Vikan


Vikan - 28.12.1978, Qupperneq 19

Vikan - 28.12.1978, Qupperneq 19
af því hvað þau vilja þessa og þessa stundina. Þar af leiðandi geta börn orðið óumræðilega hrædd ef tilfinningalegu öryggi þeirra er ógnað. Þau geta neitað því að nokkuð sé að, látið sem raunveruleikinn sé allt annar en raun ber vitni og tilfinninga- leg viðbrögð þeirra geta orðið gagnstæð því sem barninu er eðlilegt. Ofangreind viðbrögð hjálpa börnum yfirleitt ansi lítið en þau geta gert þau að fórnarlömbum atburðanna. BÖRN ERU FRÁBRUGÐIN FULL- ORÐNUM að því leyti að fullorðnir geta haft jákvætt tilfinningalegt samband við marga í einu bæði við óskylt fólk og ef til vill við fólk sem er því ekki velviljað. Börn skortir hæfileika til slíks. Þau geta að vísu auðveldlega haft jákvæðar tilfinningar til fleiri fullorðinna í einu en aðeins ef þessir einstaklingar eru jákvæðir hver út í annan. Ef það er ekki getur barnið lent í alvarlegri tilfinningalegri kreppu út af því með hverjum á það að halda og hver hefur rétt fyrir sér. Þetta gerist oft í skilnaðar- málum. BÖRN ERU FRÁBRUGÐIN FULL- ORÐNUM að því leyti að þau hafa enga hugmynd um blóðskyldleika fyrr en seinna á þróunarskeiði sínu. En flestum foreldrum þykir alveg sjálfsagt að þeir eigi börn sín vegna lífræðilegs skyldleika. Þetta er lika lagaleg staðfest. Slíkar hugmyndir eru fjarlægar börnum því þau skynja ekki tilfinningalega hvað olli fæðingu þeirra. Það sem hins vegar festist í hugum bama og það sem bindur börn tilfinningalegum samböndum við fólk, eru þau tengsl sem þau mynda í daglegum samskiptum sínum við þá sem sinna þeim. Það er sú umhyggja sem hinir fullorðnu sýna börnunum sem veldur tilfinningalegum tengslum, en ekki líffræðilegur skyldleiki. í STUTTU MÁLI: Börn eru ekki smækkuð mynd af fullorðnum, þau eru eitthvað í sjálfu sér. Sálrænir eiginleikar barna eru frábrugðnir fullorðinna, gerðir barna eru aðrar og þau skilja og bregðast við atburðum ólíkt fullorðnu fólki. Og böm gera skilyrðislausa kröfu til að foreldrarnir sinni þeim og uppfylli mismunandi þarfir þeirra — óháð líffræðilegum skyldleika. Hver á börnin? Em það bara foreldramir sem eiga bömin eða er það líka samfélagið? Em rnin böm líka þín börn og ber ég ekki bara ábyrgð á mínum börnum heldur líka þínum? Þessar spurningar geta hljómað einkennilega i eyrum margra og sumum finnst efalaust engin spuming um að „auðvitað eru mín böm mín, en ekki þín.” En málið er flókið og slíkar spurningar koma gjarnan upp Fjölskyldan í fortíð og nútíð. Hvernig verður hún í framtíð? þegar rætt er um lífskjör barna af einhverri alvöru. En yfirleitt verða einhverjir reiðir, jjegar sagt er að börnin séu okkar allra, því þeim finnst, að það sé verið að vanhelga fjölskylduna og taka eignarrétt foreldra yfir börnum sínum frá þeim. — Það er hins vegar ekki tilgangurinn þegar þessi mál ber á góma. Tilgangurinn er sá að fá fólk til að ræða um skyldur samfélagsins gagnvart börnum. Foreldrar eru háðir því að þeir búa i ákveðnu samfélagi og að það samfélag býður þeim upp á ákveðin skilyrði. Flestallir foreldrar verða að vinna úti, bæði af því að það er dýrt að lifa og vegna þess að gerð er sú krafa að allir eigi helst að eiga eigið húsnæði. Fólk verður þvi að vinna mikið. Þar sem flestir eru háðir efnahag sinum og vinnu sinni eru þeir líka háðir því að láta aðra gæta barnanna fyrir sig meðan þeir eru að vinna. Flestir þurfa að bíða árum saman eftir dagheimilisplássi og sumir fá það aldrei. Sumir þurfa að hendast ár eftir ár með börn úr einni pössun í aðra af þvi að annað er ekki til. Öllum foreldrum stendur ógn af þróun umferðarinnar og allir foreldrar eru háðir því hvernig fjölmiðlar, skólar og neytenda- samfélagið hefur áhrif á börn. Börnin eru ekki bara mín börn ... eða hvað? — Er hver hlýðinn? Áttu við Sigurbjörn eða hundinn? 52. tbl. Vikan 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.