Vikan - 21.08.1980, Blaðsíða 26
Fimm mínútur með Wiily Breinholst
SALLY FRETAR
Á BÓNDA SINN
Það var mikil lífsreynsla að vera
gift Chicago-gangsternum
Robbie Killer eins og þið rétt
getið ímyndað ykkur. Sally hafði
haldið það út í heil 7 ár og bar
þess orðið merki. Hún var orðin
svo þreytt á honum að hún var
til í næstum hvað sem var til
þess að þurfa ekki að sjá hann
aftur. En hversu öfugsnúið sem
það annars kann að hljóma þá
sá hún hann næstum því aldrei.
Robbie hafði nefnilega tamið
sér þann ósið að fela sig alltaf á
bak við dagblað við morgun-
verðarborðið, einu stundirnar
sem þau hjónin áttu saman.
Þegar Sally tyllti sér við
morgunverðarborðið sá hún
ekkert nema for- og baksiðu
Chicago Times og kannski eilítið
enni eiginmannsins þegar hann
teygði sig eftir kaffikönnunni.
Annars var það bara blaðið og
feitir puttarnir sem héldu á því.
Konur verða athuga eigin-
mönnum sem temja sér þann
ósið að lesa blöð við morgun-
verðarborðið því ekki hafa þeir
áhuga á konunum á meðan —
eins og blöðin eru líka leiðinleg!
Sérstaklega var þetta leiðinlegt
SaUyar vegna því útlinur hennar
voru þannig að vel var þess virði
að renna augunum upp og niður
eftir þeim svona í upphafi dags
svo ekki sé meira sagt. En það
gerði Robbie aldrei, hann hélt
fast um blaðið sitt og leit ekki á
annað.
Það liggur í augum uppi að
andrúmsloftið hlýtur að vera
orðið rafmagnað í húsi þar sem
bóndinn hefur ekki litið upp úr
blaði sínu á hverjum morgni í
heil 7 ár og konan komin á það
stig að henni er fyrirmunað að
taka þátt í fleiri morgunverðum
upp á þau býti.
Morgunninn sem sagt verður
frá hér byrjaði eins og allir aðrir
morgnar undanfarin 7 ár með
þeirri undantekningu að nú var
Sally með hlaðna Browning
skammbyssu i hendinni þegar
hún fékk sér sæti gegnt hús-
bónda sínum.
— Góðan daginn, ástin mín!
sagði hún með nákvæmlega
sömu hlýjunni í röddinni og
2555 undanfarna morgna.
— Daginn! tuldraði maðurinn
á bak við dagblaðið og virtist
ekki mjög spenntur fyrir
framhaldinu.
Sally dreypti aðeins á djús-
glasinu sinu.
— Þú komst seint heim í
gærkvöldi, Robbie, var eitthvað
sérstakt um að vera?
— Hummmmmm.
— Rænduð þið bankann í
Scarsdale, eins og Luiz vildi?
— Hummmmm.
— Þýðir það já?
— Nei!
Sally leit með heift á forsiðu
Chicago Times en sá ekkert
nema fyrirsagnir og feita fingur.
Robbie heyrði aðeins það sem
hann vildi heyra og lokaði svo
eyrunum þess á milli. Sally
teygaðidjúsinn.
— Brannigan lögreglufulltrúi
hringdi.
— Hummmmm!
— FBI hefur náð tangarhaldi
á Larry.
— Hummmmmm.
— Hann er víst byrjaður að
kjafta frá — gengur bara vel,
sagði Brannigan.
Ilnilurimi 21. niars 20.;i|»ril
N.iulið 21. :*praI 2l.mai
Tiihururnir 22.m;ii 2l.júni
kr.'hhinn 22. júni 2.T júli
l. jónið 24. júli 24. :ii*ú»l
Mej j;in 24.;ii»úsl 2.4.scpl
Þú ættir að fara að
hugsa til framtíðarinnar.
Eitthvað, sem skiptir
miklu máli að taka
ákvörðun um, hefur
vafist fyrir þér og þú
ættir einu sinni að
brjóta odd af oflæti
þinu og spyrja aðra
Ferðalög annarra
virðast koma eitthvað
við þig þessa viku. Að
öðru leyti er þetta
heldur róleg vika og
góð til allrar íhugunar.
Þeim sem standa í ástar-
bralli ætti hún að
reynast góð.
Þig hefur langað að fara
eitthvaðíalltsumar.en
það hefur dregist. Ef þú
ætlar að láta verða af
því er eins gott að drifa
í því, næstu vikur geta
orðiðerilsamar.
Vertu vakandi yfir öllu
umtali, einhver er að
reyna að bera út slúður
sögur. Ef þú færð tæki-
færi til að verja góðan
vin, þá skaltu gera það.
Óvænt atvik mun henda
þig um helgina.
Konur í Ijónsmerkinu
ættu að ferðast eitthvað
þessa viku. Það er von á
spennandi kynnum á
framandi stöðum. Karl-
Ijón geta búist við
svipuðu, en þurfa þó að
vera venju fremur var
kárir i umferðinni.
Þú færð góðar fréttir
þessa viku, frá gömlum
vini. Ekki er óliklegt að
þær hafi eitthvað sér-
stakt að segja fyrir þig,
en það er þó undir þvi
komið að þú sért reiðu-
búinn að taka vissa
áhættu.
ráða.
Það sem þér fannst
óyfirstíganlegt vandamál
fyrir skemmstu er nú
orðið leikur einn.
Reyndu að drifa þig i að
takast á við verkefnið,
áður en þér vex það
aftur i augum.
SporAdrckinn 24.okl. !!.Vnói.
Þú umgengst einhvern
sem er í heldur leiðu
skapi þessa dagana.
Reyndu að stilla þig um
að vera með óþarfa
nagg og aðfinnslur,
þetta gengur yfir. Farðu
með bilaðan hlut í við-
gerð.
Hotíninúiirinn 24.nói. 2l.dcs
Þú mátt búast við því
að margt af því sem þú
hafðir áætlað geti ekki
orðið þessa viku. En
vertu rólegur, þvi það
kemur dagur eftir þenn-
an dag. Eitt símtal gæti
leyst margt.
Slcingcilin 22.dcs. 20. jan.
Einhverjar breytingar
eru framundan sem þú
ert ekki alls kostar sátt-
ur við. Það er alveg
ástæðulaust að láta reka
á reiðanum. Ef þér
finnst þú þurfa að
breyta einhverju, gerðu
það þá.
Valnshcrinn 2l.jan. 1‘í.fchi.
Verkefni sem þér finnst
lítilvægt og þú hefur
næstum gleymt verður
i brennidepli þessa viku.
Þú mátt búast við að fá
ákúrur ef þú hefur van-
rækt skyldustörfin,
lærðu af þessu.
Kiskarnir 20.fchr. 2(Lmars
Þér verður falið verk-
efni, sem þér þykir
þrautleiðinlegt. En það
verður ekki alltaf skor-
ast undan leiðinlegum
skyldum. Reyndu að
gera þér glaðan dag
sjálfur og helst í góðum
hópi.
26 Vikan 34. tbl.