Vikan


Vikan - 28.12.1978, Page 17

Vikan - 28.12.1978, Page 17
Jarðfræðingastöðin i Meistaravík, Bjartasta tímabilið á dimmasta degi ársins. Horft til hafs. að læsa bömin inni og skilja þau eftir í svarta myrkri, því ekki dugði að skilja þau eftir með logandi olíulampa. En sem betur fer kom aldrei til sliks. Hitt áhyggjuefnið voru strákarnir mínir, en þeir voru mjög duglegir við að vera úti, jafnvel í miklu frosti. Bækistöðin lá við sjó, og ég var hrædd um að þeir leituðu niður að höfn eða týndust, ef ég liti af þeim. Enda tókst Bjarka einu sinni að laumast burtu frá húsunum, einmitt þegar pabbi hans var ekki heima. Hann var úti að leika sér við hundana. Við áttum alltaf tvo fullorðna hunda og fjóra hvolpa, og voru þeir ómetanlegur félagsskapur fyrir börnin. Mér fannst skyndilega heldur hljótt þarna úti og hljóp út til að gá að honum, en sá hann hvergi. Mér fannst þetta heldur óhugnan- legt, flýtti mér að búa mig betur og læsti þann litla inni. Úti var snjór og frost, en bjart veður. Þrátt fyrir mikla leit fann ég ekki einu sinni spor eftir hann, en þar sem harðfennið var mikið var ekki svo mikið að marka það. Eftir að hafa leitað í öllum húsunum reyndi ég talstöðina, en hún var biluð. Ég hljóp því út á veginn, sem liggur að flugvellinum, og eftir tveggja kílómetra göngu kom ég auga á nokkrar litlar þústir á hreyfingu. Þar var Bjarki á ferð ásamt þremur af hvolpunum, sagðist ætla til pabba, sem var uppi á flugvelli. Ég þarf víst ekki að lýsa því nánar hversu mjög mér létti við að finna hann heilan á húfi. Ævintýraleg reynsla Annars gekk daglega lífið sinn gang þarna eins og annars staðar, þó við ólíkar aðstæður væri. Ég þurfti t.d. að baka mjög mikið, sérstaklega á sumrin þegar gesta- gangur var hvað mestur, og brauð var bakað daglega, þar sem við höfðum ekkert bakarí upp á að hlaupa. Henrik bakaði alltaf rúgbrauðið, því það er svo erfitt að hnoða það. Við erfðum súrdeig frá manninum, sem var þarna á undan okkur. Við eigum það ennþá og höfum hugsað okkur að halda áfram að nota það. Jólahald var þarna ósköp svipað og hér. Við fengum jólapóst, jólatré og greinar með herflugvél — meira að segja jóla- skreytingar. Við reyndum að gera sem mest úr jólunum, þar sem ekki var alltof mikið um tilbreytingu yfirleitt. Margir hafa spurt mig, hvort það sé ekki undarlegt að búa við slíka einangrun í lengri tíma. Satt að segja hugsaði ég ekki svo mikið um það. Myrka tímabilið er að vísu nokkuð langt, og maður saknar þess að sjá ekki sólina. Að öðru leyti flýgur tíminn áfram, þar eins og annars staðar. Og þegar birtir er náttúrufegurðin svo stór- fengleg allt í kring, sá sem kann að meta hana lætur sér ekki leiðast á svona stað, þó einangraður sé. Margir ráða sig til starfa á Grænlandi vegna hinna háu tekna, sem í boði eru, og flestir reyna að halda dvölina út í tvö ár, en þá eru þeir skattfrjálsir. Ég mundi ekki ráðleggja neinum að fara þangað bara vegna peninganna. En sé maður duglegur við að fara i ferðir og notfæra sér hina einstæðu náttúrufegurð landsins, verður dvölin þama ævintýri líkust. Ég mundi ekki hika við að flytja þangað aftur, ef til þess kæmi. J.Þ. 52. tbl. Vikan 17

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.