Vikan


Vikan - 13.08.1981, Page 31

Vikan - 13.08.1981, Page 31
Opnuplakat Knattspyrnufélagið FRAM „Það hefur víst löngum tíðkast hér í bæ, að strákar í ákveðnum bæjarhverfum og á líku reki héldu hóp og léku sér saman. Þeir voru að jafnaði baldnir og fyrirferðarmiklir. Fullorðna fólkið kallaði þá götustráka. Til eins slfks hóps má rekja stofnun Knattspyrnufélagsins Fram. Þessir strákar áttu flestir heima í miðbænum og í grennd við hann. Þó að miðbærinn sé enn í öllu verulegu með sama sniði sem þá, er þó að einu leyti mikil breyting á orðin. Þá var íbúð í hverju húsi að kalla og margir krakkar uxu þar upp. Við þennan miðbæjarkjarna bættust svo ýmsir' skólafélagar úr næstu hverfum. Á þessum árum mátti heita, að bærinn væri einn samfelldur leikvöllur. Fjaran var ekki síst, það voru víst ekki margir dagar, sem strákar blotnuðu ekki í fæturna. Tún um allan bæ og opin svæði önnur, Tjörnin og Melarnir. Loks voru göturnar, og raunar aðal- leikvangurinn. Þá var enginn bíll og fá reiðhjól. Leikir voru margvíslegir, þönglastríð í fjörunni, gengið á stultum, skoppað gjörðum, útilegumannaleikur, feluleikur, síðastaleikur, að hverfa fyrir horn og loks boltaleikur og að kasta bolta á þak eða í vegg. Það hét „strik og sto”. Svo var klink og stikk og fleira. En suður á Melum voru eldri strákar og ungir menn að sparka bolta. Oft var labbað suður eftir og horft með undrun og aðdáun á þennan nýstárlega leik. Það var ekkert undanfæri, þetta varð að reyna, og svo var ákveðið að stofna félag. Félagið okkar hét Fótbolta- félagið Kári, stofnað 1. maí 1908. Svo er skrifað skýrum stöfum á titilblaði fyrstu fundarbókarinnar. Það er býsna merkileg bók, það er fyrir þá, sem lifa upp skemmtilegustu ár ævinnar við að blaða í henni. Nafni félagsins var breytt á næsta ári.” (Úr Fram 50 ára, 1958) „Götustrákana” í miðbæ Reykjavíkur 1908 hefur vafa- laust dreymt um að félagið þeirra yrði stórt og öflugt. Sennilega hafa þeir samt ekki rennt grun í að það ætti eftir að verða það stórveldi sem raun er á. Knattspyrnufélagið Fram hefur 15 sinnum orðið íslands- meistari í knattspyrnu, fyrst 1913 og siðast 1972. Bikar- meistari fjórum sinnum á 11 árum, árin 1970, 1973, 1979 og 1980. Fram var sigurvegari í meistarakeppni KSÍ árið 1974 og nú í ár. Félagið hefur margoft orðið Reykjavíkur- meistari í knattspyrnu. í sjöunda sinn á tíu árum tekur Fram í haust þátt í Evrópukeppni í knattspyrnu. Fyrst lék Fram í Evrópu- keppninni árið 1971, gegn Hibernians frá Möltu. Raunar varð Fram fyrst íslenskra liða til að vinna leik í keppninni þegar það sigraði Hibernians á Möltu í öðrum leik félaganna, með 2:0. Fjölmargir leikmenn Fram hafa verið valdir í úrvalslið og landslið á liðnum áratugum. Núverandi fyrirliði Fram og íslenska landsliðsins, Marteinn Geirsson, hefur leikið fleiri landsleiki en nokkur annar íslendingur, alls 54 leiki. Unglingastarf Fram hefur löngum verið öflugt og margþætt. Reglulegar æfingar eru nú í knattspyrnudeild fyrir 2., 3., 4., 5. og 6. aldursflokk og að sjálfsögðu tekur félagið þátt í öllum opinberum mótum í þeim flokkum. Knattspyrnuskóli Fram er víðkunnur. Eru þar haldin hálfsmánaðar námskeið í júní, júlí og ágúst. Undirstöðuatriði knattspyrnunnar eru kennd og æfð og þátttakendum gefst kostur á að ljúka prófi í knattspyrnuþrautum KSÍ. Með 5. flokk er farið í æfingabúðir við Laugarvatn og fyrr í sumar fóru 30 drengir i 4. flokki í hálfsmánaðar ferð til fimm Evrópulanda. Unglingaráð og stjórn knattspyrnudeildar kappkosta að fá reynda og hæfa knattspyrnumenn og íþrótta- kennara til starfa sem þjálfara fyrir yngri flokka félagsins. Öflugt unglingastarf undan- farinna ára er nú að bera ríku- legan ávöxt hjá Fram. Útlit er fyrir að allir yngri flokkar félagsins komist í úrslitakeppni íslandsmótsins í sumar. Margir leikmenn úr 2. aldursflokki eru nú komnir í hóp meistara- flokksleikmanna. íþróttasvæði Fram er í Álfta- mýri í Reykjavík. Nú er unnið við gerð nýs grasvallar félagsins við hlið eldri grasvallar og malarvallar. Undirbúningur að byggingu íþróttahúss félagsins stendur yfir. Verður það mikið mannvirki og dýrt. Félags- heimili Fram er löngu fullnýtt fyrir ýmiss konar starfsemi. Framarar líta björtum augum til framtíðarinnar. Bætt og aukin íþróttamannvirki í Álftamýri gera kleift að efla starfsemina til muna. Getur félagið þá væntanlega tekið við enn fleira æskufólki til leikja og starfa. Að mati Framara er þó mest um vert að starfa áfram í þeim jákvæða félags- anda sem einkennt hefur starfið liðna áratugi. Sjá næstu opnu 33. tbl.Vikan 31

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.