Vikan


Vikan - 28.01.1982, Blaðsíða 44

Vikan - 28.01.1982, Blaðsíða 44
HÖfundur: Anker Rogstad Ég vissi tæpast, hvað ég gerði, þegar ég reis á fætur og gekk til hennar. Kannski langaði mig til að hughreysta hana. Ég hvorki sá né heyrði, þegar maðurinn henti frá sér símtólinu. Hann þrcif harkalcga í öxl mcr og sncri mcr við. Við horfðumst í augu. Við vorum jafnháir. Hann þrýsti byssuhlaupinu að maga mér. M aðurinn í svörtu peysunni var farinn að yfirheyra mig. Á sófaborðinu lá það, sem hann hafði tínt úr vösum mínum. Vegabréf, ökuskírteini, peningar, lyklar, eldspýtur. Og í bílnum fyrir utan sátu konan min og Jan. Þau biðu eftir mér, grunlaus um það, sem gerst hafði. — Vegabréfið sýnir, að þú ert norskur, sagði maðurinn háðslega. — Þú talar furöanlega góða ensku. — Það er ekkert óvenjulegt að Norðmenn tali góða ensku. Auk þess starfaði ég sem flugmaður í Konunglega norska flughernum í striðinu. Ég flaug Mosquito. Maðurinn horfði á mig rannsakandi brúnum, athugulum augum. Hann var hár og grannur, á að giska hálffertugur. Rautt ör teygði sig frá hægra gagnauga niður eftir vanganum allt að höku. — Þú segist hafa komið til þess að heilsa upp á ungfrú O'Kearny, sagði hann. — Hvernig gastu vitað, að hún byggi hér? Þú hefur ekki komið til Skot- lands í þrjátiu ár. Hefurðu haft samband við hana á þeim tima? — Nei. Og ég endurtek, að ég er hér í skemmtiferð. Ég kom hingað til að rifja upp gamlar minningar. Og úr því ég var kominn hingað til St. Andrews var ekkert sjálfsagðara en að heilsa upp á Joyce. Hún bjó hér hjá foreldrum sínum i þá daga. Þau leigðu Norðmönnum herbergi. Bed and breakfast. Hann trúði mér ekki. Sagan hljómaði heldur ekki trúlega. Maður æðir ekki i heimsókn til kvenmanns eftir þrjátíu ára aðskilnað án þess að hafa hugmynd um, hvort hún er gift eða ekki. En nafn hennar stóð á dyrunum: Joyce O’Keamy. Það benti til þess, að hún væri einhleyp. Enginn hafði komið til dyra, þegar ég hringdi bjöllunni. Þess vegna gekk ég í kringum húsið. Mestan part af forvitni, býst ég við. Og þarna var garðurinn og veröndin, þar sem ég hafði svo oft snætt egg og beikon til morgun- verðar. Hún var umlukt gleri, og Joyce hafði kallað hana gróðurhúsið vegna hitans þar, þegar sólin skein sem glaðast. Ég gekk upp á veröndina og kíkti inn um gluggann að setustofunni. Og þá sá ég hann. Hann kominn í stofuna og snarstansaði, þegar hann sá andlit mitt á glugganum. Mér brá ákaflega i brún og stökk niður af veröndinni, en kjánaðist svo til að hringja aftur dyrabjöllunni við aðal- dyrnar. Maðurinn opnaði og sagði, að þvi miður væri ungfrú O’Kearny ekki viðlátin i augnablikinu. Hann bauð mér að ganga i bæinn. Svo tók hann Iram marghleypuna. Og nú sat ég hér í yfirheyrslu, meðan Mona og Jan biðu mín úti í bílnum. Var furða, þótt ég væri svolitið tauga- óstyrkur? Þau gátu tekið upp á því að koma og spyrja eftir mér. Ég vonaði innilega, að Joyce kæmi á undan þeim. Hún myndi áreiðanlega eftir mér og gæti staðfest, að við hefðum þekkst i stríðinu. En hvað var hún að gera með svona náunga í sínum húsum? Hver var hann? Hvaða erindi átti hann i þetta hús? Vopnaður og klæddur á þennan hátt. Svört peysa, há i hálsinn, svartar, þröngar buxur, hvítir strigaskór. Enginn venjulegur glæpamaður. Hann virtist greindur og skólagenginn. Röddin var lítið eitt drafandi, en það var eitthvað við málfar lians, sem hvorki minnti á ensku né skosku. Ef til vili írsku? Skyndilega minntist ég þess, að foreldrar Joyce höfðu komið frá írlandi. Þau höfðu sest að i Skotlandi eftir fyrri heimsstyrjöldina og stofnað krá hér í St. Andrews. Jocye hafði sagt mér þetta nóttina, sem við fréttum, að Martin hefði verið skotinn niður úti fyrir strönd Noregs. Hún grét mikið þá nótt. Vissu- lega hafði hálf herdeildin fengið að njóta 44 Vikan 4- tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.