Vikan - 25.09.1980, Síða 35
hugmynd, birtum viö hér nokkrar
teikningar at útsaumssporum.
Talsvert framboðer af fallegum
vefjarefnum, sem henta vel til út-
saums, t.d. indverskt silki, sænsk
og írsk hörefni, finnsk bómullar-
efni, íslensk ullaráklæöi og ullar-
jafi. Ættu því flestir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi og
skemmt sér við að spreyta sig við
mynsturgerð og val á útsaums-
sporum, auk þess að liti og efni er
þá auðveldara að samræma
híbýlum og húsbúnaði.
Engin ástæða er til að einskorða
sig við eina saumgerð, heldur
eykur það líf og fjölþreytni að
sauma margar gerðir i einn og
sama hlutinn.
Tvær sessurnar eru skreyttar
skorningi eða bótasaum, það er að
segja klippt eru út mynsturform
úr öðru efni (og má þá nota hvaða
afgang sem er) og lögð á sessu-
borðiö, síðan má festa þau niöur á
ýmsan hátt. T.d. með þéttu varp-
spori, tunguspori, klóspori, snúnu
lykkjuspori eða eins og hér refil-
saum. Er bótin þá fyrst vörpuð
niöur með tvinna og síðan lagður
þráður af útsaumsgarni við brún-
ina og saumað yfir hann meðfínni
þræði. Fer það eftir, hvaða efni er
í bótinni, hvort brjóta þarf inn af
brúnunum eða ekki. Utanvið
bæturnar er svo skreytt með fræ-
hnútum, refilsaum og tungusþori.
Þriðja sessan er líka gerð úr
mislitum bótum, en á svolítið
annan máta. Klippt eru út
sexhyrnd pappaform og utanum
þau eru bæturnar strekktar. Best
er að hafa svipuö efni í öllum
bótunum. Þær eru síðan varpaðar
þétt saman frá röngu hver við
aðra og mynda mynsturbekk eftir
endilöngum púöanum bæði í bak
og fyrir. Þessi bótabekkur er svo
felldur ofan á grunninn og lagt
niður við i höndum. Púðinn er úr
finnsku bómullarefni í bláum og
grænum litbrigðum, nema blómið
er í rauðum litum. Nokkrir
fræhnútar og línur eru saumaöar
til skrauts.
Tehettan er saumuð í súkkulaði-
brúnan hessian. Skornings-
mynstrið er úr sterkbláum og
grænum bómullarefnum, einu
röndóttu og öðru köflóttu. Nokkrir
grófir þræðir eru lagðir til að
tengja þetta allt saman. Hankinn
er myndaður úr nokkrum tré-
perlum.
Klóspor
Rúmenskt spor
Krosshnútur
Heimilisiðnaðarfélagið
— V. Pálsd.
39. tbl. Vikan 35