Vikan - 28.12.1978, Qupperneq 23
Hér er nefnilega um vopnað rán
að ræða. Sá sem gerir minnstu
tilraun til að hreyfa sig, jafnvel
þó það sé ekki annað en að
blaka eyrunum, verður
samstundis fylltur af blýi.
Og hann lét ekki sitja við
orðin tóm. Útibússtjórinn gerði
sig liklegan til að grípa til
aðvörunarbjöllu, en Karlo skaut
tafarlaust að honum skoti sem
straukst rétt við tærnar á
honum. Eftir það þorði hann
ekki að hreyfa sig.
— í næsta skipti fær eftirlætis
líkþornið þitt að fjúka, bróðir
sæll, sagði Karlo, kalt og
miskunnarlaust.
Á meðan hafði Rimla-
strákurinn aflæst dyrunum. Nú
nálgaðist hann kassa 1 með
gamlan, tóman kartöflupoka.
— Reyndu svo að hósta upp
svo sem 30 milljónum, meistari,
sagði Karlo við gjaldkerann, og
það í stórum seðlum.
Rimlastrákurinn tróð
seðlunum í pokann meðan
Karlo skýldi honum með
byssunni. Gjaldkerinn tæmdi
skúffuna af lausafé og hendur
hans skulfu.
— Taktu heldur búntin, sagði
Karlo. — Þá verður ekki eins
mikið múður fyrir okkur að
telja. Við förum strax og þú ert
búinn að láta okkur fá 30
milljónir.
Rimlastrákurinn tróð enn
stærri haugum af peninga-
seðlum í pokann.
— Þá er það komið, sagði
hann andartaki seinna. — Nú
höfum við nákvæmlega 30
milljónir.
Karlos gekk aftur á bak til
dyranna. Hann gætti þess
vandlega að beina byssunni
stöðugt að hinu óttaslegna
afgreiðslufólki.
— Þið hreyfið ykkur ekki
næstu tiu mínúturnar, sagði
hann og gerði sig líklegan til að
opna dyrnar.
Rimlastrákurinn flýtti sér að
rétta honum hjálparhönd.
— Bíddu, sagði Karlo allt í
einu. — Ég hafði næstum
gleymt því mikilvægasta. Við
kunnum sko að hegða okkur
eins og siðmenntaðir þorparar.
Hann stakk byssunni í lúkuna
á Rimlastráknum.
— Skýldu mér meðan ég geng
frá þessu, sagði hann. Og svo
skýldi Rimlastrákurinn Karlo . .
. á meðan hann skrifaði
nákvæma kvittun fyrir hinum
ágætu skildingum og afhenti
gjaldkeranum á kassa 1 hana.
— Gjörið svo vel, meistari,
sagði hann við gjaldkerann. —
Nú stemmir uppgjörið að
minnsta kosti. Og nú er vist best
að koma sér af stað.
Hann þaut að dyrunum með
Rimlastrákinn á hælunum. Þeir
flýttu sér út i bílinn sem beið
þeirra. Rimlastrákurinn gaf all-
hressilega í og þeir hurfu eins og
þrumur og eldingar fyrir hornið.
— Stígðu bara drusluna í
botn, félagi, tautaði Karlo, um
leið og hann leit óstyrkur aftur
fyrir sig.
Nú var um að gera að hafa
hraðan á.
Þorpararnir tveir voru komnir
töluvert út fyrir bæinn, þegar
Rimlastrákurinn snarbremsaði
svo skyndilega, að Karlo skall
með ennið á framrúðunni.
— Fábjáni get ég verið,
tautaði hann. — Við verðum að
snúa við. Ég gleymdi nefnilega
því allra mikilvægasta.
Pokanum!
NANCY HELGASON
Allt
umegg
Notaðu aldrei ísköld egg f bakstur-
inn, ekki heldur til að þeyta. Ef þú
tekur þau beint út úr Isskápnum fyrir
notkun settu þau þö I volgt vatn i
svo sem fimm minútur, þá ná þau
réttu hrtastigi.
Ef þú missir egg á gólfið stráðu þá
salti á það, láttu það liggja i fimm
minútur og sópaðu þvi svo upp með
kústi.
Ef skurnflfs kemst f eggið þegar þú
brýtur það, notaðu þá stœrri flfs til
að ná henni upp.
Ef þú átt færri egg en uppskriftin
segir til um geturðu notað kartöflu-
mjöl i staðinn, i hlutföllunum einn á
móti þremur. Einnig geta tvær eggja-
rauður komið I stað eins eggs i
næstum hvaða uppskrift sem er.
Ef eggin festast við umbúðirnar
geturðu losað um þau án þess að
brjóta þau með þvi að væta umbúð-
irnar.
Þegar þú aðskilur hvituna og
rauðuna kemur oft fyrir að hluti af
rauðunni fylgir hvítunni. Það er afar
mikilvægt aö fjarlægja hana því að
annars þeytist hvftan illa. Þú getur
búið til „rauðusegul" með þvi aö
væta hreinan klút. Siðan dýfirðu
honum i hvituna og rauðan fylgir
með.
Ef eggið brotnar við suðu, settu þá
annaðhvort 1 teskeið af salti,
nokkra dropa af sitrónusafa eða
ediki út i vatnið. Það kemur í veg
fyrir að eggið leki. Ef þú uppgötvar
að eggið er brotið áður en þú sýður
það, vefðu það þá i álpappir og
gættu þess að brjóta vel upp á
endana. Eftir suðuna er egginu svo
dýft í kalt vatn áður en það er tekiö
úr álpappírnum. Annars gæti það
haldið áfram að sjóöa.
52. tbl. Vikan 23