Vikan - 28.12.1978, Blaðsíða 8
UNDARLEG ATVIK
Framhald afbls. 7.
Einhvern veginn fann Einar að þetta
mundi vera sannleikurinn, en honum
fannst sú tilhugsun að hverfa frá þessum
stað óbærileg. Veran virtist alltaf lesa
hugsanir hans og sagði nú við hann:
„Sjáðu.”
Þá sá Einar hóp af mönnum á ferðalagi
um gróðurvana auðnir í náttmyrkri og
hríð. Allir báru þeir byrðar, sumir stórar,
aðrir minni. En allir voru með eitthvað og
fannst Einari sumt af þvi sem þeir báru
líkjast krosstré.
Hann sá að sumir voju villtir á áttum og
vissu ekki hvert stefna skyldi. Aðrir virtust
örmagna af þreytu og vera að gefa upp alla
von. Einn mann sá Einar þarna sem
honum fannst vera að hníga niður undir
krossi sínum og ætlaði að hraða sér til hans
til þess að hjálpa honum, en þá hvarf sýnin.
Einar sagðist hafa skilið hvað verið væri
að segja honum á táknrænan hátt með
þessari sýn og fannst jafnvel eins og blómin
og trén umhverfis væru á einhver
dulrænan hátt að svara hugrenningum
hans. Að lokum héldu þeir samræðum
sínum áfram, en um þær vildi Einar ekki
tala nánar, því það væru sér helgar
minningar.
En allt í einu fannst honum að tæki að
dimma og það greip hann ótti. En
förunautur hans sagði við hann. „Vertu
öruggur.” Þá hrökk Einar upp við einhvern
hávaða og fann að hann var aftur staddur í
rúmi sínu. Einhver hlutur hafði dottið af
hillu í herbergi upp á lofti. Sagði hann síðar
að þá hefði sér þótt verst að vakna á ævi
sinni. Var hann eftir sig allan daginn því
hann gerði sér ljóst að hann hafði vaknað
of snögglega. Hann leit á klukkuna og var
hún þá rúmlega 6 að morgni.
Þessi frásögn af sálför Einars Lofts-
sonar hefur vitanlega ekkert sönnunargildi.
Það var ekki heldur tilgangurinn. Þessum
þáttum mínum er ekki ætlað það hlutverk
að sanna fyrir ykkur eitt eða neitt. Heldur
skýra frá því sem hefur hent aðra og oft
fleiri en flesta grunar. Einar Loftsson var
ákveðinn efnishyggjumaður fram á
fullorðinsár, en hann varð svo margs var
bæði hjá sjálfum sér og öðrum að hann
taldi sjálfsagt að rannsaka það eftir bestu
getu til þess að kveða slíka vitleysu niður í
huga sínum í eitt skipti fyrir öll. En það fór
öðru vísi en hann ætlaði. Hann komst brátt
að raun um að hann var sjálfur gæddur
ýmsum sálrænum hæfileikum, hæfileikum
sem að lokum leiddu hann til þeirrar
sannfæringar að látið fólk hefði hvað eftir
annað sannað líf sitt eftir svokallaðan
Bee Gees fresta útgáfu LP-plötunnar
Af ótta við að Bee Gees aðdá-
endur hafi fengið nóg í bili, hafa
Gibb-bræðurnir ákveðið að
fresta útgáfu á nýjustu hljóm-
plötu sinni um sinn. Vegna
„Saturday Night Fever, Grease
og Sgt. Pepper auk þess sem
mörg vinsælustu lög þeirra hafa
verið gefin út aftur á plötu
fannst þeim réttast að bíða um
stund. Það er mjög sennilegt að
hljómþlatan komi út um sama
léyti og UNICEF-hljómleikarnir
verðahaldnir,en þeir eru sendir
til allra sjónvarpsstöðva gegnum
gervihnött.
Davids Cassidy
Hátt uppi í fjöllunum fyrir ofan
Hollywood stendur Casa Coyote í undur-
fögru landslagi, og þangað nær hvorki
mengun né hávaði stórborgarinnar Los
Angeles. Þarna hefur David Cassidy lifað
hamingjusömu lífi siðan hann kvæntist leik-
konunni Kay Lenz, 3. apríl 1977, en hana
þekkjum við sennilega betur sem Kate í
„Gæfa eða gjörvileiki”. ,
— Okkur finnst svo gott að geta lifað hér í
friði, segir David. — Hérna höfum við
fundið hina sönnu lifshamingju. Við Kay
elskum bæði dýr og plöntur, og við gætum
hvergi annars staðar sinnt þessum hugðar-
efnum jafn vel.
Kay kemur út á sólpallinn með stóran
blómvönd í hendinni.
— Ég er garðyrkjumaðurinn á þessum
bæ, segir hún og hlær. Ég get ekki hugsað
mér neitt betra en að fara snemma á fætur
til að sinna grænmetisgarðinum mínum,
gefa dýrunum og útbúa morgunverðinn
handa David.
— Við erum alveg eins og nýgift, seg’ir
David, og litur ástúðlega á Kay. — Við
erum bæði i fullu starfi, ég held hljómleika
og Kay leikur i kvikmyndum alveg eins og
áður. Hins vegar sleppum við við allt þetta
innantóma samkvæmislíf borgarinnar.
— Guði sé lof, bætir Kay við, um leið og
hún kemur blómunum fyrir í stórum vasa.
Hjónabandssæla
Kay og David á eldháströppunum
ásamt einum af fimm hundum, sem þau eiga.
dauða. Þessi reynsla hans hafði djúp og
varanleg áhrif á líf hans. Hann sneri
algjörlega baki við efnishyggjunni og sneri
sér af öllu afli að þjónustu og hjálp við
meðbræður sína til æviloka.
Hann hefur því vafalaust fengið að
hverfa aftur til þeirra fögru og unaðslegu
sviða, sem hann heimsótti í sinum andlega
líkama og tók svo nærri sér að verða að
kveðja, þegar hann neyddist til að hypja sig
aftur í herbergiskytruna sína í sinn gamla
líkama af því að tími hans var enn ekki
kominn til þess að hverfa af jarðarsviðinu.
8 Vlkan jst. tbl.