Vikan


Vikan - 14.01.1982, Blaðsíða 45

Vikan - 14.01.1982, Blaðsíða 45
Viðtal Vikunnar hafa nú ekki alltaf verið dans á rósum. En margir gera sér ekki grein fyrir að allar daglegar gerðir okkar eru á einn eða annan hátt tengdar trú, þá á ég ekki við guðstrú heldur þann lífsvilja sem felst í að trúa. Ég get tekið sem dæmi mann sem átti fyrirtæki sem gekk mjög vel og allt var í blóma. En dag einn komu til hans menn frá lögreglunni og sögðu honum að sonur hans hefði lent í vandræðum, væri flæktur í fíkniefnamál. Maðurinn missti trúna á son sinn, hann missti einnig trúna á þjóðfélagið og það fór að halla undan fæti hjá fyrirtækinu. Sjálfsmorðaaukningu tel ég vísbendingu um að trúar- þörf mannsins sé ekki full- nægt. Mín skoðun er sú að ímyndunaraflið og trúin valdi allri tilfærslu á orku, öllu sem gerist í heiminum. Þeir sem hafa lent í návígi við dauðann hafa þessu skylda sögu að segja. Ég þekki konu sem gjör- breyttist. Þetta var eldri kona sem var mjög þrasgjörn, and- mælti öllu sem maður sagði. Hún var af þeim sökum fremur leiðinleg í umgengni. Hún fékk lungnabólgu, varð mjög veik og lá við að hún hætti að anda. Sem betur fer náði hún sér og í dag er þetta manneskja sem maður leitar eftir að heimsækja og tala við. — Ogþú telur að til séu betri aðferðir til að breyta því hvernig við skynjum heiminn og umhverfið? Ég hef mjög mikinn áhuga á að spekúlera í manninum sjálfum, hvernig hann skynjar umhverfið og hvað vekur hann til athafna. Við þekkjum öll þá reynslu að stundum finnst okkur lands- lagið sem við búum í mjög gott og fallegt. En svo virðist það einn daginn Ijótt og ómögulegt. Það er eins og það sem við skynjum ráðist ekki af sjóninni einni saman. Satt að segja finnst mér ekki taka því að ergja sig yfir ýmsu, þau fáu ár sem maður er í þessum heimi. En ég mæli ekki með því að menn sætti sig bara við allt eins og það er. Þess vegna hef ég áhuga á að velta fyrir mér hvers vegna allt virðist fallegt einn daginn en Ijótt annan. Sumum finnst mjög gott að tala við hundinn sinn, sem þó svarar engu. Aðrir fara þreyttir og argir upp í hesthús á kvöldin og koma þaðan endurnærðir í góðu hugar- ástandi eftir að hafa kembt hestunum. Sagt hefur verið að þegar maður klappi hesti slái hjarta manns öðruvísi. En þær aðferðir sem ég hef reynt til breytinga í þessa veru eru komnar frá Brasilíu- manninum Síló. Á grundvelli þeirra hefur síðar myndast félagsskapurinn Samhygð, en við tókum okkur saman 10 manns fyrir tveim árum, í því skyni að prófa aðferðir Síló. Þær miða að því að ná stjórn á ímyndunaraflinu, beina því til uppbyggjandi athafna, virkja það til góðs. Reyndar er ekki ætlunin að komast í eitthvert algleymis- ástand eða ná einhvers konar indverskri ró. Stefnt er að því að laða fram breytingar hjá þátttakendum, gera þá hressari og virkari í sínu daglega lífi. Okkur í þessum hópi fannst við ná ein- hverjum árangri, töldum okkur verða vör við jákvæðar breytingar. Takist að þoka mönnum úr því svefnrofa-ástandi sem sumir hafa lent í og hjálpa þeim að skilja og leysa vandamál sem allir eiga einhvern tíma við að glíma þykjumst við hafa náð árangri. Við Vesturlandabúar verðum að doka við og hlusta á rödd hjartans. Jafnvel þótt vandamálin virðist óleysan- leg er algjört ábyrgðarleysi að láta hugfallast. Möguleikarnir í dag eru meiri en nokkru sinni fyrr. Við vitum að grimmustu dýr skógarins hlúa af mikilli nærgætni að afkvæmum sínum ef hættur steðja að. En þegar mannsbörnin afneita lífinu líkt og við þekkjum nú á dögum, hefur þá ekki eitthvað farið úrskeiðis? Nýja hlióömerkjakerfið í BEEEEEEP gefur til kynna ef birtan er ekki nægileg Minolta vasamyndavélar á viðráðanlegu verði. Nýju Minolturnar eru sjálf- virkar með tvöföldu aðvör- unarkerfi... rautt Ijós og hljóðmerki gefa til kynna ef birtan er ekki nægileg. Þá þarf bara að þrýsta á hnapp og flassið er til- búið fullhlaðið. Með Minoitu fáið þið ávallt betri myndir, vegna þess að i Minoltum, stórum og smáum, eru alvöru ROKKOR linsur. 12 gerðir af leifturljósum frá kr. 200,- Ljósmyndavélar í úrvali frá kr. 350,- Sjónaukar, smáir og stórir. Stækkarar fyrir lit og svart/hvítt, pappír fyrir lit og svarthvítt og efni til stækkunar á lit og svarthvítu. Skuggamyndavélar, kvikmyndatökuvélar og sýn- ingarvélar. Töskur og margt margt fleira. Sérverzlun með sérþjónustu, filman í dag og myndirnar á morgun. HJÁ OKKUR SNÝST ALLT UM FILMUR OG VÉLAR. PÓSTSEN DUM FILMUR QG VELAR S.F. AU iiiiim Skólavörðustfg 41 — Sfmi 20235 2. tbl. Vikan 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.