Vikan


Vikan - 28.12.1978, Blaðsíða 63

Vikan - 28.12.1978, Blaðsíða 63
Skemmtilegustu krakkarnir í hennar bekk Hæ Póstur! Ég les Vikuna oft og mér finnst hún skemmtileg. Jæja, það er best, að ég snúi mér að efninu. Við erum hérna tvær vinkonur og erum jafngamlar, en við erum ekki í sama bekk og okkur langar til að vera saman í bekk. I bekknum hjá annarri okkar eru skemmti- legustu krakkarnir (sérstaklega strákarnir), en svo leiðinlegir í hinum bekknum. Skólastjórinn vill ekki láta breyta, að við höldum. En við hættum ekki fyrr en við getum verið í sama bekk. Hvað eigum við að gera? Góði segðu ekki „þið verðið að hafa þetta svona," því það viljum við ekki heyra. Vertu blessaður og við vonum að þetta birtist. Dagga og Linda Því miður hefur Pósturinn lítil völd i þessu máli. Bréfadálkur getur ekki flutt börn milli bekkja, og ef ykkur er einhver alvara, neyðist þið til að snúa ykkur til skólastjórans og komast að hans skoðun á málinu. Ef til vill hafið þið nú þegar skipt um skoðun og finnst nú, að einmitt hinn bekkurinn sé sá langskemmtilegasti. Öll svona mál eru fremur erfið viðfangs, og ef látið væri undan vilja nemenda, gæti það kostað algjört öngþveiti í skólanum. Jólabakstur — leiðrétting Að sjálfsögðu eru allir löngu búnir að baka til jólanna þetta árið og sennilega búnir að borða kökurnar líka. En það eru jól á hverju ári, og þar sem búast má við, að kökuuppskriftirnar í 48. tbl. verði oftar teknar fram, viljum við koma á framfæri leiðréttingu við eina uppskrift- ina. Prentvillupúkinn er sennilega hin mesta sykuræta, því að hann hefur gjörsamlega rænt 250 gr af sykri úr uppskriftinni að gyðingakökum á bls. 48 í 48. tbl. Við hérna á Vikunni komumst að raun um, að okkar árlegu jólabaksturs- uppskriftir eru mikið notaðar, því hingað hringdi fjöldi manns til að spyrja, hvað þarna hefði fallið niður. Við vonum einlæglega, að þessi meinlega villa hafi ekki komið að sök. Meinlegar nafnabreytingar i Jólablaðlnu urflu matnlagar nafna- breytingar I vifltali vifl Pól Andrésson, flugumajónarmann í Luxemburg, um afl detta i lukku- pottinn, en þar er hann ranglega nefndur Gunnar Andrésson. Einnig er rangt farifl með föðurnafn eiginkonu hans Ólínu, hún er Jónasdóttir, en ekki Einarsdóttir. Við bifljum Pál margfaldrar afsökunar ó þessum mistökum, um leifl og vifl viljum þakka honum ónœgjulegt spjall. J. Þ. Gleyminn Póstur Kæri Póstur! Þegar ég var að lesa gamla Viku, rakst ég á bréf, sem stelpa sendi Póstinum. Þar gaf hún upp heimilisfangið hjá Nick Nolte og ABBA. En eftir það hafa tvær eða þrjár manneskjur spurt um heimilis- fangið hjá Nick Nolte, en þú hefur alltaf svarað að þú hafir ekki hugmynd um það. En hér er heimilisfangið, og ég vona, að þú munir það næst: Nick Nolte, c/o I.C.M. 8899, Beverley Blud, Los Angeles. U.S.A. Ungfrú Dreki. Æ, æ — þar komst laglega upp um Póstinn. Hann veit nefnilega sáralítið um leikara og hljómsveitir, og allt þess háttar virðist fara inn um annað eyrað á honum og út um hitt. Þakka þér ábendinguna, allt slíkt er vel þegið, og nú ætlar Pósturinn að reyna að muna framvegis hvar Nick Nolte á heima. I þessari sögu um litla stúlku jafn fágæta og fallega, á sinn hátt og bláa rós er boðskapur um ást til allra. BÓKIN: DAUÐUR í 45 MÍNÚTUR rósin Banvænt æxlið á mænu Donalds stækkaði og stækkaði þangað til uppskurður var óhjákvæmilegur. En tilþess að hann tækist, urðu læknarnir að stöðva starfsemi hjarta hans og heila — gera hann að lifandi líki. BÓK f BLAÐFORMI Ævisaga séra Jóns Steingrímssonar er eitt með merkarí rítum, sem við eigum. Hér er rætt ofurlítið um þessa merkilegu rítsmíð og grípið niður í hana hér og hvar. DAGLEGT LÍF Á ÍSLANDI Á ÁTJÁNDU ÖLD Sttbl. Vlkan 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.