Vikan - 21.08.1980, Qupperneq 28
Myndin er af Unni Jensdóttur og Eygló Harðardóttur. Ljósmyndari: Jim Smart.
EFNI: tvinnað band eða
kambgarn, 3-5 litir, 200-300 g. Fæst
hjá Islenskum heimilisiðnaði.
PRJÓNAR N R. 4 1/2 eða 5.
Garðaprjón.
Byrjað er á skakkanum að ofan.
Fitjaðar eru upp 7 lykkjur, siðan
er prjónað þannig:
1. umf. og allar stakar umf. eru
prjónaðar sléttar.
2. umf.: 3 sl., slegið upp á, 1 sl.,
slegið upp á, 3 sl.
4. umf.: 3 sl.,slegiðupp á, x 1 sl.,
slegiö upp á x, endurtekið frá x að
x, þar til eftir eru 3 lykkjur, slegið
upp á, 3 sl.
6. umf.: 3 sl., slegið upp é, 2 sl.,
slegið upp á, 3 sl. (miðlykkjur),
slegiðuppá,2 sl.,slegið upp á, 3 sl.
8. umf., 3 sl., slegið upp á, 4 sl.,
slegið upp á, 3 sl. (miðlykkjur),
slegið upp á, 4 sl., slegið upp á, 3
sl.
Þannig er haldið áfram að auka
út um tvær lykkjur é hvorum
helming í annarri hverri umferð,
þar til hyrnan þykir orðin nógu
stór. Fellt er af svo laust að
affellingin gefi jafnvel eftir og
sjálft prjónið. Þá er fitin saumuð
saman við hálsmál, þannig að
jaðrar mætist.
Ef rendur eru hafðar reglulegar
og litasamskeytin hrein öðrum
megin (réttu) er alltaf byrjað á
nýjum lit við sama jaðar og
gengið frá lausum endum siðast
með nál.
Ef randamunstur er haft óreglu-
legt skiptir minna máli hvar
byrjað er á nýjum lit. Það má
gera hvort heldur er í rtakri eða
jafnri umferð, ekki endilega við
jaðar heldur hvar sem er inni i
hyrnunni. Hún verður þá eins-
hliða, þ.e. fær hvorki réttu né
röngu.
Hægast er að skipta um lit
þannig: Béðir endarnir eru
SLITNI R og lagðir é misvixl um 6-
10 cm og prjónað úr þeim þannig
tvöföldum, endarnir látnir hverfa
ef unnt er. Til þess að þynna
samskeytin má rekja einn þátt úr
hvorum enda áður en þe'rr eru
lagðir á misvíxl.
Garðaprjón er ekki pressað en
jöfn áferð næst með þvi að
strekkja skakkann með titu-
prjónum á mjúkt undirlag, leggja
rakt stykki yfir og láta þorna. Ef
lausir endar standa út úr við lita-
skipti skal klippa þá af núna.
Uppsk.: Sigriður Halldórsdóttir.
28 Vikan 34. tbl.