Vikan


Vikan - 13.08.1981, Blaðsíða 51

Vikan - 13.08.1981, Blaðsíða 51
Draumar Einstök barns- fæöing Kæri draumráðandi! Ég hef nú aldrei skrifað til þín áður en læt verða af því núna. Mig dreymdi eftirfarandi draum fyrir löngu og situr hann svo stíft í mér. En hann er þannig: Ég og vinkona mín er við köllum A vorum að labba niðri í miðbæ. (Ég er ekki viss hvort það var í heimabæ mínum eða Rvk). Við sjáum þá að önnur vinkona okkar er við köllum B. kallar á okkur út um glugga á annarri hæð í gömlu húsi. B. segist vera byrjuð að fá hríðirnar (var ófrísk). Við A fórum inn til B. og lætur hún mig fá appelsínugula vekjaraklukku úr plasti til að taka tímann milli hríða. Svo stöndum við þarna inni í herberginu. sem var ekki mjög stórt en með mikið af gömlum húsgögnum og var frekar dimmt inni í herberginu. Við erum að horfa út um gluggann en úti var fullt af fóíki. Rekum við B. þá augun i ungan mann, sem horfir upp í gluggann til okkar og segjum við báðar I einu: „Sjáðu augna- ráðið. ” í því hleypur maðurinn inn niðri og segir þá B. við mig að ég skuli fara og ná í lögregluna. Ég hleyp út og mæti þá manninum í stiganum, en yrði ekkert á hann. Síðan hleyp ég út og er þar fullt af fólki (ungu). Sé ég þá lögreglu- konu standa við hvítt VW rúgbrauð (bíl). Og er þar stelpa að selja teikningar. Teikning- arnar eru allar eins en mis- stórar og eru með brúnum kastala á. Ég segi konunni að koma með mér (hún var miðaldra) og gerir hún það. Síðan fórum við tvær upp í herbergið og um leið og ég kem inn labba ég að manninum og hræki framan I hann. Síðan sest lögreglukonan I stól á móti manninum og byrjar að tala við hann. Þá sé ég að vinkona mín B. er alveg komin að því að eiga. Bið ég þá manninn að hringja á sjúkrabíl og segist hann gera það. Á meðan missir B. legvatnið og segi ég henni að liggja kyrr því það sé hættulegt fyrir barnið ef hún fari að labba um. En það ætlaði hún sér og þverneitaði að vera kyrr. Þá spyr ég manninn hvort hann hafi ekki kallað á sjúkrabíl og lítur hann þá ósköp kœruleysislega á mig. í því fyllist herbergið af fólki, sem B.þekkir ekki (I raun og veru). Fólkið er með fullt af gjöfum og á ég ferlega erfitt með að tala við það því plötu- spilarinn var á fullu og spiluð einhvers konar sinfóníulög. Síðan ætla ég að fara að hringja sjálf á sjúkrabíl, en finn þá aldrei rétta símann. Allt I einu eru komnir margirsímar en enginn þeirra líkist síma nema einn og á ég ósköp erfitt með að ná I hann. Svo erum við allt I einu komnar I vestur- bæinn í Rvík, erum að labba fram hjá Hótel Sögu á leið með B. á sjúkrahúsið (allt fólkið sem kom inn I herbergið er með). Þá mætum við líkfylgd. Allir í henni voru mjög dökkklæddir og keyrði fremst svartur sendi- bíll. Hann er með opnar afturdyrnar og á eftir honum labbar dökkklæddur ungur maður. Hann var skítugur og sjúskaður og fólkið á eftir honum var einnig skítugt en drukkið. Við töluðum eitthvað við fremsta manninn, en ekki man ég orðaskiptin nema hann sagði: „Hvað er þetta? Sjáið þið ekki, að þetta er líkfylgd?" Síðan löbbuðum við áfram og vorum komin að Hringbraut- inni, þá lít ég aftur fyrir mig og sé þá B. sem er grátandi og sveitt. Hún er klædd I brúna þykka kápu og sagðist ekki geta labbað meira því barnið sé að koma. Þá legg ég hana á gangstéttina og held I höndina á henni. Hún biður mig að vera viðstadda fæðinguna. Segist ég ætla að gera það, biður hún mig þá að hringja í kærasta sinn daginn eftir. Síðan vaknaði ég. Ég vonast eftir að fá ráðningu á þessum draumi. Með fyrirfram þökkum. Guðrún Draumur þessi táknar fleiri en einn atburð og mun líklega koma fram á nokkuð löngum tíma. Einhverjar miður skemmtilegar fréttir verða til þess að breyta áætlunum þínum og ýmislegt á eftir að koma þér á óvart á næstunni. Ferðalög og skemmtanir munu setja svip sinn á eitthvert tímabil og í sambandi við ferðalagið geturðu átt von á nokkurri úrkomu. Ýmsar breytingar munu einnig snerta þessa vinkonu þína (B) og eru þær bæði góðar og slæmar. En þegar til lengdar lætur verða breytingarnar ykkur báðum til góðs. Gifting er þarna mjög ákveðið tákn, en ekki hægt að segja til um hvor ykkar verður þar í aðalhlutverki eða jafnvel þið báðar á svipuðum tíma. TRÉKÓ eldhús TRÉKÓ baðinnréttingar TRÉKÓ fataskápar frékó TRÉSMIÐJA KÓPAVOGS HF AUÐBREKKU 32 KÖPAVOGI SÍMI 40299 33. tbl. Vikan 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.