Vikan - 16.01.1986, Blaðsíða 11
Gunnlaugur bragöar á frauöplasti meö súkkulaöi-
hjúp. Ekki vann gripurinn til verðlauna.
Dómnefndin var skipuö Hilmari frá Gestgjafanum,
Páli, Georg tæknimanni, Ásgeiri Tómassyni og
Gunnlaugi Helgasyni, öllumfrá rás II.
Á dögunum var efnt til heilmikillar smákökusam-
keppni á rás II. Kvaddir voru til ábyrgir dómarar og
dæmt um uppskriftir.
Hér er svo verðlaunauppskriftin:
Marsi pankökur með nougat
1 klló hrátt marsipan
6eggjahvítur
1 /4 klló flórsykur
Hræriö I potti viö vægan hita — best aö hræra meö
höndunum. Setjiö I sprautupoka. Skeriö 200 g
nougat I litla bita, ca 1 cm. Smyrjiö plötuna vel,
sprautið slöan hringlaga botn, setjið nougatbita I
miðjuna og haldiö slðan áfram að móta litla toppa.
Bakiö viö 225° 15—7 mínútur.
Sú sem sendi inn verölaunauppskriftina heitir
Guðrún Schiöth og er úr Reykjavlk.
Guörún fékk partlskálasett frá Tékkkristal, 8000
króna úttekt frá Jóhannesi Leifssyni, Gestgjafann
frá upphafi að frátöldum fimm fyrstu blööunum og
slöast en ekki sist verölaunagripinn, áletraö köku-
kefli. Og aö sjálfsögðu ber hún titilinn smáköku-
meistari rásar I11985.
Vikan 3. tbl. 11