Vikan


Vikan - 28.12.1978, Page 15

Vikan - 28.12.1978, Page 15
Tveir islenskir ferðalanger á Grœnlendi. Keren og synir I heimsökn hjá foreldmm hennar á Seltjarnarnesi, Jóni Gunnlaugssyni, lækni, og Selmu Kaldalóns. inu, svo að þeim barst hjálp, og þyrlur komu frá Scoresbysund. Hitt skipið náði sambandi við íslenskt skip, sem hafði svo samband við Ísafjarðarradíó. Það var flugvél frá varnarliðinu sem fann þá í ísnum. í sumar kom svo enskur ævintýramaður, sem ætlaði sér að fara í kringum Grænland. Hann ætlaði á hundasleða frá Thule til Scoresbysund. Síðan ætlaði hann að sigla á konubáti frá Scoresbysund til Jakobshavn og aftur á hundasleða til Thule. Þetta misheppnaðist allt meira og minna hjá honum, en hann komst til okkar. Hann var hjá okkur í heilan mánuð og konan hans fékk að heimsækja hann. Hún hafði eignast barn á meðan hann var í burtu, sem hann langaði ákaflega til að sjá. í Meistaravík kemst frostið allt niður í 47 stig, en annars er þar ákaflega staðviðra- samt og mikið logn. Sól sér ekki frá 8. nóvember til 8. febrúar, og ljósin eru á allan daginn. Það er því mikið um dýrðir er sólin birtist á ný, allir hlaupa út með myndavélarnar sínar og haldin er heilmikil sólárveisla. Á þessu svæði er mikill snjór á veturna, allt upp í tveggja metra jafnfallinn snjó. í maí er að vísu mikið farið að hitna, en snjóa leysir fyrst í lok júní. 1 júlílok er svo hægt að fara að sigla um á fjörðunum og fram í miðjan seplember. Við fórum fljótt að hugsa okkur til hreyfings eftir að við vorum orðin ein. Vinir okkar á flugvellinum litu eftir stöðinni á meðan. Við fórum í fyrstu löngu ferðina okkar, þegar Ásgeir var ellefu mánaða gamall. Áfangastaður var Ellaö, sem er rómuð fyrir náttúrufegurð og ég mundi kalla Paradís á jörðu hvað það snertir. Þetta var i maí, en firðir ennþá ísi lagðir. Tengdamóðir mín var þá í heimsókn hjá okkur, mikill ferðagarpur og lét sig ekki muna um að aka sjálf snjósleða, þótt hún væri orðin 65 ára gömul. í svona ferðum má búast við öllu, sleði getur alltaf bilað, og eins er alltaf von á því að mæta ísbirni. Þess vegna er um að gera að vera nógu vel útbúinn, með tjöld og svefnpoka, vikuforða af mat, talstöð, riffil og skíði. Veðrið var ljómandi gott, og við komum til Ellaö eftir fimm tíma akstur. Á Ellaö er gömul jarðfræðingastöð, og húsunum er vel við haldið því að sleðaherdeildin notar; hana sem bækistöð á sumrin. Við komum okkur þvi notalega fyrir, og Henrik sagði að nú vantaði bara ísbjörninn til að ferða- lagið væri fullkomið. Og honum varð svo sannarlega að ósk sinni, því tveimur tímum seinna sáum við til ferða ísbjarnar. Eftir að hafa rölt um staðinn og rótað dálítið um kom hann að húsinu okkar og stóð u.þ.b. metra frá glugganum. Henrik var önnum kafinn við að taka myndir af fyrirbærinu þar til mamma hans spurði hvort hann yrði ekki að fara að gera eitthvað i málinu. Henrik greip þá skammbyssuna, og það skipti engum togum, því björninn var nú kominn alveg að húsinu. Hann skaut allt í kringum hann, en bangsi varð þó ekki hræddari en svo að hann stoppaði í u.þ.b. 50 metra fjarlægð frá húsinu til að líta í kringum sig og athuga hvað væri eiginlega að gerast. Henrik greip þá til Ijósabyssu, sem notuð er til að skjóta neyðarblysum, og við allan þann Ijósagang hvarf björninn. Henrik svaf svo með skammbyssuna í svefnpokanum hjá sér um nóttina, þvi birnir eiga það til að koma aftur, þó þeir hafi verið hræddir burtu. Það er óskaplegur kraftur í þessum dýrum, þeir fara léttilega gegnum glugga og hurðir og leggja jafnvel niður veggi. Ein með börnin og skammbyssu í hönd Við áttum eftir að lenda i öðru ævintýri á Ellaö, en það var í hvítasunnuferð ári seinna. Við ætluðum að vera þar yfir hátíðina, en urðum veðurteppt í 6 daga. Við spiluðum mikið og lásum, því ekki var komandi út. Við vorum í talstöðvar- sambandi tvisvar á dag við MVG og Daneborg til að fregna af veðrinu, og sjöunda daginn gátum við svo lagt af stað. 1 þessari ferð voru tveir af flugvallarstarfs- mönnunum með okkur. Veðrið var mjög fagurt, sól og heiðskírt. Eftir um 30 km akstur bilaði einn snjósleðinn, og urðum við að skilja hann eftir. Annar piltanna fékk skíði hjá Henrik, og átti hann að láta einn snjósleðann draga sig. Hann var ekki í mikilli þjálfun, svo það gekk ekki lengi. Henrik skipti því við hann og fór sjálfur á skíðin. Þegar við áttum eftir 45 km heim stoppuðum við til að athuga ný bjarnar- spor. Eftir það neitaði okkar sleði að starta, en heppnin var með okkur, því við vorum bara í u.þ.b. 3 km fjarlægð frá gömlum veiðimannakofa. Þangað voru ég og drengirnir flutt. En þar hafði björn verið á ferðinni á undan okkur, því allt var á tjá og tundri í kofanum, glugginn í burtu og hurðin brotin. Henrik stakk því skammbyssu í höndina á mér, kenndi mér á hana í skyndi, og síðan var ég skilin eftir með börnin á meðan þeir bjástruðu við snjósleðann úti á ísnum. Veðrið versnaði stöðugt, svo það ráð var tekið að við yrðum eftir í kofanum, meðan piltarnir ækju heim eftir hjálp. Við reyndum að koma okkur fyrir í kofanum með drengina, en hann var um 4 m2 að stærð, með einum 52. tbl. Vikan xs

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.