Vikan - 28.12.1978, Page 42
— Já, og ég held aö lafði Grayle verði
einnig varkár.
Fröken MacNaughton gekk út úr
salnum.
Parker Pyne sá ekki lafði Grayle fyrr
en við kvöldverðinn. Hún sat í
borðsalnum og reykti og brenndi
pappírssnepil í öskubakkanum. Hún lét
sem hún sæi hann ekki, og hann gekk út
frá þvi, að hún væri ennþá sármóðguð.
En
FTIR kvöldverð spilaði hann
bridge við sir George, Pamelu og Basil.
Ekkert þeirra virtist sérstaklega
áhugasamt um spilamennskuna, þau
hættuþvísnemma.
Það var nokkuð liðið á nóttu, þegar
Parker Pyne var vakinn harkalega af
værum svefni. Mohammed stóð við rúm
hans:
— Lafðin er mjög slæm.
Hjúkrunarkonan er óttaslegin. Ég reyni
aðsækja lækni.
Parker Pyne flýtti sér að klæða sig í
buxur og slopp. Hann kom að klefa lafði
Grayle samtímis Basil West. Sir George
og Pamela voru þar fyrir. Elsie
MacNaughton gerði allt, sem í hennar
valdi stóð, fyrir sjúkling sinn. Um leið og
Parker Pyne kom inn í klefann fóru
krampaflog um líkama aumingja
konunnar. Hún stífnaði upp og datt
afturábak. Dauð.
— Jú, víst hef ég heyrt um gegnsæjar blússur, en
er þetta nú ekki fulllangt gengið?
Parker Pyne dró Pamelu gætilega
með sér út úr klefanum.
— Hryllilegt, hikstaði unga stúlkan.
— Guð, en hryllilegt. Er hún, er
hún ...?
------Dáin? Já, ég er hræddur um
það.já.
Hann lét Basil um stúlkuna. Nú kom
sir George líka út úr klefanum. Hann
virtist alveg utan við sig, ráðvilltur og
skelfingu lostinn.
— Ég hafði ekki grun um, að hún
væri raunverulega svona slæm, tautaði
hann. — Datt ekki eitt augnablik i hug,
að það væri alvara.
Parker Pyne gekk aftur inn i klefann.
Elsie MacNaughton var náföl og
andlitið svipbrigðalaust. — Hefur
nokkur sent eftir lækni? spurði hún.
— Já, já. Hann þagnaði, en sagði eftir
umhugsun: Striknín?
— Já. það er enginn vafi. Ó. ég trúi
þessu varla. Hún settist kjökrandi á stól.
Hann lagði höndina á öxl hennar í
huggunarskyni.
Svo datt honum allt í einu nokkuð i
hug; hann hráðaði sér út úr klefanum og
gekk niður í borðsalinn. í öskubakka
fann hann hálfbrenndan pappírssnepil,
það voru bara fáein orð, sem voru
læsileg:
„Draumar. Benndu þetta!"
— Humm, sagði Parker Pyne. —
Þetta var athyglisvert.
EnN, viku siðar sat herra Parker
Pyne frammi fyrir háttsettum embættis-
manni i Kairó. — Þú segir nokkuð, sagði
hann —svo það er sannað. Hann virtist
ekki sannfærður.
— Já, og með gildum rökum. Maður-
innhlýtur aðverafífl.
— O, jæja. Ekki vil ég nú segja, að sir
George sé fífl, en kannski ekkert gáfna-
ljós.
— Nei, það má nú segja!
Lögreglumaðurinn fór yfir það sem
hann vissi: — Lafði Grayle vill fá bolla
af kjötseyði. Hjúkrunarkonan fer fram I
eldhús eftir því. Næst vill hún endilega
fá sérri. Sir George útvegar það.
Tveimur timum síðar er lafði Grayle
látin og allt bendir til þess, að það sé
vegna eitrunar af striknini. í klefa sir
George hefur fundist lítill pakki af þessu
eitri, auk þess var hann með umslag i
vasanum með eitrinu í.
— Humm, vafalaust nákvæm
rannsókn, sagði Parker Pyne. —
Hvaðan kom annars eitrið?
— Já, við erum i nokkrum vafa, hvað
það varðar. Hjúkrunarkonan hafði
litilsháttar með sér ef lafði Grayle skyldi
fá fyrir hjartað. En hún er i mótsögn við
sjálfa sig. Fyrst sagði hún, að það
litla, sem hún tók meðferðis, hefði þegar
verið notað, en nú segist hún sakna
hluta af skammtinum, sem hún átti eftir.
— Það er ekki líkt henni að vera
ónákvæm i frásögn, sagði Pyne og
nuddaði hökuna hugsi.
— Ég held nú, að þau hafi verið bæði
að verki, sir George og
hjúkrunarkonana. Þau líta hvort annað
hýru auga.
— Má vera. En ef fröken
MacNaughton hefði skipulagt morð, er
ég viss um, að hún hefði ekki farið
svona klaufalega að.
— Hvað um það, ég hefi sagt þér,
hvernig málin standa. Sir George
sleppur ekki frá þessu, það á eftir að
velgja honum betur undir uggum.
— Við sjáum nú til, sagði Pyne. — Ég
sé, hvað ég get gert.
Enn aukin
þjónusta!
Ókeypis eyðublöð á afgreiðslunni:
Bíll: Sölutilkynningar, tryggingabréf, víxlar, afsöl
Lausafé: Kaupsamningar, víxlar.
Húsnæði: Húsaleigusamningar.
Dagblaðið er smáauglýsingablaðið
Dagblaðið afgreiðsla Þverholti 11 sími 27022
Miðstöð smáauglýsingaviðskiptanna
Smáauglýsingaþjónustan.
ÆMBIABW
Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022
4XVIkan S2. tbl