Vikan


Vikan - 28.12.1978, Side 62

Vikan - 28.12.1978, Side 62
POSTIRIW Enn um Rfí Hún Fífí gerir það ekki enda- sleppt. Eins og þeir, sem lásu greinina „Hundalíf’ í 43. tölu- blaði muna, var hún fyrst talin af kyninu cocker spaniel og síðan af blönduðu kyni. En samkvæmt bréfi, sem eigendum hennar, Snæbirni Ásgeirssyni og fjölskyldu, Seltjarnarnesi, hefur nýlega borist frá sérfræðingi í þessum málum, er Fífí af hreinræktuðu kyni og mikil aðalsfrú: „Herra Snæbjörn Ásgeirsson og fjölskylda. Þar sem ég las viðtal við þig í sambandi við Fífi í Vikunni, þar sem því er haldið fram, að hún sé af blönduðu kyni, langar mig að segja þér, að þar hefur þú rangt fyrir þér. Fífí er hreinræktuð, og þessi hundategund kom til íslands fyrir um það bil 12-15 árum frá USA með Brúarfossi. Tegundin er alveg sérstök og heitir Harondell Lowchens. Þetta veit ég mjög vel, þvi ég á nákvæm- lega eins tík. Hún er nú fimm ára, og það yrði erfitt að þekkja þær Fífí í sundur, svo líkar eru þær. Eins hef ég séð tvo hunda búsetta í Reykjavík af sama kyni. Þeir eru 7 og 9 ára gamlir.” Vikunni þykir heiður að því að hafa þannig óafvitandi orðið til þess að skera úr um hinn óljósa uppruna Fífíar, sérstak- lega þar sem komið hefur í ljós, að hún er af mun göfugri ættum en talið hefur verið, og þakkar bréfritara athugasemd hans. Viðtöl víð fótboltagæja Sæll Póstur minn! Ég sá í síðustu Viku, að þú fékkst bréf frá stelpu, sem telur sig vita eitthvað um ABBA. En gaman þætti mér að vita, hvort þessi stelpa veit eins mikið og hún gefur í skyn. Alla vega virðist hún ekki vita, að Agneta og Benny eru gift og Fríða og Björn búa saman, heldur víxlar hún því. Ég held, að þessi stelpa ætti að líta í gamlar blaðagreinar um ABBA, fyrst hún er svo fáfróð, að það þurfi að leiðrétta hana og segja henni til. Mér fnnst Vikan alltaf að verða betri og núna sé efni hennar mjög gott. Framhaldssögurnar eru langbestar að mínum dómi. Þið mættuð gjarnan vera meira með viðtöl við fólk, þó helst fótboltagæjana. Hvenær kemur viðtalið við Ásgeir Sigurvinsson? Ég sá í gömlu Vikublaði, að í þarnæsta blaði kœmi viðtal við Sigurð Dagsson. Það var í 27. tbl. 27. árg. 3. júlí 75. Hvar get ég náð í þetta blað? Hvernig er best að snúa sér, þegar maður ætlar að gerast áskrifandi og býr úti á landi? Geturðu gefið mér upp nafn á blaði í Kanada, sem tekur á móti óskum um pennavini? Með von um að Helga sé ekki svöng. Bless, bless. Fröken Snjáldra. Öll gömul blöð Vikunnar getur þú fengið með því að hafa samband við blaðadreifinguna í Þverholti 11. Viljir þú gerast áskrifandi, getur þú bæði hringt eða bara skrifað Vikunni og þá ættir þú að taka fram, frá hvaða tíma þú vilt gerast áskrifandi. Beiðni um viðtal við Ásgeir Sigurvinsson kom Pósturinn á framfæri við rétta aðila. Pennavini í Kanada ættir þú að geta fengið með því að skrifa til Lögberg-Heimskringla, 1400/191 Lomgard Ave, Winnipeg, Kanada. Át tvo tertubotna á einum degi Kæri Póstur! Ég á við vandamál að stríða, sem ég hugsa að nokkrir aðrir hafi