Vikan - 21.08.1980, Blaðsíða 4
Vikan og innanstokksmunir
... minntist
einhver á
máfastell?
Fyrir réttum eitt hundraö árum, eða
nánar tiltekið árið 1880, var opnuð
verslun i húsinu sem telst núna Vestur-
gata 6 i Reykjavik. Húsið byggði hinn
landsþekkti Geir Zoega og hann var
einnig eigandi búðarinnar. Núverandi
eigendur eru þrjú eftirlifandi böm (ieirs
og verslunarstjóri er barnabarn hans,
]>óra Magnúsdóttir. Liklega hafa fáar
verslanir verið jafnlifseigar hérlendis.
Í upphafi var þarna uni eins konar
krambúð að ræða en smáni saman
breyttist svo verslunin þar til aðal
vörurnar urðu leirtau og styttur. Þessi
búð ber líklega ábyrgðina á þvi að hér á
árum áður voru dönsk postulinsstell
ómissandi stöðutákn, likt og litsjónvörp
og rafmagnstæki urðu síðar, t>egar
minnst er á máfastell eru allir með á
nótunum. Nafnið eitt er orðið samheiti
hinna ýmsu gerða postulínsstella. og i
bókmenntum er það ósjaldan notað til
þess að gefa lesendum til kynna ákveðn
ar manngerðir. punkturinn yfir i-ið i
mannlýsingunni.
Postulinið barst hingað til Evrópu frá
Kina og i upphafi voru Kínverjar einir
um að þekkja leyndardóma postulins-
húðarinnar. Eftir að hinunr þýska J. E.
Bottger hafði svo tekist að uppgötva
galdurinn um 1710 spruttu upp verk
smiðjur um alla Evrópu. Danir stofnuðu
Hina konunglegu postulinsverksmiðju
og allir þekkja postulinið frá Bing og
Gröndahl. Kosturinn við postulinsstellin
er einkum sá að alltaf er hægt að fá nýtt
i staðinn fyrir það sem brotnar.
Verksmiðjan hefur 25 ára framleiðslu
ábyrgðog með þessu móti hafa hlutirnir
ólíkt meira gildi en ella.
Fyrsta stellið sem Bing og Gröndahl
framleiddu er einmitt máfastellið
tittnefnda og siðan eru liðin hvorki
meira né minna en 127 ár. En þctta er
ekki eina stellið frá verksmiðjunni.
gerðirnar eru fjölmargar og mynstrin ólík.
Hér á síðunum sýnunt við myndir af
einni gerð. en mörgunt ntynstrum.
Þarna er unt að ræða sömu hlutina i
grunnuppbyggingu sent siðan eru
málaðir og gylltir á ýmsa vegu. Máfa-
Máfurinn:
Kaffisett:
Bollapar 21.235.
Kökudiskar (sama verö á hverjum
um sig) 25.715.
Sykurkar 22.835.
Rjómakanna 14.500.
Bakki 21.600.
Kertastjaki 7.500.
Úskubakki 8.610.
Konfektskál 42.000.
Matarsett:
Vasi 31.675.
Sósuskál 46.695.
Djúpur diskur 12.960.
Grunnur diskur 14.560.
Tarina 122.000.
öskubakki 9.750.
4 Vikan 34. tbl.
\