Vikan


Vikan - 14.01.1982, Page 16

Vikan - 14.01.1982, Page 16
Framhaldssaga Miðaldra maður í samfestingi stóð og horfði á hann. — Matthíasson? spurði Gaunt hljóð- lega. — Já, sá sem við vorum að tala um, sagði Anna lágt um leið og þau gengu til þeirra. — Hann fer þessa ferð. Agnar Matthíasson kinkaði kolli í kveðjuskyni, þegar þau komu til þeirra. Hann var stór og þéttvaxinn með svip- laust andlit, einn af þeim, sem við fyrstu sýn mætti ætla traustan og hæfan starfs- mann með takmarkað hugmyndaflug. Þrátt fyrir það varð hann að teljast lík- legasti njósnarinn í starfsliði Arkival — nema það væri Pete Close. Gaunt virti báða mennina fyrir sér, en um leið dáð- ist hann að Önnu fyrir það, hvernig hún tók undir kveðju Agnars Matthíassonar, án þess að láta á neinu bera. — Allt tilbúið? spurði hún. — Búið að hlaða vélina og veðurútlit- ið í lagi, svaraði Agnar, án þess að líta við Gaunt. — Pete er bara með smá- munasemi. — Vertu feginn, rumdi Close þaðan sem hann stóð. — Jafnvel þinn feita rass mundi kala uppi á jökli. Hann renndi augunum til Gaunts, og glott myndaðist á holdskörpu andlitinu. — Hvernig leist þér á þig í Álfaborg í gær? — Það var eins og að fara í ískalt bað, svaraöi Gaunt. Close hló. — Þeir fara nú yfirleitt ekk- ert í bað þar inn frá. Meðan Anna ræddi við Agnar um flugáætlunina og farminn, gekk Gaunt út í opnar dyr flugskýlisins. Marglit flug- vallarljósin skáru sundur myrkrið, sem var á undanhaldi fyrir morgungráman- um. Hann leit á úrið, sá, að klukkan var að ganga ellefu. Bíll nálgaðist, og andar- taki síðar ók Saab Leifs Ragnarssonar inn á stæðið. Leifur kom auga á Gaunt um leið og hann steig út og kom beint til hans. — Hvernig samdi þér við lögregluna? spurði Gaunt. — Betur en ég bjóst við, sagði þétt- vaxni maðurinn með feginssvip. — Nokkrar spurningar og skýrsla til undir- ritunar, það var allt og sumt. Hann benti með þumalfingrinum inn i flugskýlið. — Hvernig gengur þarna inni? UNDIR FÖLSKU FLAGGI — Allt tilbúið, bara beðið eftir Nord- ur, sagði Gaunt. — Hvað er verið að flytja? — Matvörur — og ég er búinn að ganga úr skugga um, að svo sé, sagði Leifur með áherslu. — Þær komu i um- búðum beint frá kaupmanninum, sem venjulega sér þeim fyrir vistum. En ég laumaðist til að kanna innihaldið i nokkrum pakkanna til þess að vera viss. Hann leit í kringum sig og rumdi. Annar bíll nálgaðist. — Þetta hlýtur að vera Nordur. — Mundu það sem ég sagði þér. áminnti Gaunt. — Vertu eðlilegur, hvað sem á gengur. Þú hefur enga haldgóða ástæðu til að ætla, að það sé Nordur, sem hefur í hótunum við þig. — Ég skal reyna, sagði Leifur þung- lega. — En hann getur haft fyrir því að finna mig. Ég verð inni í skýli. — Ég skal segja honum það, sagði Gaunt og gekk i veg fyrir Leif, þegar hann ætlaði að fara inn. — Leifur, tal- aðu við Önnu, þegar flugvélin er farin — undir fjögur augu. Leifur lyfti brúnum, en kinkaði kolli, gekk síðan í burtu. Gaunt stóð kyrr og horfði á bíl Nordurs aka inn á stæðið og leggja við hliðina á bíl Leifs. Skyndilega jókst áhugi hans. Nordur var ekki ein- samall. Um leið og forstjóri Álfaborgar smeygði sér undan stýri, steig hávaxinn, grannholda maður út úr bilnum hinum megin. Gunnar Birgisson. Þeir komu auga á hann, þar sem hann stóð undir ljósum viðflugskýlið, hikuðu andartak, gengu síðan saman til hans. — Enn á meðal okkar, herra Gaunt? sagði Nordur þurr á manninn. — Ég hélt þú yrðir lagður af stað heim á leið um þetta leyti. — Það kemur að því, svaraði Gaunt stuttur i spuna. — Undir eins og ég hef lokið ætlunarverki mínu