Vikan


Vikan - 28.01.1982, Blaðsíða 42

Vikan - 28.01.1982, Blaðsíða 42
 Fimm mínútur meö Willy Breinholst i v hTj \V/ 1 1 nrV)J ..... vW/,/ " ' \l í / Vl *! *"*, 'o"/, , y'1", / .1"/. ' W CVYVi' -V§» Skynsemdarstelpa Dætur eru eitt það vonlausasta og ómögulegasta sem maður getur átt nú á þessu brjáluðu tímum. Stálpaðar stelpur eru hreinlega ekki viðráðanlegar. Hugsið ykkur að eiga sautján ára dóttur. Hvernig í ands...komast foreldrar eiginlega klakklaust frá því? Hansen átti sautján ára dóttur. Hún hét Pernilla og var sæt, smart og örugg með sig. Pernilla átti óteljandi aðdá- endur. Mömmu hennar tókst ekki að koma því inn í kollinn á sér hvernig hún gat þekkt þá alla í sundur. Allir þessir sem héngu í kringum hana voru jafnundar- lega klipptir, dauðyflislegir og vonlausir. Þegar dyrabjöllunni var hringt og einhver kom að sækja hana og Hansen opnaði kom aldrei fyrir að sagt væri: „Gott kvöld, herra Hansen. Afsakið, en er Pernilla heima?” eða: „Mætti ég kannski fá að tala við Pernillu?” O, nei, ungu mennirnir stóðu þarna með reytt og úfið hárið og hendurnar á bólakafi í vösunum á níð- þröngum buxunum og muldruðu vélrænt: — Hæ.... Og svo óðu þeir inn. Það var ekkert um að tala að bjóða þeim inn í setustofuna meðan þeir biðu eftir því að hún hefði sig til. Nei, þeir tóku strikið beint inn til hennar, hávaðamiðstöð hússins var á sama stað og svo heyrðist enn hærra innan úr herbergi Pernillu en áður og var þó ekki á það bætandi. Pernilla var aldrei heima. Jú, hún var reyndar heima þar til stríðhærðu hálfaparnir hennar....eða eigum við enn að nefna þá aðdáendur...komu og sóttu hana. Og það brást ekki að á hverju kvöldi birtist eitt af þessum síðhærðu fyrirbærum hennar. Á HVERJU einasta kvöldi. Það var alveg áreiðan- legt. — Heldurðu að þú gætir nú ekki verið heima í kvöld, Pernilla....svona einu sinni? spurði móðir hennar stundum örvæntingarfull. 42 Vikan 4. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.