Vikan - 13.08.1981, Qupperneq 28
Ég hætti ekki sjómennsku þótt ég
væri hættur á þessum skipum. Ég fór
iðulega út i Reynishverfi að fá mér róður
þegar leit vel út. Ég reið þá að heiman að
kvöldi og náði í róður að morgni. Ég átti
alltaf visst skiprúm hjá frænda minum
Finnboga Einarssyni I Presthúsum.
Hrifnastur var Gísli af
þeim utanferðum þegar
höfð var viðkoma f
Skotlandi. Kveðst hann
hafa lært þar margt og
mikið um nýjustu
búskaparhætti.
Fyrsti maður sem ég hitti í Skotlandi
var aldavinur föður míns, Helgi Helga-
son smiðameistari. Hann hafði flutt
snemma til Aberdeen í Skotlandi og
hafði lært húsa- og mublusmiði. Þó var
hann aðallega við skipasmíðar i
Skotlandi.
Helgi fór með mig í skoðunarferðir
þegar ég kom við i Skotlandi. Ég skoðaði
mig mikið um erlendis en sérstaklega
lærði ég margt um búnaðarhætti i
Skotlandi. Það var einkum verið að
sýna mér skepnurnar og ég varð sérstak-
lega hrifinn af svarthöfðafénu, mér þótti
það svo fallegt. Ég hef alla tíð haft
gaman af fé.
Skotar voru á undan okkur í öllu.
Vinnubrögð voru allt önnur en hér hjá
okkur, það var allt miklu fullkomnara.
Þar var vélvæðingin byrjuð en hér kom
hún ekki fyrr en með stríðinu. Hér voru
að vísu komnar hestavélar, þeir voru
fleiri sem áttu þær en ekki.
Ég byrjaði búskap fyrir alvöru árið
1927 og þá var það bara orfið og hrífan.
Þegar ég kom að jörðinni hérna gaf
túnið af sér 20 hesta og búið. Snöggur
blettur — það var tæplega yfir daginn
fyrir mig að slá það. Ætli ég hafi ekki •
verið með eitthvað nálægt 50 ám og
tvær kýr.
Siðustu búskaparárin mín, á meðan ég
bjó fyrir alvöru — ég bý nú ennþá hérna
á Leiðvelli, eyðijörð hér fyrir ofan sem
Landgræðslan á og hef haft hana i 16 ár
— ætli ég hafi ekki verið með um 600
fjár hér á jörðinni undir það að ég hætti
búskapnum. Og þá varég með 10 kýr.
Ég var með marga hesta þvi að ég var
með tvær sláttuvélar áður en ég fékk
traktorinn. Tvær hestavélar, þær standa
hér ryðgaðar og lélegar úti á túni.
En svo keypti ég gamlan Ferguson-
traktor með bensínvél árið 1952, keypti
hann með 20-diska herfi, plógi og sláttu-
vél. Og þá var nú ekki okkar gamla
lélega króna því það kostaði ekki nema
52.000 allt saman. Vélin gengur eins og
klukka, traktorinn er hjá mér upp frá hjá
fjárhúsunum. Þar læt ég hann þegar ég
er hættur heyskap og svo stendur hann
við fjárhúsvegginn þangað til ég ætla að
h
fara að nota hann við sláttinn. Og hann
er venjulega ekki kominn nema svona
tíu metra þegar hann rýkur í gang. Svo
gengur hann eins og klukka úr þvi. Þetta
eru alveg ódrepandi vélar.
Einu sinni kviknaði eldur í nýbyggðu
húsinu á Sandaseli í Meðallandi þar
sem ég var til heimilis. Það var ofsa-
veður og það svo mikið að það kviknaði i
rörunum í húsinu. Ég hentist upp I sót-
svart kabyssið og þar var allt fullt af
sokkadóti sem var verið að þurrka á
rörunum sem lágu upp i mæninn I
húsinu. Eg var oft skjótráður, eða gat
verið það. Ég skipaði kvenfólkinu að
hella vatni á gólfið, svo setti ég upp
drullublauta vettlinga og tók öll rörin
glóandi og setti allt saman niður á
eldhúsgólfið í vatnið. Þar með bjargaðist
allt, húsiðogallt.
En svo þurfti að fara út og gera við og
þá kom þessi visa:
Úti er hrið og ofsaveður.
Enginn veit hvað núna skeður.
eftir lita ýmsu þarf
Þeir, sem er . mikill þróttur léður.
þeim veikari fari meður,
velsvo þeirra virki starf.
Kveðskapur Gísla
Tómassonar hefur birst
í bókinni Laufskálar
sem út kom árið 1964.
En við rekum einnig
augu í Ijóð sem
tileinkað er Gísla .. .
Þegar ég varð áttræður, fyrir fjórum
árum, samdi Eggert Loftsson þetta:
Enn stendur Gísli ofar jarðvegi
albundinn trúnni á kraft Leiðvallar.
Áttræður hefur ofsa i veðri
Ægis við dætur dansinn stigið.
Jafnvígur varst á jarðar öll vopn
járnkarla, ljái, pál og reku.
Stórhöggur löngum i Stóraflóði
störina ósmáa skára gerðir.
Frá upphafi vega öll þín saga
ævintýra tengist glansi.
Dægrum saman I dölum afréttar
dökka þokan smalann tafði.
Forðum daga fangbrögð áttir
flugvötn við I Gvendaráli,
lá ekki við að lausar úr reipum
lækju klyfjar né röknuðu hnútar.
Ekkert sem hefur dagana á drifið
dró úr þér kjark né setti hljóðan.
Áfram lifir ókomna tíma
við orðstír þinn sem góðan gast þér.
Með þessum orðum um Stóraflóð er
átt við þegar Kúðafljót flóði yfir bakka
þannig að ég stóð í vatni að mitti við
sláttinn. í Sandaseli sló ég þá 50 hesta
upp úr flóðinu.
Sandasel stendur á bökkum Kúða-
fljóts og ég var alltaf að fylgja fólki yfir,
28 Vikan 33. tbl.