Vikan


Vikan - 28.12.1978, Side 13

Vikan - 28.12.1978, Side 13
^rið 1971 kom ungur Dani, Henrik Friis að nafni, tii Reykjavíkur og bjó að Hótel Loftleiðum í hálfan mánuð. Hann var í danskri sleðaherdeild á Grænlandi, en hafði fengið frí til að fara til tannlæknis á íslandi. Engum hefur nokkru sinni dottið í hug að binda rómantík við tannlæknaferðir, en hins vegar sá ung og Ijóshærð stúlka í gestamóttökunni um það, að þessi ferð yrði taun áhrifaríkari fyrir hinn unga Dana en tannviðgerðirnar gáfu tilefni til. Hún heitir Karen Jónsdóttir og hafði alveg óvenjulegan ihuga á Grænlandi. Eins og allir vita gefst fólki, sem vinnur fyrir ■ugfélögin, góður kostur á að ferðast ódýrt um allan heiminn, en ^aren hafði fimm sinnum valið að fara til Grænlands. Þau áttu því Oóg af sameiginlegum áhugamálum og það varð til þess að héldu bréfasambandi sín á milli í heilt ár, uns þau gengu í Itjónaband 1973. Og 1975 gerist hún húsmóðir á norðurhjar ^eraldar, eða í Meistaravík í Grænlandi. Þar bjuggu þau í 3 ár, en &ru nú flutt til Danmerkur ásamt tveimur stæltum sonum, Bjarka 41/2 árs, og Ásgeiri 21/2 árs. — Henrik er fæddur og uppalinn á Grænlandi til 12 ára aldurs, en þá var hann sendur í skóla til Danmerkur. Faðir hans var nýlendustjóri Dana á vesturströndinni, en þar bjuggu þau hjón í samfellt 35 ár. Hugur Henriks var alltaf mjög bundinn við Grænland, og að námi loknu gekk hann í sleðaherdeildina, og var þar í 5 ár. Síðan vann hann í 2 1/2 ár við að þjálfa nýliða í Danmörku. Tveimur árum eftir að við gengum í hjónaband var auglýst staða hjá Nordmine í Meistaravík. Hann langaði til að ég deildi með sér reynslu sinni af að búa á Grænlandi, og hann þurfti ekki að tala lengi um fyrir mér, þar sem ég hafði áður komið til Grænlands og hrifist mjög af náttúrufegurð landsins. Hann sótti því um stöðuna og fékk hana. Hann átti að hafa þar yfirumsjón með aðalbækistöð jarðfræðinga, sem vinna þar á sumrin fyrir Nordmine. Húsin höfðu verið flutt til Meistaravíkur frá gömlum námubæ. Þau voru ekki fullfrágengin, og Henrik, sem er húsasmiður að mennt, átti að sjá um innréttingar og viðhald á þeim. Snjóaði inni við matseldina Þegar við Henrik komum til Meistara- víkur ásamt Bjarka, sem þá var 15 mánaða gamall, vorum við i allt þarna 36 manns, konur og börn ásamt jarðfræðingum. En mánuði síðar vorum við ein eftir ásamt annarri fjölskyldu, sem átti 9 ára gamlan son. Eina mannabyggðin í nágrenni við okkur var flugvöllur í 5 kílómetra fjarlægð. Þetta er nokkurs konar neyðarflugvöllur, sem á að haldast opinn allt árið og þar vinna eingöngu karlmenn. Þeir eiga líka að sjá um að senda út veður sex sinnum á dag. Grænlendingar bjuggu í 280 km fjarlægð frá okkur í Scoresbysund og við kynntumst þeim ekki öðruvísi en þegar einhverjir þeirra þurftu að fljúga i gegnum Meistaravík á leið sinni til vesturstrandar- innar eða Danmerkur. Svo koma þeir einu sinni á vetrinum á hundasleðum til að sækja jólapóstinn sinn, það er venjulega í endaðan nóvember eða byrjun desember. Mér virtust þeir Grænlendingar er égi kynntist bæði ákaflega geðugt og hreinlegt fólk. Fyrsta veturinn okkar snjóaði óvenju mikið, og það má eiginlega segja að við höfum orðið að grafa okkur út úr húsunum á hverjum degi. Við húsmæðurnar tvær skiptumst á að búa til matinn sina vikuna hvor, en eldhúsið var ekki áfast við ■

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.