hér. — Náttúrlega. Nordur var klæddur þykkri peysu inn- an undir dökkum, stungnum kulda- jakka, og skálmarnar á ullarbuxunum voru girtar niður í leðurstigvél. Ein af appelsínulitu Álfaborgartöskunum hékk um öxl hans. Hann kynnti samferða- mann sinn kuldalega. — Gunnar Birgis- son, starfsmaður minn hér í Reykjavík. Gunnar Birgisson, sem var klæddur líkt og Nordur og bar sams konar tösku á öxlinni, gaf frá sér hljóð, sem hefði get- aðþýtt hvaðsem var. — Láttu vita, að við séum komnir, Gunnar, sagði Nordur. — Ég kem eftir andartak. Og segðu Leifi, að hann verði að troða þér með. Gunnar kinkaði kolli og gekk inn í skýlið. — Ætlið þið báðir inn eftir? spurði Gaunt. — Já, það er fundur og einu nám- skeiðinu er að ljúka, sagði Nordur og yppti öxlum. Hann horfði á Gaunt, og var ekki laust við vanþóknun í svipnum. — Ég frétti, að þú hefðir farið í heim- sókn. Þú hefðir átt að láta mig vita, ég hefði getað skipulagt það betur. Þeim er ekkert gefið um gestaheimsóknir þar inn frá. Stefna okkar er að skera alveg á samband námskeiðsþátttakenda við um- heiminn. Svo að í næsta skipti... — Það er ólíklegt, að til þess komi, sagði Gaunt áhugalaust. — Ég hef ann- að við timann að gera. Það glampaði á augu Nordurs innan við gleraugun. — Viðskiptin við Ragnarsson?JEða er það eitthvað fleira? Hann beið ekki eftir svari, heldur leit á úrið sitt og brosti snöggt við Gaunt. — Tími til að halda af stað. Það er fallegt að sjá yfir Álfaborg í dagsbirtu. Leitt að þú skulir ekki fá að njóta þess. Gaunt glotti með sjálfum sér, þegar hann horfði á eftir Nordur inn í flugskýl- ið. Nordur hafði leikið sér að honum, eins og köttur að heimskri mús. En nú ætluðu þeir báðir í burtu, Nordur og Gunnar Birgisson. Sú staðreynd kveikti með honum hugmynd, og hann gekk framhjá skýlinu og inn um dyrnar, sem lágu beint aðaðalskrifstofunni. Skrifstofan var auð. Hann dró blað- siðuna, sem hann hafði rifið út úr sima- skránni á hótelinu, upp úr vasa sínum, lyfti simtólinu og valdi númerið á skrif- stofu Álfaborgar. Enginn svaraði. Hann lét símann hringja nokkrum sinnum til öryggis, svo lagði hann á. 1 sama mund opnuðust dyrnar, og Kristín Bennett kom inn. Hún var að hneppa frá sér kápunni, og það birti yfir henni, þegar hún sá hann. — Góðan daginn aftur, sagði hún, og bros hennar var næstum því feimnislegt. — Ég hafði hugboð um, að þú værir hér. — Hér og á leiðinni út, sagði Gaunt. Hann brosti, þegar hann sá vonbrigða- svipinn á andliti hennar. — En ég kem aftur. Ertu meðbílinn? Hún kinkaði kolli. — Ertu til í að lána mér hann um stundarsakir? — Hversu lengi? spurði hún og hleypti brúnum um leið og hún tók lykl- ana upp úr vasa sínum. — Jonny, ef þú ert að blanda þér í eitthvað.. . 1 breska sendiráðinu? sagði hann með sakleysissvip. — Þeir blanda ekkert nema kokkteila þar. Þetta er aðeins spurning um, hversu lengi ég þarf að bíða. Kristín kinkaði feginsamlega kolli og rétti honum lyklana. — Er það alveg áreiðanlegt? ítrekaði hún. — Alveg áreiðanlegt, laug hann og fór. 6. KAFLl Dagskiman var að vinna bug á nætur- myrkrinu, þegar Gaunt opnaði bil Kristínar og settist inn í hann. Bíllinn stóð nógu nálægt flugskýlinu til að hann sæi alla umferð inn og út. Hann heyrði hreyfla Cessnunnar ræsta, og nokkrum andartökum síðar skreið vélin út úr skýlinu. Þegar hún rann hægt fram hjá honum út á flugbrautina, gat hann greint Agnar Matthíasson við stjórn- völinn og Harald Nordur i aðstoðarflug- mannssætinu, en Gunnar Birgisson pirði út um afturgluggann. 16 Vikan 2. tbl

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.