Vikan - 28.12.1978, Blaðsíða 51
Danlel Stefánsson blandar verðlaunadrykk
sinn, Dancki'.
!_______________________________________________
fl
im/! ' 1
Ragnar Pátursson fákk 3. verðlaun fyrir sinn
kokktsii. QaunttoL
Barþjónaklúbbur íslands hefur haldið
árlega keppni í blöndun áfengra drykkja
síðan 1963. Fer hún fram í þremur
áföngum, þannig að eitt árið er keppt i
blöndun sætra kokkteila, annað árið long
drinks og það þriðja þurra kokkteila.
Verðlaunahafi hvers drykks fyrir sig tekur
síðan þátt í alþjóðakeppni, og verður sú
næsta í Júgóslavíu 1979. íslendingar hafa
staðið sig mjög vel í þessari keppni og
unnið til verðlauna á erlendri grund.
íslenskir barþjónar gera því víðreist í
sambandi við þessa keppni, 1971 lögðu þeir
Daníel Stefánsson á Sögu og Bjarni
Guðjónsson á Loftleiðum upp í 6 vikna
hnattferð vegna slíkrar keppni í Tokyo.
Til gamans má geta þess, að árið sem
Boris Spasský keppir við Fischer um heims-
meistaratitilinn í skák á íslandi, vinnur
Daníel 1. verðlaun fyrir kokkteil, sem hann
skírir í höfuðið á hinum fræga Rússa. 1973
vinnur hann svo 2. verðlaun fyrir sama
kokkteil í alþjóðakeppni í Feneyjum, en þá
var heldur farið að halla undan fæti hjá
skákkappanum. Mátti þá lesa eftirfarandi
fyrirsögn í Visi: Spasský stendur sig vel í
Feneyjakokkteil, en illa í skákinni.
Þau nöfn, er íslendingar kannast hvað
best við í sambandi við blöndun
gómsætra kokkteila, eru vafalaust Símon í
Naustinu, Daníel á Sögu og Bjarni á
Loftleiðum, enda hafa þeir félagar unnið til
margra verðlauna. En í þeirri keppni, sem
nýlega var haldin í blöndun þurra
kokkteila, bættist nýtt nafn við í hópinn,
Ragnar Pétursson, Veitingahúsinu
Snorrabæ. Leikar þar fóru svo, að Bjarni
vann 1. verðlaun fyrir kokkteilinn Glacier
Sun (Jöklasól), Daníel 2. verðlaun fyrir
Dancin’ og Ragnar 3. verðlaun fyrir
Gauntlet. Uppskriftirnar birtum við
einmitt í þessu blaði.
Uppskriftirnar að þessum drykkjum eru
annars algjört ríkisleyndarmál, þar til eftir
verðlaunaafhendingu, en lúmskan grun
höfum við um, að þeir félagar hafi leitað
álits eiginkvenna sinna áður en til leiks var
gengið, en Daníel hefur þar sérfræðing sér
við hlið, sem er eiginkona hans, Karen
Kristjánsdóttir, barþjónn á Loftleiðum.
Þau hjón kynntust á sínum tíma í Lídó,
unnu síðan saman á Sögu, en Karen vinnur
nú undir stjórn Bjarna Guðjónssonar á
Loftleiðum.
Þeir félagar voru sammála um, að keppni
þessi hefði lagt sitt af mörkum til að bæta
vínmenningu á íslandi. Eftirspurn eftir
kokkteilum hefur aukist mjög, þá sér-
staklega long drinks, en það bendir til þess,
að fólk drekki fremur bragðsins vegna en
áhrifanna. Einnig töldu þeir, að yngra
fólkið, sem hefur alist upp við bari sem
sjálfsagða hluti, kunni tiltölulega betur
með vín að fara en eldra fólkið.
Þeir kunna allir ákaflega vel við starf sitt
og viðurkenna, að það sé sitthvað til í því,
að barþjónum sé trúað fyrir fleiri hjartans
málum en nokkurri annarri stétt og
algengt, að barstóllinn breytist í skriftastól.
Vikan óskar þeim til hamingju með
sigurinn og þakkar þeim meðfylgjandi
uppskriftir að gómsætum áramóta-
kokkteilum.
JÞ
52. tbl. Vikan 51