90 eða samtals um £11, sem gera tæpar 7500 krónur á ferðamannagengi. Frábær matur leiddi til bónorðs matinn, sem var svo góður á Ma Cuisine, að hann leiddi til bónorðs yfir borðið, án þess að slíkt hafi fyrirfram verið ætlunin. Bónorðinu var að sjálfsögðu tekið jafnóvænt og það var sett fram. Á Ma Cuisine koma ekki kaupsýslu- menn til að tala um viðskipti án þess að hafa hugmynd um, hvað þeir eru að borða. Þar kemur aðeins fólk, sem hefur feiknarlegan áhuga á góðum mat. 1 þeim hópi eru fjölmennir matsveinar og veitingamenn annarra veitingahúsa. Kannski eru það bestu meðmælin. (Ma Cuisine, 113 Walton Street, SW3, sími 01-584-7585, lokað laugar- daga og sunnudaga, pantið með minnst fjögurra vikna fyrirvara). Jónas Kristjánsson ínæstu viku: Móselvín Einkunn Vikunnar: Með grein þessarí lýkur að sinni skrifum um eríend veitingahús. / nœsta hlaði hefst síðan greinaflokkur um létt vín. sem eru á boðstólum hjá ATVR. Eiginleikum þeirra verður lýst og gefnar einkunnir fyrír gœði. Meðai annars verður bent á. í hvaða vínum eru góð kaup og vond kaup. Greinafiokkurinn hefst með samanburði á þeim sex Mósel- vinum, sem hér eru á boðstólum. Sögð hefur verið á prenti sagan um — Og hér er skeyti frá Rannsóknardeild fæöingardeildarinnar: Rannsóknar- stofnunin biðst velvirðingar á mistókum, sem orðið hafa. Þungunarprófiö var neikvætt, endurtekið neikvætt! — Mér er sagt að þeir séu ósparir á karriiö á þessu veitingahúsi. — Ég hef aldrei vitað nokkurn gera annað eins veður út af suðutima eggja. 1AWEX frískandi þurrkur vættar spritti á skrifstofuna íbílinn í feröalög Heildsölubirgdir Halldór Jónsson hf. 'j 52. tbl. Vikan f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.