Vikan


Vikan - 28.01.1982, Blaðsíða 48

Vikan - 28.01.1982, Blaðsíða 48
Smásaga honum húsnæði í bænum. í staðinn bauðst hann til að útvega mér húshjálp. Ég sagðist heldur vilja auglýsa i Aften- posten. Hann hlýtur að hafa fylgst vel með auglýsingu minni. Hann hafði þekkt hana áður og beðið hana aðsækja um. Þannig lá sem sagt i því. Nú sátu þau þarna I sófanum og biðu milli vonar og ótta. Þau höfðu fært sig nær hvort öðru, samsek og fyrirlitleg. Nú voru þau ekki jafnbrún og sælleg sem á myndinni. Brosin voru horfin, þurrkuðút. Ég þekkti ekki mina eigin rödd. — Hafið þið nokkuð að segja mér? spurði ég. Ótti og blygðun skein úr augunt [jeirra. Ég bcindi máli mínu til Jans. — Þú áttir gott heimili, sagði ég. — Foreldrar þínir voru heiðarlegar, vinnu- samar manneskjur. Þau létu eftir sig bæði hús og lausafé. Þú sóaðir því öllu. Væntanlega með dyggilegri aðstoð Monu. Tryggingaféð eftir bátsbrunann hélt þér lengi uppi. Ef til vill var hann heldur ekki slys? Jan hvítnaði i framan. — Þetta er lygi, hrópaði hann. — Það munaði minnstu, aðég brynni lika. Skop Hlutirnir eru ekki samir þegar þú ert ckki lengur í fréttunum. Hafðu engar áhyggjur. Það verða margir þunglyndir eftir eldhúsdags- umræðurnar. Fyrrverandi samstarfsmenn þínir í bankanum yrða ekki á mig lengur. M ér hafði aldrei flogið þessi möguleiki fyrr í hug. Ég trúði því ekki heldur núna. Það var svo lygilegt, að Jan hefði getað komið slíku til leiðar, svo rotið og and- styggilegt, að ég neitaði einfaldlega að trúa því. En fræi tortryggninnar hafði verið sáð. Ég hugsaði um það, sem þau höfðu gert mér. „Frændi” án erfingja. Það hafði ekki dugað þeim. Ég varð að kvænast. Líklega höfðu þau vonast til að ég dæi áður en langt um liði. Kannski höfðu þau jafnvel hugsað sér að hjálpa eilítið til I þeim sökum. Þau gætu jafnvel hafa áætlað að gera það í þessari skemmtiferð okkar. Nýtt slys. Það var naumast erfiðara en hið fyrra. Þau höfðu skipulagt giftingu mina og því þá ekki dauða minn? Það vafðist naumast fyrir þeim. Joyce var horfin. Ég heyrði ríslið í henni frammi i eldhúsi. Gíslarnir áttu líklega að fá mat. Robert stóð með byssuna I hendinni og hallaði sér upp að dyrakarminum. Hann fylgdist með okkur af áhuga. Kannski renndi hann grun i, hvað fram fór okkar á milli, og beið eftir frekari átökum. Ég hafði enga löngun til að skemmta honum með því að láta hann verða vitni að uppgjöri okkar. Ég hafði hugsað honum annan glaðning. Heimurinn er sannarlega lítill, sagði ég á ensku. — Hverjum hefði dottið I hug, að hér í þessari stofu ættu tveir bræður eftir að hittast í fyrsta sinn? — Ha? sagði hann. — Hér í stofunni? Ég reis á fætur með leikrænum til- burðum og benti á hann og Jan. — Þið tveir eruð greinar af sama stofni, sagði ég. — Minn gamli vinur, Martin, var faðir ykkar beggja. Þetta setti hann út af laginu. Hann virtist ráðvilltur og gramur. — Vitleysa, sagði hann, en hafði ekki augun af Jan, sem sat teinréttur i sófanum. Þeir mældu hvor annan út frá hvirfli til ilja. Ég nýtti tækifærið til hins ýtrasta. Ætti ég nokkurn möguleika, þá var það einmitt nú. Og ég vildi allt til vinna að komast undan. Ég gat ekki hugsað mér að láta troða mér inn i lítið herbergi ásamt Monu og Jan. — Vitleysa? endurtók ég. — Spurðu bara Joyce. Spurðu hana um nafn elskhuga hennar árið 1944. Þú hefur séð sama eftirnafnið i vegabréfi Jans. Hann fæddist árið 1947. Þið eruð báðir synir fyrsta flokks Norðmanns. Þið eruð hálfbræður! Ég greip annað vegabréfið af borðinu og veifaði því framan í hann. Ég gekk til hans og átti aðeins einn metra ófarinn, þegar ég þeytti því framan I hann. Ég henti mér á hann og greip báðum höndum um byssuna. Hann var þraut- þjálfaður, snöggur og sterkur, en óvið- búinn. Ég fékk högg á hnakkann og féll á kné, en sleppti ekki taki á byssunni. Ég rykkti og togaði og lagði alla mína þyngd og krafta i að snúa hana úr höndum hans. Svo reið af skot. Fyrst eitt, svo tvö hvort á eftir öðru. Hann kipptist til