Vikan

Útgáva

Vikan - 16.01.1986, Síða 18

Vikan - 16.01.1986, Síða 18
r Islenska leiðin iar, fjár og trama IVIetnaður manna er á ýmsa vegu. Sumir una glaðir við sitt (sérstaklega ef það er mikið), aðrir eru alltaf að leita að einhverju. Eftirsókn eftir vindi, segja þeir spöku þó þeir viti fullvel að flestir þrá logn. Það er misjafnt eftir hverju menn eru að sækjast, sumir vilja vera þöglir, ríkir menn sem berast ekkert á. Aðrir vilja vera alls staðar sjáanlegir og helst frægir menn- ingarvitar. Enn aðrir hafa gífurlegan metnað og öðl- ast jafnvel skjótan frama í málfræði, hástökki eða rjómatertum. Magn frægðar, fjár og frama þess er menn vilja er mismunandi. Sumir láta sér nægja að dreyma um það fé sem nægir til að borga rafmagnsreikninga lið- ins árs, hitaveitureikninga fram í maí 1983 og afborg- anir af sumum lánunum sínum, auk kókópöffs og pennaveskja fyrir börnin. öðrum dugar ekki minna en að fá dýrar lúxusreisur og þrjá heita potta í garð- inn sinn. Á þessum tveim hópum er grundvallarmun- ur þó upphæðirnar, sem þeir þrá, séu þær sömu. Annar hefur áhuga á að halda lífi og geðheilsu, hinn að slá um sig. Leiðin til frægðar, fjár og/eða frama er torsótt. Enginn verður óbarinn biskup og margir verða alls ekki biskupar. Hér er leiðarvísir í stuttu máli um grýtta stigu íslensku leiðarinnar til frægðar, fjár og frama. Texti: Anna Ljósm.: RagnarTh. o.fl. Það er hœgt að verða frægur af að hafa málað myndir (öruggast að vera látinn líka) og fjáður af að selja þær, það er að segja ef þú ert einhver annar en sá sem málaði þær.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.