líka. Ég er spikfeit og með óteljandi bólur í andlitinu, og sumar eru svo stórar, grænar og rauðar, að það er ógeðslegt að líta á mig. Ég hef oft farið til húðsjúkdómalæknis, oghann læturmigfá hylki ogsýru, en ég er með þurra og viðkvæma húð, þannig að ég skrælna og fagna. Nú er ég orðin alveg hryllileg og veit alls ekki hvað ég á að gera. Ég er búin að vera með bó/ur í 5 1/2 ár og þeim fœkkar aldrei nema í tvö skipti. Þá fóru þær alveg, en komu aftur og urðu verri. Ég er 166smá hæð, en 65 kg, sem sagt 9 kg of þung. Ég er búin að reyna oft að fara í megrunarkúr, en það tekst í mesta lagi í 1-2 vikur. Ég hef líka prófað Ayds, en verð bara svengri af því, en mamma er alveg á móti Línunni. Ég borða ekki mikið af sælgœti, en það er alltaf til nóg af brauði, kexi, bönunum o.f. hérna og ég er alltaf svöng. Ef égfœ mér eina brauðsneið eða eina kexköku, liggur við, að ég klári allan pakkann, og einn daginn var ég svo dugleg, að ég át tvo tertubotna á einum degi. Ég er alltafað skamma mig og mömmu, en það þýðir ekki neitt, mamma segir bara, að unglingar verði að borða. Mér myndi þykja mjög vænt um, ef Vikan gæti og vildi birta strangan en hollan megrunarlista fyrir unglinga, hvað maður ætti að borða upp á hvern einasta dag. Hvað á ég að gera til að standast freistingar? Með þökk fyrirfram. Ein í vandrœðum. P.S. Elsku Póstur, ég vona að þú getir birt þetta fyrir 7. des., því égfœ að kaupa Vikuna þangað til, en annars er hún orðin ansi dýr. Ef satt skal segja, gat Pósturinn varla varist hlátri, þegar hann las bréfíð þitt. Tveir tertubotnar — minna má nú gagn gera! Á skólaárum Póstsins var einmitt ein skólasystirin nákvæmlega eins og þú lýsir sjálfri þér. Hún var reyndar skapbesta stelpan í bekknum og átti allra hylli þrátt fyrir nokkrar bólur og auka- kíló. En mörgum árum síðar, þegar Pósturinn hitti hana á götu, ætlaði hann varla að þekkja hana. Hún hafði farið í Línuna og lést um ein tuttugu kíló og allar bólur auðvitað löngu horfnar. Því ættir þú bara að ræða málið við mömmu þína og fá hana til að segja þér, hvað hún hefur á móti Línunni. Þar gætir þú örugglega fengið einhvern góðan megrunarkúr fyrir unglinga, sem er til þess gerður, að unglinginn skorti þó engin efni, á meðan hann er að vaxa. Magn matarins segir sjaldnast nokkuð um næringargildið. Farðu aftur og aftur til húðsjúkdómalæknisins, hann er að þreifa sig áfram um, hvaða meðal hentar þér best, og það finnst að lokum, ef þú auðsýnir næga þolinmæði. Fæðuval þitt getur líka haft sitt að segja í sambandi við húðina, og því gæti húðin lagast, ef þú færir í góðan megrunarkúr. Hertu þig bara upp og gangi þér vel! Vonandi hefur móðir þin skipt um skoðun um innkaup á Vikunni, svo þú lesir þetta svar, sem því miður gat ekki birst fyrr. Vikan hefur reyndar hækkað, en alls ekki meira en allir aðrir hlutir þetta haustið, og því má heldur ekki gleyma, að hún hefur stækkað um heilar átta síður sem vegur upp á móti hækkuninni. 62 Vlkan 52. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.