Vikan - 05.09.1985, Side 6
Qolpo Qolfo Qi o!} 'O
— dægradvöl almúgamanna sem auðkýfinga Texti: Þórey Ljósmyndir: Ragnar Th.
Aðstæður miðaðar út . . .
,,Eg tók fram dræverinn, tíaði kúluna, æðislegt
dræv, en náði ekki alveg á grínið og lenti í sanbönkern-
um, dró svo upp níuna og sippaði upp á grínið alveg við
holuna svo þetta var þægilegt pútt . .
Fyrir sjálfri mér og fleirum er
svona tal eins og slafneskt tungu-
mál. Þeim sem hvorki veit haus
né sporö á golfíþróttinni og heldur
aö hún gangi ekki út á annað en að
standa úti á grasi og slá litla, hvíta
kúlu ofan í holu — ekkert mál (og
veit reyndar aö þaö þykir gott aö
fara holu í höggi) — líður eins og
nýlentum Marsbúa í hópi golf-
áhugafólks. Talsmátinn, reglurn-
ar, útbúnaöurinn — allt virðist
þetta tilheyra einhverjum öörum
heimi sem einungis þeir irmvígðu
fá hlutdeild í.
íþrótt hinna ríku og vold-
ugu . . .
Golfið hefur líka yfir sér ein-
hvern ljóma. Það er dægradvöl
hinna ríku, frægu og voldugu. Á
golfvellinum hafa örlög ráöist og
miklar ákvarðanir veriö teknar.
Golf í núverandi mynd er upp-
runniö í Skotlandi en heimildir eru
þó um að golf í einhverri mynd
hafi verið leikið í Kína fyrir rúm-
um tvö þúsund árum og Frakk-
landi á 14. öld. Fyrsti golfklúbbur
heims, og nú sá virtasti og fræg-
asti, St. Andrews klúbburinn í
Edinborg, var stofnaður 1744. Þar
spila breskir aðalsmenn og ríkir
Bandaríkjamenn með köflóttar
húfur. Á eftir slaka þeir á í göml-
um, djúpum leðurstólum á barn-
um í gamla, viröulega klúbbhús-
inu, og þangað á enginn erindi
nema hann teljist til safnaðarins.
. . . en einnig almennings-
íþrótt
En golf er líka íþrótt almúga-
mannsins. Raunar henta fáar
íþróttagreinar jafn vel fólki á öll-
um aldri og af báðum kynjum og
golfið. Börn geta byrjað að iðka
golf alveg frá því að þau geta vald-
ið kylfunum (það eru til sérstakar
barnakylfur), allt frá svona átta
— tíu ára aldri, og síðan geta
menn stundað íþróttina fram eftir
öllum aldri eins lengi og heilsa og
6 Vikan 36. tbl.