Vikan - 21.08.1980, Side 18
Stórbær með Ijómandi torg
Borgarfjarðarbrúin er ein af
ástœðum uppbygginyiir i Borgar
nesi.
' ;
■ "■
"
VAXANDI
KAUPTÚN:
Úr byggingarkrana við nýju mjólkursamlagsbygginguna sér í nýja vatnsgeyminn til vinstri og yfir Borgames til hœgri.
18 Vikan 34. tbl
LJÓSM.: JÓNÁSGEIR
Borgames hefur stækkað jafnt og þétt á
undanfömum árum, að sögn Guðmund-
ar Ingimundarsonar oddvita Borgarness-
hrepps. tbúar Borgarness eru nær 1600
talsins og hefur þeim fjölgað um 2-5
prósent undanfarin ár. Húsbyggingar og
iðnaðaruppbygging hafa verið stöðugar
að undanförnu.
Ekki hefur borið á atvinnuleysi í
Borgarnesi á þessum uppgangstímum
þótt ibúafjölgunina megi að talsverðum
hluta rekja til þess að fólk úr nágranna-
sveitum Borgarness og af Reykjavikur-
svæðinu hefur sest þar að. Guðmundur
Ingimundarson telur áberandi að ungt
fólk flytur af Reykjavíkursvæðinu til
staða þar sem uppbygging er mikil.
Borgarfjarðarbrúin
Hraðari uppbygging Borgarness hefur
meðal annars orsakast af byggingu
Borgarfjarðarbrúarinnar. Vatnsveitan
og heita vatnið sem fylgja í kjölfar
brúarinnar hafa einnig áhrif í sömu átt.
Bílaumferðin á Snæfellsnes, Vestfirði
og til Norðurlands fer núna um Borgar-
nes eftir nýju brúnni. Að mati
Guðmundar oddvita hefur umferðin um
kauptúnið aukist um 80-90 prósent.
Umferðin fer í gegnum kauptúnið eins
og er en áríðandi er að leggja veg utan
byggðar, frá brúnni út á Snæfellsnes-
vegamótin, umferðin verður þá við
bæjardyrnar en ekki i gegnum
kauptúnið, segir Guðmundur.
Við nýja veginn frá brúnni verður
byggð þjónustumiðstöð sem Hótel
Borgarness og kaupfélagið munu reka.
Þjónustumiðstöðin verður 1000
fermetrar að flatarmáli og í henni verða
verslun og kaffitería.
Eigendur hótelsins í Borgarnesi eru
Kaupfélag Borgfirðinga, sveitarfélagið
og Mýra- og Borgarfjarðarsýslur. Við
hótelbygginguna hefur verið reist
viðbygging sem komin er í gagnið að
hluta til. Tekin hafa verið í notkun 10
herbergi á efstu hæð nýbyggingarinnar,
önnur 10 bætast við næsta vor og
veitingaaðstaðan verður stækkuð um
150 prósent.
Byggingariðnaður
Byggingariðnaður er öflugur i Borgar-
nesi og við hann hafa margir vinnu.
Nokkrir tugir íbúða eru í byggingu á
hverjum tíma og einnig iðnaðar- og
þjónustuhúsnæði. Nægt framboð hefur
verið á iðnaðarlóðum i Borgarnesi enda
hefur iðnaður sifellt aukist og þannig
verið rennt traustum stoðum undir íbúa-
fjölgunina.
Aukning íbúðarhúsabygginga hefur
verið nokkuð jöfn. Sú meginbreyting
hefur þó orðið, að sögn Guðmundar
Ingimundarsonar, að uppsetning
verksmiðjuframleiddra húsa er algeng í
Borgarnesi.
„Það væri örugglega þensla í
byggingariðnaði hér ef ekki kæmi til að
um helmingur nýrra húsa í Borgarnesi er
fluttur hingað tilbúinn,” segir
Guðmundur. Þessi byggingarháttur
hefur tekið af kúfinn í byggingar-
iðnaðinum í kauptúninu.
Vatnsveitan
Verið er að leggja tvær nýjar vatns-
leiðslur um Borgarfjarðarbrúna og eiga
þær að flytja Borgnesingum allt kalt
vatn sem þeir þurfa. Vatnið hefur verið
flutt eftir leiðslum sem liggja á botni
fjarðarins, nokkuð neðan við nýju
brúna. Guðmundur segir það undrunar-
éfni að þessar leiðslur skuli ekki hafa
rofnað enn, svo mjög hefur straum-
þunginn aukist við brúarsmiðina.
Neysluvatnið fæst að mestu leyti úr
borholum á Seleyri undir Hafnarfjalli.
Til að dæla neysluvatninu hefur
rafmagn verið leitt frá Borgarnesi um
34- tbl. Vikan 19