Vikan - 13.08.1981, Blaðsíða 14
Texti: Jón Baldvin Halldórsson
Þeir sem guðirnir elska deyja
ungir, segir einhvers staðar.
Vel má vera að svo sé þó það
bendi frekar í þá átt að fáir séu
í náðinni hjá almættinu. En
það er líka aldrei að vita hvað í
fari mannanna er guðum
þóknanlegt. Sumt í fari Bobs
Marley gæti hafa verið þannig
að guðunum líkaði, annað
ekki. Á móti sérstaklega
skapandi anda barðist eitrið
sem að lokum sigraði. Bob
Marley, þessi mikli konungur
reggae-tónlistarinnar, féll fyrir
ljánum þann 11. mai
síðastliðinn í sjúkrahúsi á
Miami. Þar með er hann
kominn í flokk þeirra fjöl-
mörgu popptónlistarmanna
sem hafa kvatt þennan heim i
blóma lífs síns en jafnframt
skilið eftir hjá aðdáendum
ódauðlega minningu og merk
tónlistarverk. Dauði Marleys
kom fáum á óvart. Vitað var að
hann gekk með ólæknandi
krabbamein sem myndi fyrr eða
síðar draga hann til dauða. Þó
alltaf sé erfitt að tala um
orsakir og afleiðingar þegar
sjúkdómar eru annars vegar má
fullvíst telja að í tilfelli Marleys
hafi eiturlyfin valdið krabba-
meininu. Hann hafði i mörg ár
verið háður mjög sterkum
lyfjum og gat raunar ekki án
þeirra verið einn einasta dag.
Þau voru því smám saman að
éta líkamann upp og um leið
deyfa sköpunarmáttinn. Ör-
lögin urðu ekki umflúin.
Bob Marley var borinn til
grafar þann 22. maí 1981 i
heimalandi sínu Jamaica. Og
BOB
það var engin venjuleg jarðar-
för. Heimurinn hefur sennilega
aldrei séð neina með því sniði
sem jarðarför reggae-kóngsins
var. Sérstæður maður var líka
kvaddur, einn af þessum
mönnum sem óafmáanlegan
stimpil hafa sett á ungt fólk um
allan heim. En hann hafði gert
meira og fyrir það komu lands-
menn hans til að þakka. Marley
hafði verið rödd Jamaica út á
við meira en nokkur annar
maður fyrr eða siðar og hann
hafði talað máli þjóðarinnar í
gegnum tónlistina.
Líkami Marleys var fluttur
frá Miami til Kingston á
Jamaica. Eftir athöfnina þar
var hann síðan færður 90
kílómetra leið til staðar sem
kenndur er við heilaga Önnu.
Þar hafði sérstakt grafhýsi
verið útbúið nærri þeim stað
þar sem Marley átti heima
fyrstu árin eftir að hann giftist.
Daginn fyrir jarðarförina lá
líkami Marleys á viðhafnar-
börum í stórri íþróttahöll sem
byggð var fyrir bresku samveldis-
leikana í Kingston árið 1962. En
þó höllin væri stór dugði hún
ekki fyrir öll þau ósköp af fólki
sem vildi koma til að votta
Marley virðingu sína. Milu
langar biðraðir mynduðust
utan við húsið og til smávægi-
legra átaka kom í þeim þegar
fólk reyndi allt til að sjá ,,guð”
sinn þó ekki væri hann lengur
lífs. Lögreglan þurfti á tímabili
að beita táragasi á mannfjöld-
ann.
Eftir sérstaka fjölskyldu-
kveðjustund í eþíópísku
14 Vikan 33. tbl.