Vikan


Vikan - 28.12.1978, Blaðsíða 22

Vikan - 28.12.1978, Blaðsíða 22
INI-KRIMMINN Hann hafði setið i samtals átta ár í friði og ró á bak við rimlana og þaulhugsað málið. Hann hafði ekki gleymt einu einasta smáatriöi. Þegar hann slapp út, hafði hann tafarlaust samband við gamlan félaga sinn, Rimlastrákinn, sem útvegaöi skotvopn og tóman kartöflupoka. Og svo steyptu þeir sér út i stórkostlegasta bankarán allra tíma. Geti maður bara setið í friði og ró og þróað vissa hugmynd — snúið henni og velt á allar hliðar og tekið öll hugsanleg sjónarmið til greina, fær maður líka oftast miklu meira út úr henni heldur en ef maður hleypur til og framkvæmir hana að óyfirlögðu ráði. Tökum til dæmis Karlo. — Hann hafði vissulega nóg af friði og ró til að þaulhugsa málið. Hann sat i átta ár á bak við rimlana, þar sem hann skreytti rugguhesta og setti saman þvottaklemmur. Og þegar hin þunga, járnslegna fangelsishurð opnaðist fyrir honum og hann gekk út undir bláan himin Drottins vors sem frjáls maður, var áætlunin tilbúin. — Mig vantar bara skotvopn, Thorvald, sagði hann nokkrum dögum siðar, er þeir félagar sátu á veitingahúsi við Vester- brogötu og ræddu hina stór- kostlegu áætlun. Thorvald, sem á meðal vina sinna gekk undir nafninu Rimlastrákurinn, var gamall félagi Karlos. Hann hafði verið látinn laus til reynslu og brann nú í skinninu eftir að komast í eitthvað feitt. — Skotvopn, endurtók hann, um leið og hann laumaði einhverju þungu í vasa Karlosar. — Og gamlan kartöflupoka, hélt Karlo áfram. Þvi miður hafði Rimla- strákurinn engan slíkan poka á sér, en áleit að sér yrði ekki skotaskuld úr þvi að útvega slíka nauðsynjavöru. WILLY BREINHOLST Svo skoluðu þeir niður brennivíninu og stóðu á fætur. Andartaki síðar sigldu þeir út, og engan gat grunað þar færu tilvonandi milljónamæringar. Ef allt gengi að óskum. Þýð. Jóhanna Þráinsdóttir. Klukkustund siðar brugðu þeir sér inn í stærsta bankaúti- búið í hverfinu. Þar var enginn viðskiptavinur nema ein gömul kona, sem var að láta reikna út vexti á bókina sína. Strax og hún var farin, nálgaðist Karlo kassa 1. Hann dró byssuna upp úr vas- anum og beindi henni að óttaslegnum gjaldkeranum. — Reyndu svo að rétta upp krumlurnar, hrópaði hann. — SIÐMENNTAÐIR ÞORPARAR 2Z Vlkan sz. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.