og féll yfir mig. Ég velti honum ofan af mér og sat á gólfinu upp við dyrakarminn. Hann lá þvert yfir þröskuldinn, og blóðið streymdi gegnum svörtu peysuna. Svo rann upp fyrir mér, að ég hélt á marghleypunni í hendinni. Brúð- kaups- ferðin Ég lyfti höfðinu hægt og horfði á skötuhjúin á sófanum. Þau sátu fremst á sófabrúninni og héldust í hendur eins og skelfdir krakkar. Rödd mín hljómaði eins og ryðguð kaffikvörn. — Éarið þið, sagði ég. — Hlaupið, komiðykkurundan! Þau risu treglega á fætur, skildu ekki, hvaðégátti við. — Burt með ykkur! Ég vil ekki sjá ykkur framar. Komið ykkur burt, rögu, vesælu ræfilstuskur! Jan stökk að dyrunum út að veröndinni og greip um húninn. Dyrnar voru læstar. Mona stóð kyrr augnablik, eins og hún væri að hugsa sig um. Svo hljóp hún til hans. Það var hún, sem ég skaut fyrst. Ég miðaði ekki, lyfti bara byssunni og hleypti af. Þetta eina skot nægði. Hún fékk það I bakið, sló út höndunum og seig því næst saman. Jan snarsneri sér við og fékk kúlnadembu i brjóstið. Hann seig saman eins og poki. Þau lágu í hrúgu rétt við glerhurðina. Kvöldsólargeisli lýsti upp andlit þeirra. Þ að var hljótt í húsinu. Það suðaði í eyrum mér eftir hávaðann frá byssunni. Það furðulega var, að ég fann ekki til neinnar geðshræringar. Ég var jafn- tómur og byssan í hendi mér. Ég hvarflaði augunum um stofuna. Athygli mín beindist að gamalli veggklukku. Pendúllinn hékk hreyfingarlaus niður. Hafði ég ekki einu sinni gert við þessa klukku? Jú, Joyce hafði beðið mig... Joyce! Hvar var hún? Ég reis á fætur með erfiðismunum, lét byssuna falla á gólfið, klofaði yfir lík Roberts og gekk út i forstofuna. Útidymar stóðu opnar. Fólk var tekið að safnast saman hinum megin götunnar. Það horfði óttaslegið heim að húsinu. Svo heyrði ég i sírenum. Andartaki síðar óku bílarnir á fullri ferð inn í Drumcarrow Road. Vopnaðir lögreglu- menn stukku úl úr bilnum og skýldu sér, sumir á bak við bílana, aðrir við lim- gerðið. Ég gekk niður tröppurnar og i áttina að hliðinu. Tveir menn stukku fram og hrópuðu að mér að rétta upp hendur. Ég hristi höfuðið. — Takið það rólega, sagði ég. — Sýningin er afstaðin. Lögregiuforingi með stálhjálm á höfði gekk til mín og virti mig fyrir sér. — Ert þú Norðmaðurinn? — Já, herra. Hann spurði, hvað gerst hefði. Ég benti bara í átt að húsinu. Hann gaf mönnum sínum merki. Skyndilega kom ég auga á Joyce i einum bilanna. Ég ætlaði að ganga til hennar, en lögreglu- foringinn tók um handlegg mér og bað mig koma með þeim inn í húsið. Á tröppunum mættum við lögreglumanni, sem sagðist hafa fundið þrjú lík inni i húsinu. Það hljómaði svo viðurstyggi- lega, að ég var gripinn skjálfta. Mér var ómögulegt að ræða við lög- reglumennina af nokkru viti. Þeir virtust fullir samúðar og hughreystu mig með því, að ég hefði lagt að velli eftirlýstan hryðjuverkamann, sem þeir hefðu lengi leitað. Á lögreglustöðinni fékk ég loks að tala við Joyce. Hún virtist hafa elst um mörg ár. Ég vissi, að hún var þegar búin að gefa skýrslu. — Þú drapst hann, sagði hún hljóm- laust. Son hennar. Hún sneri sér undan. — Þú varst vist tilneyddur, sagði hún hæglátlega. — Já. — Hann skaut þau, sagði hún. — Ég heyrði skotin fram i eldhúsið. Hún hafði heyrt skotin. En hún hafði ekkert séð. Hugsanir minar tóku nýja stefnu. Hingað til hafði ég ekki hugsað skýrt. — Þau reyndu að flýja, sagði ég. — Þá skaut hann á þau. Ég hafði ekki um neitt að velja. — Ég skil það, sagði hún. Scotland Yard skildi það lika. Allt benti til þess, að einmitt þannig hefði at- burðarásin verið. Viku siðar var allt afstaðið. Blöðin skrifuðu um norska stríðsflugmanninn, sem hafði höggvið skarð í raðir IRA-manna. Á leiðinni yfir Norðursjó kastaði ég myndinni í hafið. Hún flögraði aftur með skipshliðinni. Ef til vill var það hryggilegasta atvikið í brúðkaups- ferðinni minni. Nú lá leiðin heim til að gleyma. Alveg eins og fyrir þrjátiu árum. ENDIR. 48 Vikan 4. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.